Dagur - 18.03.1985, Side 3
18. mars 1985 - DAGUR - 3
„Viljum fresta fram-
kvæmdum við Síðuskóla“
- og útbúa kennsluaðstöðu i Glerarkirkju, segir Gunnar Ragnars
fulltrúi Sjálfstæðisflokks í bæjarstjórn Akureyrar
Síðari umræða um tjárhags-
áætlun Akureyrarbæjar í
bæjarstjórn fer fram á
morgun. Sjálfstæðismenn sem
eru í minnihluta hafa borið
fram nokkrar breytingartil-
lögur við áætlun meirihlutans,
og við spurðum Gunnar Ragn-
ars bæjarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins hverjar væru helstar
þeirra.
Gunnar sagði að sjálfstæðis-
menn legðu mikla áherslu á að
þess verði freistað að ná fram
sparnaði á rekstrarliðum og hluta
þess sem kallað er gjaldfærður
stofnkostnaður. Pessi liður nem-
ur um 300 milljónum króna og
þar vilja sjálfstæðismenn ná fram
um 7 milljóna króna sparnaði.
„Þá höfum við sjálfstæðismenn
lagt til að frestað verði byggingu
við 2. áfanga Síðuskóla," sagði
Gunnar. „Þess í stað verði teknar
upp viðræður við byggingarnefnd
Glerárkirkju en nefndin hefur
lýst sig reiðubúna til þess að skila
jarðhæð suðurálmu kirkjunnar
tilbúinni fyrir kennslu í haust. í
þetta myndum við leggja 4 millj-
ónir sem yrðu fyrirfram greidd
leiga bæjarins fyrir afnot af þessu
húsnæði í nokkur ár.
Pá viljum við að ráðist verði í
byggingu sundlaugar við Glerár-
skóla. Börnum úr þessu hverfi er
ekið suður í sundlaug til sund-
kennslu og það er nauðsynlegt að
koma upp sundiaug í hverfinu.
Við viljum að hafist verði handa
um byggingu búningsaðstöðu og
kennslusundlaugar og í þetta
verði varið 11,5 milljónum á ár-
inu með það fyrir augum að ljúka
þessu verkefni árið 1986.
- Þá hafa sjálfstæðismenn lagt
til að framlag bæjarins til Fjórð-
ungssjúkrahússins verði hækkað
úr einni milljón í 1,5 milljón
vegna endurbóta á dagvistunar-
heimilinu sem sjúkrahúsið rekur,
2,5 milljón króna aukning verði
á framláginu til Dvalarheimilisins
Hlíðar og framlag til
Verkmenntaskólans verði aukið
um 4 milljónir til þess að ná æski-
legum byggingaráföngum í þessu
verkefni. -gk
Blomberq
Stílhrein hágæða heimilistæki
2ja ára ábyrgð
Komið og gerið kjarakaup í nýju
versluninni Raf í Kaupangi.
NYLAGNIR
VIDGERDIR
VERSLUN
Kaupangi v/Mýrprveg. Sími 26400.
Verslið hjá fagmanni.
AKUREYRINGAR
Pantið tímanlega teppahreinsun fyrir paskana.
Vönduð vinna, hagstætt verð.
Teppahreinsun Guðmundar sími 25851.
Ólafsfjörður.
Ólafsfjöröur:
„Forsetaheimsókn“
- hjá leikfélaginu
Nú eru rúmlega 20 nemendur
9. bekkjar Gagnfræðaskólans
í Ólafsfirði og framhaldsdeild-
in í þriggja daga starfskynn-
ingu á Akureyri. Þegar nem-
endur snúa síðan aftur í hið
venjulega skólastarf hefjast
æfingar fyrir árshátíð skólanna
sem verður 29. mars nk.
Mikið félagslíf er innan skól-
ans og er starfræktur skákklúbb-
ur, ljósmyndun og borðtennis og
í athugun er stofnun skólakórs.
Á dögunum var haldið tölvu-
námskeið á vegum námsflokk-
anna og var það vel sótt, bæði af
unglingum og fullorðnum. Tón-
skóli er einnig á staðnum og nem-
endafjöldi er rúmlega 50. Kenn-
arar eru hjónin Colin og
Stephanie Harper frá Bretlandi.
Leikfélag Ólafsfjarðar sýndi
um daginn leikritið „Forseta-
heimsóknin" og var því vel tekið.
Leikhópurinn sýndi leikinn aust-
ur í Skúlagarði og í ídölum. Að
sögn Guðbjörns Arngrímssonar
hjá Leikfélagi Ólafsfjarðar stend-
ur kannski til að fara með leikinn
víðar.
Félagsiíf í bænum er með ágæt-
um og tvær hljómsveitir eru starf-
ræktar. Árshátíð frystihúsanna
verður haldin um nk. helgi 16.
marS' ERÞ/GPJ/RSG
í starfskynningu.
Bridgekeppni HSÞ:
Sveit Guðlaugs
Sveit Guðlaugs Bessasonar. Aftari röð f.v. Brynjar Sigtryggsson, Guðlaugur
sveitarforingi, og Pétur Skarphéðinsson. Sitjandi f.v. Óli Kristinsson og
Guðmundur Hákonarson. Mynd: Arnar
sigraði
Sveit Guölaugs Bessasonar frá
Húsavík varð nýlega héraðs-
meistari HSÞ í sveitakeppni í
bridge. 14 sveitir tóku þátt í
þriggja daga keppni og eftir
harða keppni gátu þeir Guð-
laugur og félagar hampað bik-
arnum 2. árið í röð. Sveitin fékk
samtals 708 stig en í öðru sæti
varð sveit Þóru Sigurmundsdótt-
ur sem spilaði vel síðasta daginn
og fór úr 7. sætinu og upp í 2.
sætið.
