Dagur - 06.02.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 6. febrúar 1985
Ungmennafélag Skríðuhrepps
Agætu félagar!
Aðalfundur félagsins verður haldinn 10. febrúar nk.
og hefst kl. 13.00.
Stjórnin.
Norska
Kennsla fyrir fullorðna í norsku verður á vor-
önn ef næg þátttaka fæst.
Kennt verður á fimmtudögum kl. 18-19.30.
Innritun fimmtudaga kl. 10-12 í síma 25413.
Námsflokkar Akureyrar.
Þar sem Bílasalinn sf. við Hvannavelli hefur verið
seldur nýjum aðilum frá og með 1. febrúar nk.
þá viljum við undirritaðir þakka hinum mörgu
viðskiptavinum okkar ánægjuleg samskipti
undanfarin ár.
Vonumst við til að nýir eigendur
megi njóta viðskiptanna framvegis.
Akureyri 1. febrúar 1985.
f.h. Bílasalans sf.
Gunnar Haraldsson
Haraldur Gunnarsson.
Við undirritaðir yfirtökum rekstur Bílasalans sf. við
Hvannavelli frá 1. febrúar nk.
Munum við leggja áherslu á góða þjónustu
í óbreyttri mynd en bjóða auk þess nýja bíla
frá Mitsubishi og British Leyland.
Vonumst við til að mega njóta áfram hins stóra
viðskiptahóps Bílasalans sf.
Höldur sf.
Tryggvabraut 12, Akureyri.
Hekla hf.
Laugavegi 170-172, Reykjavík.
FJÓRÐUNGSSAMBAND N0RÐLENDINGA
0G STJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS,
bjóða nú í annað skipti í vetur hið vinsæla:
ritaranámskeið
Markmið: Að auka hæfni ritara við skipulagn-
ingu, bréfaskriftir, skjalavörslu og önnur almenn
skrifstofustörf.
Efni: Bréfaskriftir og skjalavarsla, símsvörun og
afgreiðsla viðskiptavina, skipulagning og tíma-
stjórnun.
Þátttakendur: Þátttakendur þurfa að hafa nokkra
reynslu sem ritarar og innsýn í almenn skrif-
stofustörf.
Leiðbeinandi: Jóhanna Sveinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Nón hf.
Verð: Kr. 3.600 - fyrir félgsmenn í Stjórnunarfé-
lagi íslands. Kr. 4.500 - fyrir aðra.
Staður og tími: Sjallinn, Akureyri, 22.-23.
febrúar, kl. 9.30-17.30 fyrri daginn og kl. 9.00-
12.00 seinni daginn.
Skráning þátttakenda: Hjá Fjórðungssambandi
Norðlendinga, sími 22270 og 22453. Frestur til
að láta skrá sig á námskeiðið er til 15. febrúar.
f STAÐARNEM!
Öll hjól eiga að stöðvast
algerlega áður en ||uwhroar
að stöðvunarlínu ^
er komið.
Félag aldraðra
Þorrablótið
verður í Húsi aldraðra 16. febr. og hefst kl. 19.00.
Félagar vitji aðgöngumiða sinna þar þriðjudaginn 12.
febr. og miðvikudaginn 13. febr. kl. 14-18 báða daga.
Stjórnin.
r
UTBOÐ
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Tilboð óskast í innréttingar 3. áfanga VMA.
Áfanginn er 1248 fm að grunnfleti, ein hæð og
leiðslugangur.
í útboðsverkinu er innifalið:
1. Einangrun þaks.
2. Frágangur gólfa.
3. Innveggir (tréverk, múrverk og málning).
4. Hita-, neyslu- og loftræstilagnir.
5. Raflagnir.
Verkinu skal lokið 29. ágúst 1985.
Útboðsgögn afhent á skrifstofu byggingarnefndar
VMA, Kaupangi v/Mýrarveg frá 8. febrúar nk. kl.
14.00 gegn 5.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað þann 25. febrúar
nk. kl. 16.00.
Byggingarnefnd Verkmenntaskólans.
Rýmingamlan
er í fullum gangi.
Erum að rýma til fyrir nýjum
gerðum teppa og bjóðum því
gæðateppi á góðu verði.
