Dagur - 10.06.1985, Blaðsíða 7
6 - DAGUR - 10. júní 1985
10. júní 1985 - DAGUR - 7
- í keppninni um
Hörkukeppni var um verðlaunasætin
í keppninni um Gullsmiðabikarinn
hjá Golfklúbbi Akureyrar um helg-
ina. Leikinn var fjórleikur, tveir og
tveir saman og taldi betri árangur
þeirra á hverri holu.
Leiknar voru 36 holur með fullri for-
gjöf og þegar keppnin var hálfnuð á
föstudagskvöld voru mörg „lið“ með
sama skor, 33 högg, og enn fleiri alveg
fast þar á eftir.
Síðari hluti keppninnar var leikinn í
gær, og þegar upp var staðið í leikslok
Gullsmiðabikarinn
höfðu þeir unnið sigur Árni Ketill Friðr-
iksson og Pétur Sigurðsson en þeir léku
36 holurnar á 124 höggum sem er mjög
þokkalegur árangur. Tveimur höggum
þar á eftir voru svo Heimir Jóhannsson
og Árni Björn Árnason en í 3.-4. sæti
voru tvö „lið“, annars vegar Guðni Jóns-
son og Ragnar Lár, og hins vegar Jón B.
Árnason og Birgir Marinósson.
Þeir fóru í „bráðabana" á 18. holunni
og þar náðu þeir Birgir og Jón að knýja
fram sigur en Guðni og Ragnar sátu eftir
með sárt ennið án verðlauna.
Góður sigur
Þórsstúlkna
Þórsstelpurnar gerðu góða ferð til
ísafjarðar um helgina er þær héldu
þangað og léku gegn ÍBÍ í 1. deild ís-
landsmótsins í knattspyrnu.
Pór hélt heimleiðis með öll stigin úr
leiknum og er liðið nú í efsta sæti 1.
deildar ásamt Breiðabliki, bæði liðin
hafa unnið báða sína leiki. Hætt er þó
við að róðurinn eigi eftir að þyngjast
hjá Þórsstúlkunum þegar þær fara að
mæta sterkari liðunum.
Mörk Þórs á ísafirði skoruðu Anna
Einarsdóttir 2 og Kolbrún Jónsdóttir 1.
Mark ÍBÍ var skorað úr vítaspyrnu.
Næsti leikur Þórs er um aðra helgi
gégn KR í Reykjavík, en KA sem einnig
leikur í 1. deild á heimaleik um næstu
helgi gegn Val, á laugardag.
Ljubo Lazic
þjalfar hjá KA
Handknattleiksdeild KA hefur
gert samning við júgóslavnesk-
an þjálfara, Ljubo Lazic að
nafni um að þjálfa hjá félaginu
næstu tvö keppnistímabil. Frá
þessu var gengið um helgina,
en Lazic er staddur á Akureyri
um þessar mundir.
Lazic mun sjá um þjálfun allra
flokka hjá KA og mætir til starfa
í júlí. Hér er á ferðinni mjög fær
maður í sínu starfi. Hann lék
sjálfur handknattleik og var í
landsliði Júgóslavíu, en eftir að
hann hætti sjálfur að leika hand-
knattleik hefur hann þjálfað í
Júgóslavíu, Sviss og Frakklandi
þar sem hann e:r búsettur um
þessar mundir.
Lazic er einn fárra þjálfara sem
hafa leyfi frá alþjóða handknatt-
leikssambandinu til að halda al-
þjóðleg námskeið fyrir þjálfara
og það eitt sýnir að hér er á ferð-
inni mjög fær maður. í kvöld
verður hann með æfingu í
íþróttahöllinni kl. 18.30 hjá
meistaraflokki og þangað eru all-
ir leikmenn handknattleiksdeild-
ar KA úr öllum flokkum hvattir
til að mæta og fylgjast með.
Þess má að lokum geta að Jó-
hann Ingi Gunnarsson, Alfreð
Gíslason og Handknattleikssam-
band íslands voru KA til aðstoð-
ar við þessa ráðningu, og sagði
Jóhann Karl Sigurðsson formað-
ur handknattleiksdeildar KA að
hann væri mjög ánægður með
hinn nýja þjálfara og miklar von-
ir væru við hann bundnar.
Coca Cola-
mót að Jaðri
Eitt af stærri innanfélags-
mótum golfmanna á Akureyri
verður um næstu helgi, en það
Coca Cola keppnin
er
sem
Grétar var í
Australeikmaðurinn Grétar
Ævarsson gleymir sennilega
ekki strax leiknum við Val í 3.
deildinni á laugardag. Hann
skoraði sjálfur tvö mörk,
dæmd var á hann vítaspyrna
sem skorað var úr og eitt
marka Valsmanna kom eftir
mistök Grétars.
