Dagur - 23.09.1985, Síða 3

Dagur - 23.09.1985, Síða 3
23. september 1985 - DAGUR - 3 Ný viðhorf í búrekstri Á síðustu árum hefur fram- leiðsla búvara dregist mikið saman m.a. vegna framleiðslu- takmarkana sem settar hafa verið á einstaka bændur. Við þetta hafa skapast ný viðhorf í búrekstri, þar sem bændur geta nú ekki aukið tekjur sínar með því að auka framleiðslu. Samhliða þessu hafa lána- kjör breyst gífurlega, og er nú þörf mikillar aðgæslu við hvers kyns fjárfestingar. Héraðs- ráðunautar verða mjög varir við þessar breytingar í starfi sínu, en þeim er gert að meta framkvæmdaþörf og búrekstur bænda við lánsumsóknir. Til að auðvelda héraðsráðu- nautum þetta vandasama verk- efni héldu Búnaðarfélag íslands og Búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri þriggja daga nám- skeið dagana 4.-6. september sl. Skipulagningu og faglega um- sjón höfðu þeir Ketill A. Hannes- son, búnaðarhagfræðiráðunautur Búnaðarfélags Islands og Gunn- laugur Júlíusson búnaðarhag- fræðingur. Grenivík: Mikil atvinna í frystihúsi Kaldbaks hf. á Grenivík hefur verið mikil at- vinna í sumar og fyrirsjáanlegt er að þokkaleg atvinna verði á haustdögum, að sögn Kristleifs Meldal verkstjóra. „Það skapast meiri verkefni fyrir þær hendur sem eftir verða þegar skólafólkið er farið,“ sagði Kristleifur. Um 40-60 manns vinna hjá Kaldbak yfir vetrartím- ann. „Við teljum okkur vera búna að tryggja sæmilega stöðuga at- vinnu í vetur. Það gætu orðið ró- legheit seinnipartinn i desember, en eftir áramótin sjáum við fram á mikia vinnu.“ Áskell, sem er 70 tonna bátur, hefur verið á netum og fiskað mjög vel upp á síðkastið, hefur komið með um 30 tonn af fiski eftir 2-3ja daga veiðiferðir. Auk Áskels leggja nokkrir smábátar upp hjá Kaldbak. Togarinn Núpur er í slipp þar sem verið er að gera við tjón er hann varð fyrir í desember sl. Vonast er til að hann verði kom- inn á línuveiðar um mánaða- mót. Núpur á eftir rúmlega 200 tonn af kvóta sínum og sagði Kristleifur að ekki væri með öllu vonlaust að hægt væri að fá keyptan viðbótarkvóta fyrir hann. - mþþ Sharp alvöru VHS video fyrir aðeins kr. 37.600 staðgreitt. Að sjálfsögðu er líka hægt að kaupa með greiðsluskilmálum. Einnig úrval af öðrum videotækjum ásamt sjónvörpum, snældutækjum, hljómflutningstækjum og fleira. Vorum að fá nýja gerð af eldhúsdteglum Eigum úrvai af gólfteppum, mottum og dreglum 1 r HEILSUGÆSLUSTöeiN /AWaWA' á akureyri Læknaval Ákveðið hefur verið að gefa þeim íbúum Akur- eyrarlæknishéraðs, sem ekki hafa heimilislækni, kost á að velja sér heimilislækni. Hér er um að ræða þá meðlimi Sjúkrasamlags Akureyrar, sem höfðu læknana Baldur Jónsson, Magnús Stef- ánsson og Sigurð Ólason sem heimilislækna, einnig meðlimi Sjúkrasamlags Eyjafjarðarsýslu, sem búa í Arnarnes-, Skriðu-, Öxnadals-, Glæsibæjar-, Hrafnagils-, Saurbæjar-, og Öng- ulstaðahreppi, og þá meðlimi Sjúkrasamlags Þingeyjarsýslu sem búa í Svalbarðsstrandar-, og Hálshreppi. Læknavalið hefst þriðjudaginn 1. október nk. og fer fram í afgreiðslu Sjúkrasamlags Akureyrar, Gránufélagsgötu 4, Akureyri frá kl. 9.15-12.00 og 13.00 til 15.30 virka daga. Læknar þeir, sem valið er um eru: Erlendur Konráðsson. Friðrik Vagn Guðjónsson. Inga Björnsdóttir Ingvar Þóroddsson, (Þórir Þórisson til vors). Kristinn Eyjólfsson. Allir þeir íbúar læknishéraðsins, sem þessi aug- lýsing á við, eru eindregið hvattir til þess að koma og velja sér heimilislækni. Jafnframt eru þeir beðnir að sýna sjúkrasamlagsskírteini sitt og fá nafn læknisins fært inn á það. HEILSUGÆSLUSTÖÐIN Á AKUREYRI. Einkaflugmannsnámskeið Bóklegt kvöldnámskeið verður haldið á tímabilinu október til desember. Upplýsingar veita: Baldvin Birgisson flugkennari. Heimasími 26645. Sigurbjörn Arngrímsson flugkennari. Heimasími 23871. Flugskóli Akureyrar Akureyrarflugvelli - Sími 21824.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.