Dagur - 06.02.1985, Qupperneq 4
4 - DAGUR - 6. febrúar 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 180 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 25 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GlSLI SIGURGEIRSSON
BLAÐAMENN:
EIRlKUR ST. EIRlKSSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI: 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Miðjusæknin í
stjómmálunum
Innbyrðis deilur og átök í flestum íslenskum
stjórnmálaflokkum hafa sett mikinn svip á
stjórnmálin undanfarin misseri. Telja margir sig
sjá þess ýmis merki að núverandi flokkakerfi sé
að riðlast og sú þróun sé þegar hafin með til-
komu Kvennalistans og Bandalags jafnaðar-
manna. í því sambandi er þó rétt að minnast
þess að áður hafa komið fram stjórnmálaöfl sem
vænleg þóttu til að hasla sér völl. Raunin varð
hins vegar önnur og má minnast Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna í því sambandi. Það er
því ekkert sjálfgefið að sú lausung, ef svo má að
orði komast, sem orðið hefur vart í íslenskum
stjórnmálum muni leiða til einhverrar allsherjar
uppstokkunar á flokkakerfinu.
Óhætt er þó að fullyrða að innan allra ís-
lenskra stjórnmálaflokka er til fólk sem skoðana
sinna vegna gæti verið í einni og sömu stjórn-
málahreyfingunni. í öllum flokkum er að finna
fólk með hófsamar skoðanir sem byggjast á
hæfilegu einstaklingsfrelsi en einnig ríkri sam-
hjálparkennd. Erfitt er að flokka skoðanir þessa
fjölmenna hóps í annað hvort hægri eða vinstri,
eins og svo allt of oft er reynt að gera. Þetta fólk
tengir sjálfrátt eða ósjálfrátt hugmyndir sínar ís-
lenskum veruleika fyrst og fremst - hafnar að
meira eða minna leyti alheimsstefnum í pólitík á
borð við kommúnisma og kapitalisma eða al-
þjóðlegum kratisma. Þetta er fólkið í miðjunni —
fólkið sem upp á síðkastið hefur fengið heitið
lausafylgi.
Algengt er að þetta fólk kjósi einn flokkinn eft-
ir annan, enda hefur þróunin verið sú á undan-
förnum áratugum að flokkarnir í íslenskri póhtík
hafa verið að nálgast hver annan á margvísleg-
an hátt. Ein meginástæðan fyrir því kann að vera
sú að þeir hafi unnið hver með öðrum í ríkis-
stjórnum og allir þurft að gefa meira og minna
eftir af kröfum sínum til að samvinnan gengi.
Allir íslenskir stjórnmálaflokkar hafa á undan-
förnum árum og áratugum verið að nálgast
miðju stjórnmálanna.
Þetta hefur þau áhrif að Framsóknarflokknum,
sem segja má að þar hafi verið fyrir, hefur sífellt
gengið erfiðlegar að skapa sér þá sérstöðu sem
hann hafði og því hafa allir þessir nýju miðju-
flokkar nagað úr fylgi hans. Þessi miðjusækni í ís-
lenskum stjórnmálum er ekki öllum að skapi og
er þar að finna meginástæðuna fyrir sívaxandi
úlfúð og deilum innan flokkanna.
Fyrir Framsóknarflokkinn er brýn nauðsyn að
skapa sér aftur afgerandi sérstöðu, eigi hann að
standa af sér þessar holskeflur frá hægri og
vinstri. Það gerist fyrst og fremst með skýrri
stefnumörkun sem yfirgnæfir þá fordóma sem
flokkurinn hefur átt við að glíma. Það starf er nú
þegar hafið og mun skila árangri í tímans rás.
Myndir: KGA
Þeir berjast um sigurinn -
Áskell Orn Kárason, Kári Elíson og Pálmi Pétursson.
Skákþing Akureyrar:
Skákþingið hálfnað
Nú þegar keppni í A-flokki á
Skákþingi Akureyrar er hálfnuð
er staðan þessi: Áskell Örn Kára-
son 4 v., Pálmi R. Pétursson 3,5
v., Kári Elíson 3 v. og biðskák,
Arnar Þorsteinsson 1,5 v., Jón
G. Viðarsson 1 v. og biðskák,
Gylfi Þórhallsson 1 v.
Eins og sjá má er Áskell efstur
en Kári getur náð honum ef hann
vinnur biðskák sína, sem er
líklegt.
Úrslit í 4. og 5. umferð:
Kári-Arnar 1-0
Pálmi-Gylfi 1-0
Áskell-Jón G. 1-0
Arnar-Pálmi xh-xh
Jón G.-Kári biðskák
Gylfi-Áskell 0-1
Tveimur biðskákum úr fyrstu
umferð er einnig lokið, Arnar
vann Gylfa í maraþonskák þeirra
og Kári hélt óvænt jöfnu gegn
Áskeli.