Úrslit leiksins urðu 3:3 og það
voru Valsmenn sem skoruðu tvö
fyrstu mörkin gegn gangi leiks-
ins. Fyrst var dæmt víti á Grétar
sem Gústaf Ómarsson skoraði úr
og annað mark Vals kom er
Grétar átti of stutta sendingu á
markvörðinn, Lúðvík Vignisson
komst á milli og skoraði af ör-
ygg'-
Arinbjörn Guðmundsson
minnkaði muninn í 1:2 með góðu
marki með hjólhestaspyrnu og
þannig var staðan í hálfleik 2:1
fyrir Val. í síðari hálfleik jók
Valur muninn í 3:1 með marki
Jóns Sveinssonar en Grétar
Ævarsson tók þá til sinna ráða og
tvö mörk
jafnaði
skoraði
metin.
Austramenn voru betri aðili
leiksins og verðskulduðu fyllilega
að ná jafnteflinu og ekki hefði
verið mjög ósanngjarnt að þeir
hefðu sigrað. En það eru mörkin
sem gilda og 6 mörkum skiptu
liðin jafnt á milli sín.
Hörkuleikur
á Sigló
Hörkuleikur verður á Siglu-
firði á laugardag er heima-
menn og Völsungar frá Húsa-
vík mætast þar í 2. deildinni.
Það er ekki að efa að þar verð-
ur mikið tekið á og ekkert gefið
eftir. Völsungar eru með 6 stig
eftir þrjá fyrstu leiki sína, hafa
unnið tvo leiki, en KS er með 4
stig, sigur, jafntefli og tap í þrem-
ur fyrstu leikjum sínum.
fram fer á laugardag og sunnu-
dag.
Leiknar verða 36 holur með og
án forgjafar, keppnin hefst kl. 10
á laugardag og verður framhald-
ið á sunnudag kl. 9. Skráning er í
golfskálanum til föstudagskvölds.
Staðan
KA
UBK
Völsungur
KS
UMFN
Fylkir
UMFS
Leiftur
3:1
7:3 7
Staðan í 2. deild íslandsmótsins
knattspyrnu er nú sem hér segir:
KA-Fylkir
ÍBV 3
ÍBÍ 3
3
3
3
3
3
3
3
3
Stefan hefur skorað 2. mark sitt og KA og Njáll fagnar honum vel. Fylldsmenn liggja ■ valnum og sá lengst til hægri er enn að beijast við að ná jafhvægi. Mynd: KGA
KA-menn bættust í
hóp efstu liöanna
- með sanngjörnum 3:1 slgri á Fylki á aðalvellinum á Akureyri á laugardaginn
KA krækti sér í 3 mikilvæg stig
í 2. deildinni um helgina er lið-
ið sigraði Fylki 3:1 í fyrsta leik
sumarsins á fagurgrænum og
góðum aðalleikvellinum á Ak-
ureyri. Sigur KA var fyllilega
sanngjarn, liðið mun betra en
andstæðingurinn og KA er að-
eins einu stigi á eftir efstu lið-
unum og það virðist stefna í
hörkubaráttu 6 liða á
toppnum.
Stórleikur verður í 1. deildinni en Þór 6.
Fyrsta mark leiksins kom á 15.
mínútu. Góð sókn KA upp miðj-
una og henni lauk með því að
Steingrímur Birgisson gaf á Stef-
án Ólafsson sem skoraði örugg-
lega af fremur stuttu færi.
Stefán skoraði einnig annað
mark KA þegar um stundarfjórð-
ungur var liðinn af síðari hálfleik.
Falleg sókn KA upp hægri
kantinn, Njáll fór með boltann
upp að endamörkum, gaf fyrir og
Stefán var réttur maður á réttum
stað og skoraði með viðstöðu-
lausri spyrnu.
Þegar um 10 mín. voru til
leiksloka minnkaði Fylkir mun-
inn í 2:1. Hornpyrna og Kristján
Guðmundsson skoraði með lag-
legum skalla. Rétt á eftir skoruðu
Fylkismenn annað skallamark
sem dæmt var af vegna rangstöðu
og þar rétt á eftir kom endahnút-
urinn hjá KA. Tryggvi óð upp
völlinn með boltann eftir góða
sendingu frarn. hann hljóp varnar-
menn af sér og skoraði af öryggi
framhjá markverði Fylkis sem
kom út á móti.
Það var ekki spurning að sigur
KA var sanngjarn, en liðið verð-
ur þó að gera betur gegn sterkari
andstæðingum. Þó er oft ágætt
spil á leiðinni en það verður ekki
ntikið úr því þegar kemur nær
markinu og í þessum leik voru
marktækifærin ekki miklu fleiri
en mörkin. Þó átti Njáll gott skot
í upphafi síðari hálfleiks eftir
eina laglega sóknarlotuna en það
var vel varið.
KA-liðið var nokkuð jafnt í
þessum leik og erfitt að tína einn
eða tvo leikmenn út úr. Miðjan
var sterk og sömuleiðis virkaði
aftasta vörnin góð en þarf þó að
valda betur á stundum.
á Akureyri á föstudagskvöldiö
þegar Þórsarar fá Valsmenn í
heimsókn. Liðin leika kl. 20 og
veröur þetta fyrsti heimaleikur
Þórs á aðalleikvellinum á Ak-
ureyri í sumar.
