Dagur - 23.09.1985, Page 1

Dagur - 23.09.1985, Page 1
TRÚLOFUNAR- HRINGAR AFGREIDDIR SAMDÆGURS GULLSMIÐIR SIGTRYGGUR & PÉTUR AKUREYRI 68. árgangur Akureyri, mánudagur 23. september 1985 105. tölublað Siglufjörður: Verksmiöjan gangsett Sfldarverksmiðja SR á Siglu- firði var formlega tekin í notk- un á laugardag eftir gagngerð- ar endurbætur. Þessar breytingar valda því m.a. að hinn hvimleiði reykur sem Siglfirðingar þekkja svo vel frá fyrri tíð verður úr sögunni. Orkan úr reyknum er nýtt og er talið að orkusparnaður verk- smiðjunnar verði 40%. Afköst munu aukast úr þúsund í 14-1500 tonn á sólarhring, að því er talið er. Afurðir verksmiðjunnar verða jafnari að gæðum. Aukin sjálfvirkni veldur því að aðeins verða 15 manns á vakt í senn, en fyrir áratug þegar loðnubræðsla hófst í verksmiðjunni voru 60 í vakt. Jón Kjartansson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri SR, gangsetti verk- smiðjuna. Mynd: HS Umferðarslys í Aðaldal Aðafaranótt sl. föstudags valt jeppabifreið út af vegi að veiði- húsi hjá Grímshúsum í Aðaldal. Fjórir voru í bílnum og hlaut farþegi í l'ramsæti slæman höfuð- áverka, en hinir hlutu lítil eða eng- in meiðsli. Bifreiðin er mjög mik- ið skemmd. - IM/Húsavík Verður reist orlofshúsahverfí á Akureyri á næstu árum? Hjá Atvinnumálanefnd Akureyrar er í athugun hugmynd Valdi- mars Kristinssonar, starfs- manns Seðlahanka íslands um að einhvers staðar á svæðinu frá Naustavegi að Kjarnalundi rísi byggð orlofshúsa með þjónustukjarna. „Mér þykir hugmyndin allrar athygli verð en þetta er aðeins hugmynd ennþá og það vantar mikið upp á að menn hafi áttað sig á hvernig hægt er að útfæra hana,“ sagði Jón Sigurðarson for- maður atvinnumálanefndar í samtali við Dag. Hann sagði enn- fremur að þeim í atvinnumála- nefnd þætti full ástæða til að verja til þess fé og tíma að kanna það nánar, hvort, og þá með hvaða hætti, þessi hugmynd yrði útfærð. Valdimar segir að hjá sér hafi þessi hugmynd kviknað í sumar- leyfi í Hollandi þar sem hann gisti í svokölluðu sumarhúsa- hverfi og datt þá í hug hvort ekki væri tilvalið að koma á einhverju álíka á Akureyri. Félagasamtök og fyrirtæki gætu sameinast um að byggja það sem þarf og svo gæti fólk eytt sumarfríinu eða hluta þess í þessum orlofsbúðum. Þetta mætti tengja við ýmislegt sem á döfinni er að reisa við suðurenda Leirutjarnar s.s. skautasvæði og mætti hugsa sér Nýr hótel- ■ ■ / ■ / stjon a Húsavík - Reksturinn í sumar gekk þokkalega, segir Auður Gunnarsdóttir „Það er rétt, ég hætti vonandi störfum um næstu mánaða- mót,“ sagði Auður Gunnars- dóttir hótelstjóri á Hótel Húsavík er við ræddum við hana fyrir helgina. Samvinnuferðir tóku við rekstri hótelsips 1. júní í sumar og á skrifstofu fyrirtækisins feng- ust þær upplýsingar að ekki væri búið að ákveða endanlega hver yrði eftirmaður Auðar sem hótel- stjóri. Samkvæmt áreiðanlegum heimildum Dags er þó um konu að ræða og kemur hún frá Reykjavík. Auður Gunnarsdóttir hefur starfað á Hótel Húsavík í 10 ár, þar af 3 síðustu árin sem hótel- stjóri. Hún sagði í samtali við Dag að reksturinn í sumar hefði gengið þokkalega, en þó hefði vantað innlenda ferðamenn þar eins og víðar á Norðurlandi og á þar veðurfarið í þessum lands- hluta síðustu mánuðina eflaust alla sök á. gk-. Akureyri? lugmynd segir Jón Sigurðarson form. atvinnumálanefndar að þar risi þjónustukjarni með aðstöðu fyrir íþróttaiðkun og verslun. Það yrði að hafa það í huga við skipulagningu orlofs- búðanna að þar gæti fólk dvalið í góðu yfirlæti og haft nóg fyrir stafni án þess að til kæmi gott veður. Góða veðrið sem við Ak- ureyringar og gestir okkar fá stundum að njóta kæmi bara sem bónus fyrir þá sem það hrepptu. -yk. „Stórkostleg óperusýning" - Það er ekki ofsagt, þetta er sú stærsta stund sem ég hef upp- lifað hér í Þjóðleikhúsinu. Eg er hrærður, nær orðlaus, en vil þó ekki láta hjá líöa að þakka ykkur öllum fyrir þessa stór- kostlegu sýningu. Ykkur tókst þetta með mætti samstöðunn- ar, góðum starfsanda og mikl- um hæfíleikum. Á þessa leið mælti Gísli Al- freðsson, þjóðleikhússtjóri, þeg- ar hann ávarpaði þátttakendur í óperunni Grímudansleiknum, að lokinni frumsýningu á laugar- dagskvöldið. Og það var ekki of- sögum sagt; sýningin var stór- kostleg og það kunnu frumsýn- ingargestir að meta. Lófatak þeirra í leikslok var langvarandi, margir hrópuðu „bravó - bravó“, sérstaklega fyrir Kristjáni Jó- hannssyni, Elísabetu F. Eiríks- dóttur og Katrínu Sigurðardótt- ur, sem óneitanlega voru „stjörnur" kvöldsins. Loks stóðu allir á fætur og hylltu listamenn- ina ákaft. Kristján fer með hlutverk Gustafs III Svíakonungs og hann er burðarásinn í sýningunni. Frammistöðu hans er best Iýst með orðum Rafns Hjaltalín sem hann lét falla við blaðamann Dags í hléi: Hann er ekki bara konungur á sviðinu; hann er kon- ungur sviðsins. Nánar verður fjallað um sýninguna í blaðinu á miðvikudaginn. -G.S. Orlofsbúðir á

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.