Dagur - 06.02.1985, Side 9
s ~ «<e?y<voi - H
r*or/.' -.t.Víi’oV
6. febrúar 1985 - DAGUR - 9
Sjónvarpað
í Höllinni
Eins og skýrt hefur verið frá,
verður Bautamótið í knatt-
spyrnu háð í íþróttahöllinni á
Akureyri um helgina.
Mótið hefst á laugardagsmorg-
un kl. 9 og verður leikið fram á
kvöld. Um miðjan dag er í sjón-
varpinu bein útsending frá An-
field Road í Liverpool þar sem
heimamenn taka á móti Arsenal
og verður sjónvarpstæki komið
fyrir í íþróttahöllinni svo leik-
menn og áhorfendur geti fylgst
með leiknum um leið og leikjun-
um í Bautamótinu. Urslitin í
Bautamótinu hefjast síðan kl. 10
á sunnudagsmorgun.
Körfubolti:
Tveir leikir á Akureyri í 1. deild,
Þór og UMFL leika í Höllinni kl.
20 á föstudag og í Skemmunni kl.
15.30 á laugardag.
Miklar breytingar hjá KA:
Mark og Hafþór
aftur til KS!
Gottlieb KonráðssoiV.
Það mun nú vera endanlega
ákveðið að Siglfírðingarnir
Mark Duffíeld og Hafþór Kol-
beinsson sem léku með KA í 1.
deildinni sl. sumar snúi heim
aftur, og klæðist búningi KS að
nýju.
Ljóst er að mjög miklar breyt-
ingar verða á liði KA sem féll í 2.
deild sl. haust. Auk þeirra Mark
og Hafþórs hafa þeir skipt um
félag Ormar Örlygsson, Hinrik
Þórhallsson, Birkir Kristinsson
varamarkvörður og Bjarni Jó-
hannsson, og heyrst hefur að
Þórarinn Þórhallsson muni ekki
leika með KA þó það hafi ekkí
verið staðfest.
Hins vegar er vitað um fjóra
Bikarmót í skíðagöngu:
Gottlieb var í al-
gjörum sérflokki
Fyrsta Bikarmót ársins í skíða-
göngu var haldið á Siglufírði
Námskeið
í karate
Nú er nýhafíð í íþróttahöllinni,
byrjendanámskeið í karate.
Kennt er þrjá daga vikunnar,
mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga frá kl. 18 til 19.15.
Að sögn Magnúsar Sigþórs-
sonar, leiðbeinanda (svart belti
2. Dan) þá eru kennd undir-
stöðuatriði karate á þessu nám-
skeiði. Þeir sem ljúka námskeið-
inu geta farið í framhaldsflokk-
inn síðar meir en nú er einmitt
framhaldsnámskeið í gangi sem
er opið öllum þeim sem stundað
hafa karate og lokið hafa undir-
búningsnámskeiðinu. Kennt er á
sömu dögum en tímarnir hefjast
kl. 19.30.
Það er Karatefélag Akureyrar
sem stendur fyrir þessari kennslu
en félagið er nú komið í nýtt hús-
næði í íþróttahöllinni. - ESE
um helgina. Þar mætti 31
keppandi til leiks og voru þeir
frá ísafírði, Fljótum, Siglu-
fírði, Ólafsfirði og Akureyri.
Mótið var haldið við Hól, og
var í tengslum við mótið tek-
in í notkun búnings- og bað-
aðstaða þar á staðnum. Að-
stæður voru góðar, gott færi og
gott veður. Úrslit í hinum
ýmsu flokkum urðu:
Karlar 20 ára og eldri, 20 km:
mín.
Konur, 5 km:
1. Guðrún Pálsdóttir S 19,43
Stúlkur 16-18 ára, 3,5 km:
1. Stella Hjaltadóttir í 13,31
Stúlkur 13-15 ára, 2,5 km:
1. Auður Ebenesard. í 10,49
2. Ósk Ebenesard. í 11,20
3. Eyrún Ingólfsd. í 12,07
menn sem KA fær sennilega í
sínar raðir. Þar er fremstur í
flokki markakóngurinn Tryggvi
Gunnarsson sem skoraði grimmt
með ÍR í 4. deild og 2. flokki sl.
sumar, Þróttarinn Þorvaldur Þor-
valdsson hefur tilkynnt félaga-
skipti í KA og allt bendir til þess
að Helgi Jóhannsson komi frá
Árroðanum. Þá eru miklar líkur
á því að markvörðurinn Her-
mann Haraldsson sem leikið hef-
ur í Danmörku verði með KA í
sumar.
Það þarf ekki að fjölyrða um
að það að fá Mark og Hafþór er
hvalrcki á fjörur Siglfirðinga, en
í herbúðum þeirra er mikill hug-
ur í mannskapnum þessa dagana.
Þeir hafa engan leikmann misst
frá sl. keppnistímabili, en þá var
KS í fremstu röð í 2. deild. Þeir
ættu því að hafa alla burði til að
blanda sér af alvöru í baráttuna í
sumar.
Og ekki má gleyma Völsung-
um, liðinu sem svo oft hefur
vantað herslumuninn. Þangað
hafa leikmenn komið sem vænta
má mikils af, eins og Skaga-
mennirnir Sigurður Halldórsson
og Jón Leó Ríkharðsson, Breiða-
bliksmaðurinn Ómar Rafnsson er
einnig á leiðinni til Húsavíkur og
er því ljóst að Völsungarnir
verða geysisterkir í sumar.
Fjórða liðið á Norðurlandi,
sem leikur í 2. deild, Leiftur frá
Ólafsfirði, sem sigraði í 3. deild
á sl. keppnistímabili mun byggja
á heimamönnum, en Leiftur hef-
ur verið eitt mesta „sputniklið“ í
íslenskri knattspyrnu tvö sl.
sumur.