Þórsarar hafa nú leikið fjóra
leiki í 1. deild, tvo úti og tvo
heima. Útkoman er 50%, sigrar
í heimaleikjunum en tveir ósigrar
á útivöllum.
Þórsarar mega því ekki við að
tapa fleiri stigum í bráð ef þeir
ætla sér að vera í hópi efstu liða
deildarinnar. Valsmenn hafa
einnig leikið fjóra leiki, unnið
tvo, gert eitt jafntefli og tapað
einum leik og eru því með 7 stig
Fyrir mótið var Valsmönnum
spáð mikilli velgengni í mótinu
og ef liðið hefði ekki tapað óvænt
fyrir Víkingi í 1. umferð mótsins
væri liðið nú í efsta sæti deildar-
innar ásamt Fram, en Valur og
Fram hafa gert innbyrðis jafn-
tefli.
Róðurinn getur því orðið erf-
iður hjá Þór, en ef leikmenn liðs-
ins mæta með réttu hugarfari til
leiksins staðráðnir í að sigra og
hafa fyrir þeim sigri ættu þeir að
eiga góða möguleika. Þar geta
áhorfendur að sjálfsögðu haft
mikið að segja með því að styðja
vel við bakið á liðinu á heima-
velli.
KA mætir
UMFN næst
Óskar Gunnarsson lék sinn 200. m.fl. Þórs gegn liði KSÍ sl. föstudag og var heiðraður fyrir leikinn. - Óskar verður í eldh'nunni
gegn Val á föstudagskvöld. Uð KSI vann 5:1 sigur Mynd: KGA
Næsti leikur KA í 2. deildinni
er á laugardag, en þá fær liðið
UMFN i heimsókn.
KA vann góðan sigur gegn
Fylki um helgina eins og sagt er
frá hér að ofan, og vonandi nær
liðið að fylgja honum eftir á laug-
ardaginn og koma sér þannig vel
fyrir við toppinn áður en lengra
verður haldið.
Ólafsfjarðarliðið Leiftur sem
leikur nú í fyrsta skipti í 2. deild
og hefur átt erfitt uppdráttar á að
fara til Eyja og leika við topplið
ÍBV.
Ein-
herjar
í ham
Einherjamenn fóru hamförum
er þeir mættu Hugin frá
Seyðisfirði í 3. deildinni um
helgina. Úrslitin urðu 7:1 og
hefðu mörk Vopnfirðinganna
hæglega getað orðið á annan
tuginn, svo miklir voru yfír-
burðir þeirra í leiknum.
Staðan í hálfleik var 3:1 og
þegar ljóst að Einherji rnyndi fá
sín fyrstu stig í mótinu. Marka-
skorarar þeirra voru Kristján
Davíðsson sem skoraði 4, þar af
tvö úr vítum, Baldur Kjartans-
son, Stefán Guðmundsson og
Steindór Sveinsson skoruðu allir
eitt mark. Markaskorari Hugins
var Kristján Jónsson.
Tinda-
stóll
slapp
Tindastólsmenn sluppu með
annað stigið er þeir léku gegn
Leikni á Fáskrúðsfirði í 3.
deildinni um helgina. Úrslitin
1:1 eftir að Leiknir hafði haft
yfir í hálfleik 1:0.
Það var Akureyringurinn og
Þórsarinn fyrrverandi Einar
Áskelsson sem skoraði mark
Leiknis, en þegar langt var liðið
á síðari hálfleikinn jafnaði Eyj-
ólfur Sverrisson úr vítaspvrnu
fyrir Tindastól og liðin skiptu því
stigunum. Heimamenn voru
ntjög óhressir með vítaspyrnu-
dóminn og þeir áttu mun meira í
leiknum án þess þó að eiga mikið
af hættulegum marktækifærum.
Stórsigur
Þróttara
Þróttur Neskaupstað vann
sinn fyrsta sigur í 3. deildinni
um helgina er liðið fékk HSÞ-b
í heimsókn. Heimainenn unnu
yfirburðasigur 6:1 eftir að stað-
an í hálfleik var 3:1.
Markaskorarar Þróttar voru
Ólafur Viggósson með 3, Bjartur
Magnason. Þorsteinn Halldórs-
son og Guðmundur Ingvason
rneð sitt markið hver en ekki
tókst okkur að hafa upp á marka-
skorara HSÞ-b.
Staðan
Staðan í 3. deild b í íslandsmót-
inu í knattspyrnu er nú þessi:
Einherji-Huginn 7:1
Leiknir-Tindastóll 1:1
Austri-Valur 3:3
Þróttur-HSÞ-b 6:1
Leiknir 4 2 1 1 5:5 7
Austri 4 1 3 0 9:5 6
Valur 3 1 2 0 6:4 5
Tindastóll 3 1 2 0 3:2 5
Þróttur 3 1 1 1 8:5 4
Einherji 2 1 0 1 7:3 3
Huginn 3 0 2 1 3:9 2
Magni 1 0 0 1 0:1 0
HSÞ-b 2 0 0 2 1:8 0