Dagur - 10.06.1985, Qupperneq 9
10. júní 1985- DAGUR -9
„Vonast til að
ná fullum bata“
- segir Jóhann Páll Ólafsson, sem er fyrstur til að
fara í lengingaraðgerð hérlendis
- Hvers vegna var fóturinn
styttri?
„Ég lenti í slysi. Ég var á mót-
orhjóli úti á Malawi, það keyrði
bíll á mig og ég brotnaði á kálfa.
Brotið greri alveg eðlilega, en
síðan datt ég, eða rann til og rétt
áður en ég skall niður spyrnti ég
fætinum í og þá gengu beinin á
misvíxl. Fóturinn styttist við það
um 2 1/2 cm og síðan hefur bein-
ið í hinum kálfanum vaxið um 1/2
cm. Það þarf því að lengja kálf-
ann um 3 cm í allt.“
- Er þetta ekki sársaukafull
aðgerð?
„Nei, ég finn ekki beint fyrir
sársauka, en það kemur fyrir að
ég verð pirraður í fætinum. Ann-
ars er þetta svo rétt byrjað, það
getur verið að eitthvað eigi eftir
að koma upp.“
- Háði það þér að fóturinn var
styttri?
„Ekki var það svo rnikið. Ég
var í skóm með þykkum botni og
þetta hefur ekki háð mér neitt í
leik eða starfi, en ég vonast til að
ná fullum bata.“
- Nú ert þú fyrsti sjúklingur-
inn sem ferð í svona aðgerð á ís-
landi, þér finnst þú ekkert vera
tilraunadýr?
„Nei, mér finnst ég ekki geta
sagt það. Þetta er bæði mín hug-
mynd og Halldórs og við tókum
þessa ákvörðun í sameiningu."
Og þar með kvöddum við
Jóhann, þökkum honum fyrir
spjallið og óskum honum góðs
bata. -HJS
Eins og komið hefur fram í
fréttum í Degi, var á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri,
framkvæmd aðgerð sem ekki
hefur verið gerð hér á landi
áður. Aðgerð þessi er lenging
á beini sem styttist við áverka.
Aðgerð þessa framkvæmdi
Halldór Baldursson, yfirlæknir
á Bæklunardeild. Sjúklingur-
inn er 20 ára gamall karlmað-
ur, Jóhann Páll Ólafsson, en
Jóhann hefur stundað nám í
tækniteiknun við Verkmennta-
skólann á Akureyri. Það er
hann sem við beinum athygl-
inni að í þetta sinn, Jóhann Iét
til leiðast að koma í stutt spjall
við Dag. Hann var fyrst spurð-
ur hvort hann væri Akureyr-
ingur.
„Nei, ég er það nú ekki. Ætli
það megi ekki segja að ég sé úr
Reykjavík. Annars dvaldi ég er-
lendis í 7 ár, nánar til tekið á
Malawi. Hér á Akureyri hef ég
búið síðan 1982.“
RKIvöruboerl
HUSGAGNAVERSLUN
TRYGGVABRAUT 24 PÓSTHÓLF 266 602 AKUREYRI SfMI (96)21410
Nýjar gerðir
svefnsófa
Dixie kr. 17.420,-
Bonny kr. 20.460,-
Alice kr. 16.620,-
Þetta eru aðeins sýnishorn af
glæsilegu úrvali þýskra svefnsófa
og rúma sem við vorum að taka upp.
Lítið inn og skoðið úrvalið.
Halldór Baldursson, læknir.