Dagur - 14.06.1985, Blaðsíða 7
14. júní 1985 - DAGUR - 7
Marína Sigurgeirsdóttir.
- Hótel Reynihlíð.
- Góðan daginn, þetta er á
Degi, gæti ég fengið samband
við Marínu Sigurgeirsdóttur,
kokk?
- Andartak.
- Halló?
- Er það Marína sjálf?
- Jú, það er hún.
- Komdu sæl og blessuð,
Helga beiti ég, samstúdent þinn
úr MA.
- Já, margblessuð.
- Hvernig er að kokka í
Reynihlíð?
- Það er alveg ágætt. Ég er
búin að vinna hérna, með hléum
í 4 ár, núna tók ég mér síðast frí
frá áramótum og fram að mán-
aðamótum mars-apríl.
- Hvað varstu að gera?
- Ég fór til Englands að læra
ensku. Var á enskuskóla sem
heitir Oxfor Academy og er
enskuskóli fyrir útlendinga.
- Hafðirðu mikið gagn af
því?
- Já, þetta var mjög gaman
og reynsluríkt. Ég skoðaði að
sjálfsögðu eins mikið af veitinga-
húsum og ég gat og lærði mikið
af því. Það er mjög gott fyrir þá
sem eru í þessari starfsgrein að
skoða sem víðast og finna
breiddina. Það er það sem okk-
ur vantar héma úti á landsbyggð-
inni, að geta fylgst með. Það er
svo mikilvægur þáttur í þessu.
En eftir þessa ferð mína út var
ég bara ánægð með íslensk veit-
ingahús.
- Er ferðamannastraumurinn
byrjaður hjá ykkur?
- Það er að byrja, já. Það
verður skorpa fram í ágúst. Það
er fullt flesta daga frá miðjum
júní og fram í miðjan ágúst.
- Og allir borða silung?
- Ekki alveg allir, en hann er
mjög vinsæll. Útlendingum
finnst merkilegt að fá soðinn sil-
ung og að hann skuli vera
góður. Þeir steikja hann alltaf.
Silungur er á boðstólum flesta
daga. Það hefur veiðst vel í
vatninu í vor, en undanfarin
sumur hefur lítið veiðst og það
hefur oft gengið illa að útvega
silung.
- Hvað eru margir kokkar á
hótelinu?
- Við verðum þrjú í 2 mánuði
í sumar, þegar mest verður að
gera, og veitir ekki af. Síðan
erum við tvö í 4 mánuði.
- Ergaman að elda?
- Já, það er alltaf jafn gaman
að elda. Þetta er þannig vinna
að manni verður að þykja hún
skemmtileg. Þetta getur verið
slítandi til lengdar, sérstaklega
á sumrin, en alltaf gaman.
- Ætlaðirðu þér alltaf að
verða kokkur?
- Nei, ég tók stúdentspróf
frá MA og þegar ég byrjaði í
Menntaskólanum ætlaði ég mér
að verða hússtjórnarkennari, en
einhvers staðar á miðri leið
missti ég áhugann á því. Þess
vegna fór ég nú í Menntaskól-
ann, því það er krafist stúd-
entsprófs af hússtjórnarkennur-
um, en það þarf hins vegar ekki
í kokkinn. En ég sé alls ekki eft-
ir menntaskólaárunum, þau
voru mjög skemmtileg. Ég gerði
mér grein fyrir því að ég nennti
ekki í langskólanám og af ein-
hverri tilviljun fór ég í kokka-
námið.
- Ákveður þú matseðilinn á
hótelinu?
- Já, en ég geri það í samráði
við þá sem ég vinn með. Það er
gott að fá hugmyndir frá öðrum.
Ég ákveð bara daginn áður hvað
ég ætla að hafa næsta dag, það
er bara einn dagur í einu hjá
mér. Ég reyni að hafa matseðil-
inn svolítið sérstakan. Við erum
t.d. með heimabakað brauð
með súpunni, mér finnst gaman
að hafa svona séreinkenni.
- Hvernig er aðstaðan fyrir
kokkana?
- Eldhúsið er að mörgu leyti
gott, en það er lítið og á háanna-
tímanum er þröngt. En það er
öllu vel fyrir komið og það eru
því engin hlaup. Maður samlag-
ast þessu eins og öðru.
- Vitið þið alltaf hvað verður
margt í mat?
- Nei, ekki alltaf. Við getum
alltaf átt von á gusu af fólki. Á
vorin er aldiei hægt að vita hve-
nær „trafficin" byrjar. Það getur
óvænt komið 30 manna rúta í
mat og allir vilja hamborgara.
Það getur orðið meiriháttar
martröð, en á háannatímanum
myndi slíkt týnast í fjöldanum.
- Svona að lokum, ætlarðu
að halda áfram að elda ofan í
gesti á Hótel Reynihlíð í vetur?
- Nei, ég býst ekki við því.
Annars er þetta allt óráðið hjá
mér, ég verð hér í sumar og síð-
an kemur bara í ljós hvað
verður.
- Jæja, Marína, ég tef þig þá
ekki lengur frá eldamennsk-
unni, þakka þér fyrir spjallið.
- Sömuleiðis, það var gaman
að heyra í þér, blessuð.
- Bless, bless. - HJS
rnrnn ad
segir Marína Sigurgeirsdóttir,
kokkur í Hótel Reynihlíð
J
Nýjar vörur
Silkifatnaður
í sérflokki
Kjólar ★ Pils ★ Buxur ★
Dress ★ Blússur
Festar og belti í úrvali.
Verum vel klæddar
á þjóðhátíðardaginn
Opið laugardaga 10-12. {HdlaiWiðLtin *yteinunncLi_
Hafnarstræti 98 - Akureyri - Sími (96) 22214
Tilboð óskast
í timbureiningahús
sem á aö fjarlægja..
Húsiö er um 85 rrf aö flatarmáli og skiptist í 5 her-
bergi, boröstofu, eldhús og bað.
Húsiö selst þar sem það stendur viö stjórnstöö
Rafmagnsveitna ríkisins Rangárvöllum viö Akur-
eyri.
Uppl. eru gefnar á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins á Akureyri, sími 26500.
býdur yður velkomin í heitan mat,
hádegi og kvöld.
Kaffi og smurt brauð allan daginn.
Nýbakaðar vöfflur m/rjóma
í síðdegiskaffinu alla daga.
Opið frá 8-22.
Hótel KEA
Við bjóðum fjölbreyttar veitingar í veitingasal
sem er opinn alla daga fyrir hádegis- og kvöldverð
Dansleikur
laugardagskvöldið 15. júní
Miðaldamenn frá Siglufirði leika fyrir dansi frá kl. 22.00-02.00.
Kristján Guðmundsson leikur létt lög fyrir matargesti frá kl. 19.00.
Borðapantanir í síma 22200.
Verið velkomin.
HOTEL KEA
AKUREYRI