Vorum að taka upp
barnabuxur í þremur litum
með mörgum vösum.
Sannkallaðar tískubuxur.
Verð kr. 780,-
SIKONDIN
EIMSKIP
Eimskip annast reglubundnar siglingar á átta hafnir innanlands auk afgreiðslu á vörum meö
Herjólfi til og frá Vestmannaeyjum.
Áætlun
Slglingaleið sklpanna:
Aðra hverja vlku:
MAnafost: Reykjavik - laatjörður - Akureyri - Húsavik -
laafjðrður - Patreksfjörður - Reykjavik.
Ménafoaa: Reykjavik - Isafjörður - Akureyri - Síglufjörður
- SauðárkrOkur - Isafjðrður - Reykjavlk.
Skandinavluakip: Reykjavik - Reyðarfjörður (á leið til
Norðuriandanna).
Oaglaga:
Harjúlfur: Vaatmannaeyjar - Þortákahöfn - Vestmannaeyjar
Tlðni áatlunaralglinga:
Oagl^ Tvlavar I vlku Vlkulega Aftra hverja vlku
Þoriákshúln Vostmannaeyjar Reykjavlk lsa((úrúur Akureyri Siglufjúröur SauftArkrókur Husavik Patreksfjúrftur Reyftartfúrftur
Vöruafgreiðslur
Reykjavík:
Tekið er á móti smœrri sendingum I Klettsskála við Köllunarklettsveg
frá klukkan 8:00 til 17:00 alla virka daga. Stærri sendingum og heilum
gámum er veitt móttaka ( strandflutningaskála f Sundahöfn frá klukkan
8:00 til 17:00 alla virka daga. Á mánudögum, til klukkan 10:00 á
morgnana, er tekið á móti sendingum sem fara eiga með skipi
samdægurs.
Símar:
(91) 686464 - Klettsskáli, eða (91) 27100
(91) 27100 - Strandflutningaskáli f Sundahöfn.
(ufjörður:
Vöruafgreiðsla f Vöruhúsinu við Asgeirsgötu frá klukkan 9:00 til klukkan
17:00 alla virka daga.
Umboðsmaður: Tryggvi Tryggvason.
Sfmar:
(94) 4556 - Vöruhús, (3055 - heimasími verkstjóra),
(94) 3126/4555 - Skrifstofa, (3962)
Akureyrl:
Vöruafgreiösla er i Oddeyrarskála við Strandgötu frá klukkan 8:00 til
17:00 alla virka daga.
Umboösaðili: EIMSKIP (Krístinn Jón Jónsson).
Slmar: (96) 24131 - skrifst., 21725 - Oddeyrarekáli, (24171).
Húsavfk:
Vðruafgreiðsla er hjá Skipaafgreiðslu Húsavíkur hf. við Húsavlkurhöfn
alla virka daga frá kl. 8:30 til 17:00.
Umboðsaðili: Skipaafgreiðsla Húsavlkur hf. (Ámi G. Gunnareson,
Hannes Höskuldsson).
Simar: (96) 41020, (41730 - ÁG. 41633 - HH)
(Til 1. febr. 1985 er vöruafgreiösla hjá Skipaafgreiöslu Kaupfólags
Þingeyinga frá kl. 8:30 til 17:00. Slmar: (96) 41680, (41287).)
Veatmannaeyjar:
Vöruafgreiðsla EIMSKIPS, Tangagötu 7, alla virka daga frá klukkan 8:00
til 17:00.
Umboðsaðili: Gunnar Ólafsson & Co. hf. (Gísli Guðlaugsson).
Simar: (98) 1051, (1894).
Vöruafgreiðsla Herjólfs, Básaskerebryggju 10, alla virka daga frá klukkan
08:00 til 12:00 og 13:00 til 17:00.
Slmar: (98) 1838 - vöruafgr., 1792 og 1433 - skrifst.
Siglufjörður:
Vöruafgreiðsla vlð Hafnarbryggju.
Umboðsaðili: Þormóður Eyjólfsson hf. (Hermann Jónasson).
Slmar: (96) 71129, (71248).
Patreksfjörður:
Vóruafgreiösla er I vöruskemmu kaupfólagsins við höfnina ó milli klukkan
8:00 og 19:00 alla virka daga.
Umboðsaðili: Kaupfólag Vestur-Barðstrendinga (Bjami Sigurjónsson,
Kristinn Fjeldsted).
Slmar: (94) 1201 - skrifst., 1203 - skemma, (1130 - BS. 1328 - KF).
Sauðárkrókur:
Vöruafgreiösla er I Eyrarekála alla virka daga frá klukkan 9:00 til 18:00.
Umboðsaðili:
Kaupfélag Skagfiróinga (Fríðrík Guðmundsson).
Slmar: (95) 5200, (5352).
Reyðarfjörður:
Vöruafgreiðsla er á Búðareyri 25 alla virka daga frá kiukkan 8:00 til 17:00.
Umboðsaöili: Lykill hf. (Sigurður Aðalsteinsson).
Slmar: (97) 4199, (4350)