Dagur - 03.07.1985, Síða 2
2 - DAGUR - 3. júlí 1985
Hvaða bók ertu að
lesa núna?
Ólafur Ásgcirsson:
Enga í augnablikinu, en síðast
las ég Góða ferð til Parísar á
norsku og þótti hún góð.
Bogi Eymundsson:
Stríðsfélaga eftir Sven Hazel.
Það er mjög góð bók.
Sigríður Rögnvaldsdóttir:
Ég er að lesa Landið þitt, nýj-
ustu bókina. Petta er forvitni-
leg bók og vel myndskreytt.
Mest gaman að lesa um Þing-
velli.
Guðrún Ásmundsdóttir:
Enga eins og er, en síðast las
ég bók númer tuttugu og eitt
um ísfólkið. Ég hef lesið þær
allar og þær eru alveg ágætar.
er í
- Spjallað við Guðmund Jónsson útibússtjóra
og söngmann á Siglufirði
bloðmu
Inn af verslun Kaupfélags Ey-
firðinga á Siglufirði hefur úti-
bússtjórinn skrifstofu. Það er
Guðmundur Jónasson og hann
á annríkt þegar tíðindamenn
Dags ber að garði. Samt er
tími til að spjalla. Við höfðum
fregnað að Guðmundur væri
að láta af störfum. Hann er 67
ára og hefur verið útibússtjóri
frá því KEA setti upp þessa
verslun árið 1972.
„Ég verð að fara að létta á
mér, það er orðið allt of mikið að
gera. Ég hef að vísu lofað því að
ég muni verða hér með annan
fótinn um óákveðinn tíma. Ann-
ars er alveg óráðið hvað tekur við
hjá mér. Maður verður alltaf að
reikna með breytingum og það er
hvíld í því að gefa sig að nýjum
störfum.'1
- Þú ætlar ekki að flytja úr
bænum?
„Nei, ég fer ekki úr bænum.
Ég er reyndar fæddur og uppal-
inn Húnvetningur og kom hingað
til Siglufjarðar árið 1945 - það
eru orðin 40 ár síðan - og ætlaði
að vinna hér eitt sumar. Ég fór
þá strax að kunna vel við mig og
er enn á því, mér fellur vel við
fólkið og umhverfið. Og hér hef
ég alltaf haft nóg að gera, eftir að
ég tók við stjórn útibúsins hefur
aldrei verið friður, maður hefur
verið á bakvakt allan ársins
hring.“
Á Siglufirði kynntist Guð-
mundur konu sinni, Margréti
Jónsdóttur, og þau eiga nú þrjú
uppkomin börn.
Guðmundur hóf störf hjá
mjólkurbúinu á Hóli 1947 og var
þar bústjóri. Að Hóli voru um
eitt hundrað kýr og einnig önnur
dýr.
„Mjólkin frá Hólsbúinu var að
ýmsu leyti öðruvísi en sú mjólk
sem var flutt hingað frá Sauðár-
króki og Akureyri, t.d. var hún
seld ógerilsneydd. Búið þótti góð
trygging fyrir börn og einnig
sjúkrahúsið og aðra þá sem ekki
gátu án mjólkur verið. Það kom
jafnvel fyrir að ekki fékkst hér
önnur mjólk í heila viku eða jafn-
vel lengur, sökum samgönguerf-
iðleika. Hólsmjólkin var seld í
Hólsbúð, og eftir árið ’63 var
einnig seld þar mjólk frá Akur-
eyri og Sauðárkróki. En eftir að
samgöngur bötnuðu fór aðflutt
mjólk að berast hingað reglulega
og þá hætti Hólsbúið að borga sig
og var lagt niður.“
Það var Kaupfélag Siglfirðinga
sem byggði það húsnæði sem
KEA er nú í. „Það var óskað eft-
ir því að KEA setti hér upp úti-
bú og því var startað ’72,“ segir
Guðmundur. Síðan hefur versl-
unin alltaf verið að aukast og er
nú aðalmatvöruverslunin í
bænum. Fyrir nokkru var gerð
verðkönnun í ýmsum verslunum
landsins og þá kom útibú KEA á
Siglufirði mjög vel út.
Guðmundur: „Það hefur verið
stefnan að halda vöruverði lágu.