Sem dæmi nefnum við:
★ Favorit
100% polyamid lykkjuofið
teppi á herbergi o.fl.
Verð aðeins kr. 299 pr m\
★ Slitsterk teppi
á stigaganga
og skrifstofur.
Verð frá kr. 329 pr. m\
★ Ribalo - Berber
20% ull - 80% acryl
á stofur, hol og herbergi.
Verð kr. 499 pr. m\
★ Kasahar - Berber
100% ull kr. 745 pr. m2.
Tilboð:
Verð kr. 559 pr. m2.
Takið með ykkur málin afgóIfOetinum.
Það tryggir skjóta og góða þjónustu.
Tepprlrnd
Sími 25055 • Tryggvabraut 22 • Akureyri
Dyngja
opin til
1. apríl
í Helgar-Degi var sagt frá fyrir-
hugaðri herrafataverslun Erlings
Aðalsteinssonar í Bautahúsinu,
þar sem Dyngjan var áður til
húsa. Petta er ekki alls kostar
rétt, því Dyngjan er enn á sínum
stað og verður verslunin opin til
1. apríl.
Aukin
viðskipti
við Græn-
lendinga
Við úrsögn Grænlands úr EBE
nú um áramótin, breytist staða
landsins verulega er varðar sam-
skipti þess við aðrar þjóðir sér-
staklega viðskipti og verslun svo
og sjávarútveg.
Grænland er samfélag í örum
vexti og mikill hugur er í nývakn-
aðri þjóð til átaka. Mikil upp-
bygging hefur átt sér stað á flest-
um sviðum nútíma þjóðfélags
undanfarin ár. íslendingar hafa
átt þar nokkurn hlut að máli, en
alltof lítinn.
Sannarlega má segja að fram-
tíðarmöguleikar landsins séu
miklir og þá aðallega í sjávarút-
vegi, námugreftri og jafnvel olíu-
vinnslu, og að ekki sé minnst á
yngstu atvinnugreinina, ferða-
mannaiðnaðinn, sem er ört vax-
andi. Stór hótel rísa til að mæta
sífellt vaxandi ferðamanna-
straumi og nýir flugvellir byggðir.
Rafvæðing byggða er ofarlega í
hugum manna og leitað hefur
verið til íslendinga til aðstoðar á
því sviði.
Á mörgum sviðum geta íslend-
ingar átt samvinnu við nágranna-
þjóðina í vestri, rétt eins og við
Færeyinga og hin Norðurlöndin.
Má þar nefna á sviði samgangna,
þá sérstaklega flugmála og þar
með ferðamála, sjávarútvegs og
sölu afurða, rafvæðingar, land-
búnaðar, auk mennta og menn-
ingarsamskipta, svo nokkuð sé
nefnt.
Aðalvandkvæðin í samskiptum
þjóðanna hafa e.t.v. verið
skortur á upplýsingum og fyrir-
greiðslu, enda ekki verið neinn
starfandi aðili á þessu sviði.
Nú hefur verið reynt að bæta
úr þessu, með stofnun fyrirtækis-
ins STOKKANES ApS, sem starf-
ar á sviði verslunar og viðskipta
og veitir auk þess hvers konar
fyrirgreiðslu og upplýsingar til
eflingar samskipta Jjjóðanna.
Heimilisfang fyrirtækisins er í
Narsaq, sem er ört vaxandi bær
á S.-Grænlandi í miðri Eystri-
byggð hinni fornu, í námunda við
Narsarsuaq flugvöll og hin feng-
sælu og íslendingum kunnu
Julianehábsmið og í byggð þar
sem heyra má íslensku talaða
meðal fólks í sveitum.
Þeim sem áhuga hafa á að
kynna sér nánar þá möguleika
sem hér um ræðir er velkomið að
skrifa fyrirtækinu. íslenska er
engin fyrirstaða og starfsmenn
fyrirtækisins eru í nánu sambandi
við stofnanir og fyrirtæki landsins
og eru reiðubúnir að veita allar
þær upplýsingar sem tiltækar eru
hverju sinni. Og heimilisfangið
er:
STOKKANES ApS
P.o. Box 75
DK3921 Narsaq
Grönland.