1. Gottlieb Konráðss. Ó
2. Haukur Eiríksson A
3. Ingþór Eiríksson A
Drengir 17-19 ára, 10 km:
1. Bjarni Gunnarsson í
2. Ólafur Valsson S
3. Sigurgeir Svavarss. Ó
Drengir 15-16 ára, 7,5 km:
1. Ingvi Óskarsson Ó 27,03
2. Baldur Hermannsson S
3. Rögnvaldur Ingþ.son í
Drengir 13-14 ára, 5 km:
1. Sölvi Sölvason S 18,27
2. Magnús Erlingsson S 18,57
3. Óskar Einarsson S 19,51
48,38
52,17
54,53
35,06
35,25
36,33
27,22
27,53
r Siglufjörður:
Ólafur íþrótta-
maður ársins
Ólafur Helgi Valsson, 17 ára
skíðagöngumaður, var kjörinn
„íþróttamaður ársins 1984“ á
Siglufirði, en það er Kiwanis-
klúbburinn Skjöldur sem
stendur fyrir þessu kjöri.
Ólafur vann mörg góð afrek á
Siglfirðingar ánægðir:
Hogdson kemur
- og markvörður frá Tindastóli
„Við erum himinlifandi
með þessa lausn á málinu,
Hogdson er okkar drauma-
þjálfari og sá besti sem við
höfum haft fram til þessa,“
sagði Karl Pálsson formað-
ur KS á Siglufirði er við
ræddum við hann í gær.
Eins og skýrt var frá í Degi sl.
mánudag benti ekkert til þess
að Skotinn Billy Hogdson sem
hefur þjálfað KS undanfarin ár
myndi verða með liðið í sumar,
og reyndar hafði hann gefið
afsvar með það.
Siglfirðingar voru því komnir
á fulla ferð við að leita sér að
þjálfara, og leituðu bæði innan-
lands og í Skotlandi. Málin
breyttust síðan heldur betur í
fyrrakvöld en þá tilkynnti
Hogdson Siglfirðingum að hann
væri hættur við að hætta við að
koma til þeirra. Siglfirðingar
eru því himinlifandi þessa dag-
ana.
Ekki ætti ánægja þeirra að
minnka við þær fregnir sem að
vísu eru óstaðfestar að Gísli
Björnsson markvörður frá
Sauðárkróki er lék með Tinda-
stóli í 2. deild sl. sumar hyggist
leika með KS. Gísli er ungur
markvörður sem vakti athygli
með góðum leikjum í marki
Tindastóls, og þar fá Siglfirð-
ingar góðan mann.
Ómar Guðmundsson sem
leikið hefur í marki KS mun
ekki leika með liðinu í sumar,
og hefur heyrst að hann hafi til-
kynnt félagaskipti yfir í KA.
sl. ári. Hann varð íslandsmeistari
í skíðagöngu 15-16 ára og einnig
sigraði hann er hann „keppti upp
fyrir sig“ í flokki 17-19 ára. Hann
varð bikarmeistari SKÍ í flokki
15-16 ára og að sjálfsögðu Siglu-
fjarðarmeistari.
f öðru sæti t' kjörinu varð Ólaf-
ur Þ. Ólafsson fyrirliði KS, Guð-
rún Pálsdóttir göngukona varð
þriðja, Hörður Júlíusson knatt-
spyrnumaður fjórði og Særún
Jóhannsdóttir sem keppir í bad-
minton og blaki í 5. sæti.
áMÉÉ
Ólafur H. Valsson.
1—X—2
-
Guðjón H. Sigurðsson.
Nær hann
„fullu
húsi“?
Guðjón H. Sigurðsson sem
spáir að þessu sinni er aðdá-
andi Newcastle en þeir eru
ekki í „kippum" hér á landi.
Guðjón tekur yfirleitt þátt í
getraunum og tvær síðustu
vikurnar hefur hann státað af
11 leikjum réttum. Hver veit
nema herslumunurinn komi
að þessu sinni og hann standi
uppi með „fullt hús“ á laugar-
dag.
Á seðlinum núna eru 9 leik-
ir úr 1. deild og þrír úr 2.
deild, og spá Guðjóns er sem
hér segir:
Coventry-Everton 2
Ipswich-Leicester 1
Liverpool-Arsenal x
Newcastle-Man.Utd. 1
N.Forest-QPR 1
Stoke-Norwich 1
Tottenham-Sheff.Wed. 1
Watford-W.Ham x
WBA-Sunderland x
Barnsley-Portsmouth 2
Leeds-Grimsby 1
Schrewsbury-Huddersf. 2
Kristján úr leik
Kristján Arngrímsson Wat-
ford-aðdáandi með meiru reið
ekki feitum hesti frá viðureign
sinni við síðasta getraunaseðil.
Kristján var ekki nema með 4
leiki rétta og er því ljóst að
ekki kemst hann í úrslit.
Guðmundur Frímannsson
heldur forustunni með 10 leiki
rétta, Hinrik Þórhallsson er
með 9, Sigurður Pálsson með
6 og síðan koma nokkrir með
5 leiki rétta.
Þeir fjórir sem bestum ár-
angri ná munu fara í sérstaka
úrslitakeppni og spá þá allir í
nokkrar vikur. Einnig er í at-
hugun að jafnframt þeirri
keppni verði um keppni við
fjóra efstu spámenn blaðsins
„Víkurfrétta" í Keflavík að
ræða, en í því blaði er get-
raunaþáttur með sama sniði
og í Degi. Verður nánar til-
kynnt um þetta síðar.
1—X—2