Dagur - 06.09.1985, Blaðsíða 5
6. september 1985 - DAGUR - 5
Égáhund, mittungasprund
LAUT
RESTAURANT
Böðvar Bjarkan kvað:
Yfir hauður hraðar sér
heillasnauður lýður.
Draumaauður undan fer,
eftir dauðinn rfður.
María Bjarnadóttir kvað:
Hörð er spá á hauðri og sjá,
höppin smá að taka.
Vonarstráin veik og fá
vindar hrjá og skaka.
Pá koma 3 stökur eftir Þórarin Þor-
leifsson fyrrum bónda á Skúfi.
Pegar vinir vorsólar
vængi frá sér rétta,
út úr berki ellinnar
æskurósir spretta.
Oft í heimsins harða styr
hratt frá marki skeika
þeir, sem gáfu guðimir
góða hæfileika.
Ekkert reynir anda manns
undir sig að kúga
eins og þetta andskotans
amstur við að búa.
Prestur nokkur á að hafa ljóðað svo
á unga stúlku:
Ég á hund, mitt unga sprund
eins og þig í framan.
Ætti hann mund af grettis grund
gæfí ég ykkur saman.
Stúlkan svaraði þegar:
Ég á tík sem yður er lík
í augum og hárafari.
Væri hún rík, mér virtist slík
vera af sama tagi.
Þórhildur Sveinsdóttir mun hafa átt
þcim grátt að gjalda, er hún ljóðaði
á með þessum hætti:
Ekki get ég gert að því
gremju til þó finni.
Stærstur hlekkur ertu í
ólánskeðju minni.
Þórarinn Sveinsson í Kílakoti kvað
næstu vísurnar tvær.
Minningar um æskuást
ævi langa geymast,
einkanlega ef hún brást,
en æskubrekin gleymast.
Meðan Ijós á lífið skín
leiktu á gleðistrengi.
Örskjótt líður ævi þín.
Ekkert varir lengi.
Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka
kvað næstu vísurnar tvær.
Oft er meinabrautin bein
bæði sveini og sprundi.
Ástin hreina, hún á ein
helga leynifundi.
Banni mæða og tregatár
töpuð gæði að finna,
reyndu að græða sviðasár
svo þau blæði minna.
Alfreð Ásmundsson í Hlíð hefur
þetta að segja um móðurmálið.
Okkar dýra móðurmál
meitlað fögrum óði
vekur unað innst í sál,
eld í hjartablóði.
Símon Dalaskáld orti til stúlku,
enda sagður kær að konum:
Hringabil ég vernda vil.
Venus dyl ei hita.
Okkur skilur þetta þil,
þungt er til að vita.
Grímur Sigurðsson frá Jökulsá mun
hafa kveðið þessar vísur eftir að
hann flutti úr sveitinni, til Akureyr-
ar.
Dalrúdngar
Þær konur sem hafa hugsað sér að vera dagmæður í
vetur eru vinsamlega beðnar að hafa samband við
Barnaverndarnefnd sem allra fyrst.
Fyrir hönd Barnaverndarnefndar,
Eyvör Stefánsdóttir, Bárugötu 13, sími 96-61196 og
Guðlaug Björnsdóttir, Hólavegi 15, sími 96-61173.
Leikfimiæfingar
fyrir eldra fólk
í vetur veröa leikfimiæfingar fyrir eldra fólk
meö breyttu sniði. Þær veröa haldnar í Húsi
aldraðra og hefjast 12. september nk.
Umsjón meö þeim hafa Ásta Guðvarðar-
dóttir (A og B) og Bryndís Þorvaldsdóttir (C
og D).
3ur A mánud. og fimmtud.
lur B mánud. og fimmtud.
)ur C þriðjud. og föstud.
tur D þriðjud. og föstud.
14.00-15.00
15.00-16.00
10.00-11.00
11.00-12.00
Pantanir eru teknar í síma 25880, þar sem
og eru veittar frekari upplýsingar.
Félagsmálastofnun Akureyrar.
Ekki minnkar umstangið
þó ærnar séu farnir.
Eltist ég nú orðið við
endurminningarnar.
Pað breytir engu þótt blómin fölni
og beri ei angan sem fyrr í vor,
þótt falli blöðin og síðan sölni,
því sál mín rekur hin gengnu spor.
Burt er flest um farinn veg.
Fækka gleðistundir.
Sólarinnar sakna ég
sem er gengin undir.
Aðalsteinn Ólafsson yrkir um feg-
urðarsamkeppni sem víða er í
tísku:
Nú eru víða $ett á svið
sígild kvennalærin.
Kariar flestir keppast við
að kanna tækifærin.
Þegar meirihluti borgarstjórnar
Reykjavíkur neitaði að láta SÍS
annast sölu á þorskhausum Bæjar-
útgerðarinnar, kvað Aðalsteinn
Ólafsson:
Framtíð er björt hjá fólkinu hér.
Frelsinu vill það ei týna.
Borgarfulltrúum auðvitað er
annt um tvífara sína.
Jón Pálmason alþingismaður á Akri
kvað morgunvísu þessa á heima-
hlaði:
Kveðjur vanda vötn og fjöll,
vörðinn standa hólar,
fegra landið atlot öll
upprennandi sólar.
Gísli Jónsson, Saurbæ í Vatnsdal
flutti þessa bæn:
Drottinn, láttu dreifða byggð
dalinn áfram geyma,
svo að eigi íslensk dyggð
einhvers staðar heima.
Við bjóðum upp á
þennan matseðil:
Blandaðir sjávarréttir.
Rjómalöguð kjörsveppasúpa bætt m/sherry.
Heilsteiktar nautalundir m/bakaðri kartöflu & piparsósu.
Grísakótilettur „Baden Baden“ m/rauðvínssósu & ristaðri peru.
Marineraðir ávextir ( Madeira.
Kaffi og konfekt.
Borðapantanir í síma 22527.
RESTAURANT LAUT HÓTELAKUREYRI
HAFNARSTRÆTI 98
Dansleikur í Hlíðarbæ
Dansleikur
verður í Hlíðarbæ
laugardaginn 7. september kl. 22.00.
Verðlaunaafhending fyrir meistaraflokk
í knattspyrnu o. fl.
Hljómsveitin París leikur.
UMSE
I Vín
Vínarís í brauði er góður, en þegar hann er kominn um borð
í bananabát með öllu, er hann ólýsanlegur.
Eitt sem allir þurfa að reyna.
Heit sérbökuð Vínarbrauð alla helgina.
Verið velkomin
í Vín.
Blómaskáli
við Hrafnagil.
Sími 31333
Opið á laugardögum
frá kl. 9-12
❖
Mikið úrval af
skólafatnaði og skólavörum
HAGKAUP Akureyri