í B-flokki er Sigurjón Sigur-
björnsson efstur með 5 v., hefur
unnið allar sínar skákir. Annar er
Sveinbjörn Sigurðsson með 4 v.
Síðan koma þeir Skafti Ingimars-
son með 2,5 v. og Eymundur
Eymundsson 2 v. og biðskák.
í eftirfarandi skák teflir Gylfi
byrjunina ónákvæmt, fer út í af-
brigði sem hann þekkir hvorki
haus né sporð á, og Pálmi inn-
byrðir vinninginn af öryggi.
Hvítt: Pálmi R. Pétursson.
Svart: Gylfi Þórhallsson.
1. e4-c5
2. Rf3-e6
3. d4-cxd4
4. Rxd4-Rf6
5. Rc3-Bb4?! (Þetta er stór-
hættulegt afbrigði sem svartur
verður að kunna vel ef ekki á illa
að fara.)
6. e5-Rd5 (Ekki gengur að
leika 6. -Da5 7. exf6!-Bxc3
8. bxc3-Dxc3 9. Dd2-Dxal
10. fxg7-Hg8 11. Rb5-De5+12.
Be2 og hvítur stendur betur.)
7. Bd2-Bxc3?! (Betra er 7.
-Rxc3 8. bxc3-Be7 eða 8. -Ba5.)
8. bxc3-a6
9. Dg4-Kf8?!
10. c4-Re7
11. Bd3-Rbc6
12. Rf3-Dc7
13. Dg3-Rg6
14. Bc3-b6?? (Hér hefði svartur
átt að leika 14. -b5 og framhaldið
gæti orðið: 15. cxb5 (ekki
15. c5-b4 16. Bb2-Da5 og svartur
fær gott mótspil) 15. -axb5
16. Bxb5-Ba6 17. Bxa6-Hxa6
18. 0-0-Rge7 og svartur lifir! En
eftir textaleikinn fær svartur tap-
að tafl.)
15. h4-Rge7
16. Rg5-h6
17. Re4-Rf5
18. Df4-f6
19. g4-Rxe5
20. Bxe5 (Ekki 20. gxf5 vegna
-Rxd3 og hvíta daman fellur.)
-fxe5
21. Df3-d5
22. gxf5-dxe4
23. Bxe4-Ha7
24. fxe6-Ke7? (Skömminni
skárra var að leika 24. -Kg8 því
nú lendir kóngurinn í mátneti.)
25. Df7+-Kd6
26. Hdl +-Kc5
27. Hd5+-Kb4
28. Df3 (Hótar máti á b3.) -Dxc4
29. Hh3 (og nú á a3.) -Dxa2
30. Dc3+-Ka4
31. Ha5+-bxa5
32. Bc6 Mát. Lokastaðan verð-
skuldar stöðumynd.
Að lokum birtist hér skemmtileg
fórnarskák úr B-flokki.
Hvítt: Óli Gunnarsson.
Svart: Tómas Hermannsson.
1. d4-Rf6
2. c4-e6
3. RB-d5
4. a3-Be7
5. Rc3-0-0
6. Dc2-c5
7. e3-b6
8. Be2-Bb7
9. b3-Rbd7
10. Bb2-He8
11. dxc5-Bxc5?! (Betra var 11.
-Rxc5 eða -bxc5.)
12. b4-Bf8
13. h4-dxc4
14. 0-0-0! (Sniðugur leikur því
nú beinast öll spjót hvíts að
svörtu kóngsstöðunni.)
14. -Dc7
15. Rg5-h6? (Alger óþarfi, svart-
ur má ekki drepa riddarann því
þá opnast h-línan með skelfi-
legum afleiðingum. Nauðsynlegt
var að leika 15. -a6.)
16. Rb5- . . .
. . . Dc6.
17. Hxd7!-c3! (Ekki 17. -Dxd7
vegna 18. Bxf6.)
18. Bxc3-Dxd7
19. Bxf6-Hac8
20. Bc3-hxg5
21. hxg5-Hxc3
22. Rxc3-g6
23. Bb5-Bc6
24. Rd5!-Db7 (Ef 24. -exd5 eða
Dxd5 tapar svartur eftir 25.
Bxc6.)
25. Rf6-Kg7
26. Hh7 Mát.
*l K p <x O A s-
'AttCEU % 'h 1 1 1 1 / i
KÁRÍ k 1 6 1 3 +6 3
PÁtmi % % 1 r % 3
GVtFÍ o O ol i O 1 n
dóUG. o 6 o* ol li i
AKUilft o 0 •h. 11 0 ■r 4 4
Athygli skal vakin á því að vinningur fyrir ótefldu skákina úr fyrstu umferð
milli Pálma og Jóns Garðars er hér færður Pálma til tekna. Jón Garðar hef-
ur hins vegar áfrýjað þeim úrskurði.