Fyrir ári var farið að setja margar
vörur á kjörmarkaðsverð, sem
kallað er, og ýmsar matvörur
hafa lent í þeim flokki. Útibúið
hefur ætíð sýnt góða útkomu."
Einhvern tíma í spjalli okkar
nefndi Guðmundur að hann
hefði alltaf haft mikið að gera.
Samkvæmt því drógum við þá
ályktun að hann hefði lítið um
frístundir, en í ljós kemur að þær
hafa þó nokkrar gefist. „Ég hef
reyndar aðeins einu sinni tekið
mér reglulegt frí, og þá fór ég til
Bandaríkjanna. Annars er það
helst að ég skreppi í sumarbústað
sem við systkinin eigum á æsku-
stöðvunum í Húnavatnssýslu."
En aðaltómstundastarf Guð-
mundar er söngur. Hann hefur
sungið mikið með Karlakórnum
Vísi. „Söngurinn er í blóðinu.
Við systkinin höfum öll sungið
mikið, og sú ágæta söngkona
Ólöf Kolbrún Harðardóttir er
systurdóttir mín.“
Söngstarf hefur ætíð verið
nokkuð á Siglufirði. „En það hef-
ur gengið svolítið í bylgjum,“
segir Guðmundur. „Hér er margt
fólk sem getur sungið og hingað
hafa komið ýmsir góðir tónlistar-
menn. Það er misjafnt hvað
menn endast í músíkinni. Sumir
detta strax út en aðrir eru alla
sína tíð.“ Og það kemur upp úr
kafinu að líklega er Guðmundur
í síðarnefnda flokknum, því
hann er einn af elstu starfandi
meðlimum Vísis. „Það eru einn
eða tveir sem hafa sungið lengur
en ég. Ég hef alltaf reynt að hafa
tíma fyrir söngæfingar. Ef maður
á annað borð stundar eitthvað
verður að gefa sig að því. Annars
næst enginn árangur og þá verður
ekkert gaman." - KGA
Guðmundur Jónasson: „Maður verður alltaf að reikna með breytingum og
það er hvfld í því að gefa sig að nýjum störfum.“ Mynd: KGA
Ellilífeyrisþegi:
Gömlu lampatækin em
ekki með FM-bylgju
Ellilífeyrisþegi hringdi og vildi
koma á framfæri smá athuga-
semd. Sagðist hann því miður
aldrei geta hlustað á Rás 2, því
útvarpstæki hans, gamalt lampa-
tæki væri ekki með FM-bylgju.
Fannst honum fólki mjög mis-
munað með því að hafa Rás 2 á
FM, því vitað er að fjöldi fólks á
ekki þannig tæki. „Og kannski
sérstaklega eldra fólkið,“ sagði
maðurinn og bætti því við, að
eins og ástandið í þjóðfélaginu
væri í dag, þá væri það nánast úti-
lokað fyrir ellilífeyrisþega að
festa kaup á nýju útvarpstæki.
Það væri helst ef ættingjar og
vinir gaukuðu að gamla fólkinu
tæki sem hætt er að nota, og þá
oftast vegna slæms hljómburðar.
Vissi gamli maðurinn af konu
sem fékk FM-tæki að gjöf frá
systurdóttur sinni og væri það
áberandi að eftir að konan fór að
hlusta á Rás 2 væri hún öll hressi-
legri í viðmóti.
„Víð höfum alveg jafn gaman
af vinsældalistanum og unga
fólkið,“ sagði gamli maðurinn,
„en því miður getum við ekki
fylgst með þegar við þurfum að
láta gömlu larripatækin okkar
duga.“ Og til gamans sagðist
maðurinn hafa vitað síðast til að
„Karnivalkarl“ hringdi og vildi
koma þeirri áskorun á framfæri
til allra Akureyringa að þeir taki
virkari þátt í fyrirhugaðri
„hundadagahátíð“ á Ákureyri en
þeir gerðu á „karnivalinu“ í
fyrra.
Save a Prayer með Duran Duran
hafi verið númer eitt á vinsælda-
listanum.
Það eiga allir að taka þátt í
þessu. Fólk á að klæða sig í frum-
leg föt, mála sig í framan og
virkilega sletta úr klaufunum
þessa daga sem hátíðin stendur
yfir.
„Hundadagar“