Dagur - 18.03.1985, Side 8
8 - DAGUR - 18. mars 1985
DAGS-MÓTIÐ DAGS-MÓTIÐ DAGS-MÓTIÐ DAGS-MÓTIÐ DAGS-MÓTIÐ DAGS-MÓTIÐ
Dags-mótiö í kraftlyftingum
var íþróttaviðburður helgar-
innar á Akureyri og það er
ósennilegt að mörg íþróttamót
á landsvísu hafi komist í hálf-
kvisti við það þessa helgi.
Orðið metaregn er oftast
notað til að lýsa því ef mörg
met eru sett á mótum en miðað
við það þarf að grípa til sterk-
ari lýsingarorða. Metasteypi-
regn væri nær sanni. 17 ís-
landsmet, þar af 15 í kvenna-
flokki, tvö unglingamet og 26
Akureyrarmet eru staðreyndir
sem tala sínu máli. Það var auk
þess frábær stemmning í Dyn-
heimum á mótinu. Fjölmargir
áhorfendur og þegar mikið lá
við sem var næstum í hverri
lyftu, „þrusaði“ plötusnúður-
inn laginu „The eye of the
tiger“ úr kvikmyndinni Rocky
III á fóninn þannig að þakið
ætlaði af húsinu.
Nú getur fólk farið að telja
dagana. Næsta Dags-mót verð-
ur haldið eftir tæpt ár. - ESE
Hjalti Úrsus Árnason fagnar „heimsmetsþyngd“.
Myndir: KGA
'
: '.'.V
1
m
tíar,í-(Htr5t>
Laufey Kristjánsdóttir.
Valdís Hallgrímsdóttir.
Aðalsteinn Kjartansson
Víkingur Traustason - tröllslegt afrek,
Jóhannes M. Jóhannesson
ingamet.
Kári fagnar bekkpressumetinu,
Sauðkrækingar sömdu
við Brunabótafélagið
Nýlega var gengið frá samningi
milli bæjarstjórnar Sauðárkróks
og Brunabótafélags íslands um
alhliða vátryggingarvernd félags-
ins fyrir kaupstaðinn. Er hér um
að ræða svokallaðan „sveitar-
stjórnarpakka BÍ“.
Auk hefðbundinna trygginga
á fastéignum, lausafé óg starfs-
fólki, er í pakkanum víðtæk
ábyrgðartrygging gagnvart atvik-
um, sem bærinn kann að vera
skaðabótaskyldur gagnvart
þriðja aðila. Pá felur pakkinn í
sér það nýmæli, að öll skólabörn
í bænum eru slysatryggð á skóla-
tíma og á leið úr og í skóla. Nær
sú tryggingarvernd einnig til
þeirrar starfsemi, sem er á vegum
bæjarins á sumrin fyrir börn á
skólaskyldualdri. Með samningi
þessum er Sauðárkrókur kominn
í hóp þeirra fjölmörgu sveitarfé-
laga, sem gert hafa slíkan vá-
tryggingarsamning við Bruna-
bótaíélagið.
Á fundi, sem haldinn var þ. 10.
janúar með bæjarstjórn Sauðár-
króks, gerði Ingi R. Helgason
forstjóri BÍ grein fyrir þeirri
endurskoðun, sem gerð var á
brunabótamati fasteigna á Sauð-
árkróki á sl. hausti. Voru þá
endurskoðaðar vátryggingarfjár-
hæðir allra fasteigna í bænum og
leiddi það til verulegra leiðrétt-
inga á mörgum húseignum. Við
þetta hækkaði heildarmat til
brunabóta um 18,6%. Má segja,
að með þeirri endurskoðun og
hinum nýja samningi séu vátrygg-
ingarmál þau, sem snúa að bæjar-
stjórn, í góðu horfi.