Dagur - 03.07.1985, Blaðsíða 8
8-DAGUR-3. júlí 1985
Allar veiðivörur
bússur og vöðlur.
Sealdri vöðlurnar voru að koma
Veiðileyfi í ám og vötnum.
Jensen spúnarnir veiða vei.
Opið á laugardögum kl. 10-12.
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 ■ sími 22Z75
Bautabúrið
Skipatanga 35, Akureyri.
Tökum að okkur að reykja
lax, silung og allar kjötvörur.
Einnig pökkum við í lofttæmdar umbúðir ef óskað er.
Bautabúrið
Skipatanga 35, Akureyri, sími 21343.
Húsnæði óskast
Viljum taka á leigu strax eða 1. ágúst nk. 3ja herb.
íbúð í blokk og 4-5 herb. íbúð í raðhúsi eða einbýli.
Nánari upplýsingar gefur Jón Arnþórsson í síma
21900.
Iðnaðardeild Sambandsins
Akureyri.
4?
Akureyringar
Umboðsmaður hitahlutfallsmælanna
frá Kosan-Brunata verður á Akureyri
dagana 4. og 5. júlí.
Þeir aðilar sem ætla að fá sér mæla fyrir haustið
ættu að snúa sér til Hita sf. sem fyrst.
INDUS
Reykjavíkurvegi 72, Hafnarfirði.
/
Kellogg’s kornflögur.
Kellogg’s kokopops.
Kellogg’s fiber rig.
Kellogg’s Variety pack.
Holta banana/súkkulaðikex.
Holta bourbon/súkkulaðikex.
Mikill afsláttur.
Kjörbúð KEA
Sunnuhlíð
Minning:
Ý Sigríður Soffía
Asgeirsdóttir
F. 16.02.1966-D.21.06.1985
Sigríður Soffía Ásgeirsdóttir
fæddist á Grenivík 16. febrúar
1966 dóttir hjónanna Elísu Ing-
ólfsdóttur og Ásgeirs Kristins-
sonar.
Mig langar að minnast Síssu,
en það var hún kölluð, í örfáum
orðum á þann hátt sem hún kom
mér fyrir sjónir.
í fyrsta skipti sem ég hitti hana
kom hún í heimsókn til mín til að
sjá nýfædda bróðurdóttur sína.
Eg tók strax eftir því að hún var
mikið gefin fyrir börn og var hún
dóttur minni ákaflega góð. Hún
kom ekki svo í heimsókn að hún
kæmi ekki með eitthvað handa
henni. Hún kom oft til að taka
hana með sér á rúntinn og áttu
þær þá góðar stundir saman og
talaði dóttir mín um það lengi á
eftir.
Fyrst varð vart við veikindi
Síssu í febrúar síðastliðnum en
með hjálp Guðs og læknavísind-
anna náði hún sér aftur. Hún hélt
áfram að ganga veg lífsins eins og
ekkert hefði í skorist og virtist
sem veikindin væru að baki. Hún
fór meðal annars í skólaferðalag
til Spánar um páskana með
Menntaskólanum á Akureyri en
þar stundaði hún nám. Er hún
kom þaðan hafði hún svo sannar-
lega ekki gleymt litlu frænku
sinni og færði henni mjög fallegar
gjafir.
Síssa kaus að eyða sumrinu
sem barnfóstra í Þýskalandi sem
og að læra tungumálið. En hún
hafði ekki verið þar nema fimm
daga er hún veiktist snögglega
aftur og varð það til þess að hún
var kvödd burtu úr þessum
heimi.
Stundum skilur maður ekki til-
gang þessa lífs og af hverju ungt
og lífsglatt fólk er tekið burtu en
eins og máltækið segir: Þeir deyja
ungir sem guðirnir elska.
Eg og þó sérstaklega dóttir
mín munum sakna hennar og við
þökkum fyrir að hafa fengið að
kynnast henni.
Ég votta foreldrum Síssu og
bræðrum innilega samúð og vona
að Guð styrki þau í þessum mikla
missi.
Habba.
Heimsfrægir
„bítlar"
í Sjallanum
The Searchers, ein allra vin-
sælasta hljómsveit heimsins á
7. áratugnum mun leika í Sjall-
anum á Akureyri nk. sunnu-
dagskvöld. Þessi hljómsveit
stóð ekki langt að baki The
Beatles, Kinks og RoIIing
Stones hvað vinsældir snerti.
Hijómsveitin var stofnuð 1962
og allt fram til dagsins í dag hefur
hún verið skipuð sömu mönnum
með einni undantekningu þó.
Hljómsveitin hefur ávallt vakið
athygli fyrir sinn sérstaka stíl og
„sound“ og hverjir muna ekki lög
eins og Sweets for my sweet, Sug-
ar and spice, Needles & pins,
Don’t throw your love away,
Goodbye my love, What have
they done to the rain og Love
potion no. 9?
Heildarhljómplötusala The
Searchers fór yfir 30 milljónir
eintaka og enn er mikil eftirspurn
eftir hljómplötum þeirra. Þeir
hafa hlotið 6 gullplötur og 11 silf-
urplötur. Árið 1963 voru þeir
kosnir önnur besta hljómsveitin
í Englandi hvað söng snerti og
komu þar á eftir hinum einu og
sönnu The Beatles.
Ekki er að efa að marga mun
fýsa að sjá þessa snillinga á sviði
Sjallans. Mikils aðsókn er í borð
fyrir matargesti en forsala miða
verður í Sjallanum á sunnudag
kl. 17-19.
Gítartónleikar
í Laxdalshúsi
Páll Eyjólfsson, gítarleikari
heldur tónleika í Laxdalshúsi á
morgun, fimmtudag kl. 20.30. Á
efnisskrá verða m.a. verk eftir
J.S. Bach, I. Albeniz og Misti
Þorkelsdóttur.
Páll hóf nám í Barnamúsík-
skóla Reykjavíkur, síðar í Gítar-
skólanum, þar sem kennari hans
var Eyþór Porláksson. Hann lauk
einleikaraprófi þaðan árið 1981.
Fór síðan í framhaldsnám á
Spáni, undir handleiðslu spánska
gítarleikarans Jose Luis Gonza-
lez. Hann starfar nú sem gítar-
kennari í Reykjavík.
Glæsilegt sumarhús
til leigu í júlí og ágúst á einum fallegasta stað
í Aðaldal.
í húsinu eru 5 svefnherbergi, húsgögn og eldhúsáhöld
fylgja. Húsið leigist allan tímann eða í eina-tvær vikur
í einu. Uppl. gefur Gunnar Haraldsson sími 24372.
HAGA
eíningatr
★ Eldhúsinnréttingar
★ Baðinnréttingar
★ Fataskápar
Hagstætt verð
og greiðslukjör.
Opið frá kl. 9-18.
Hagi hf. Oseyri 4, Akureyri, sími 96-21488
Asgeir Sigurvinsson
áritar myndir á fimmtudag kl. 13-15.
Sporthú^idi
HAFNARSTRÆTI 94
SÍMI 24350
Verkamannabústaðir á Akureyri
Utboð
Stjórn verkamannabústaða á Akureyri óskar
eftir tilboðum í að byggja fjögur raðhús, alls
15 íbúðir við Fögrusíðu, Akureyri.
Útboðsgögn verða afhent á teiknistofu Hauks
Haralds við Mýrarveg gegn 10 þúsund króna
skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað,
þriðjudaginn 16. júlí nk. kl. 11.00.
Stjórn verkamannabústaða á Akureyri.