Dagur - 23.09.1985, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 23. september 1885
Gestir á Húsavík:
Aldrei séð
Vinabær Húsavíkur í Dan-
mörku er Álaborg, og þaðan
komu 24 gestir sl. mánudag,
dvöldu þeir á Húsavík og ferð-
uðust um Þingeyjarsýslur á
vegum Húsavíkurbæjar fram
á íímmtudag.
Hér var á ferðinni einn bekkur
15 ára nemenda við Ferslevskóla,
ásamt þrem fararstjórum. Gist
var á einkaheimilum og reynt að
haga svo til að þar kynntust ungu
gestirnir fólki á svipuðum aldri.
Ingimundur Jónsson, kennari
og Sigurjón Jóhannesson skóla-
stjóri ferðuðust um með gestun-
um, og segir Sigurjón að pers-
ónulega finnist sér að heimsóknin
hafi tekist afskaplega vel. Veðrið
alveg einstakt og mikils virði fyrir
unglingana að kynnast jafnöldr-
um sínum.
Henning Nielsen, einn dönsku
fararstjóranna lýsti yfir mikilli
ánægju með dvölina hér, börnin
væru ákaflega ánægð, þau hefðu
farið í skoðunarferðir séð jarð-
hitasvæði og eldfjöll og fengið að
fara á sjó til fiskveiða. Sagðist
hann vonast til að fá bekk frá
Húsavík í heimsókn til Álaborg-
ar á næsta ári. - IM
Notar bamíð þitt gleraugu?
Vorum að taka upp níðsterkar bama-
og unglingaumgjarðir frá Essilor
í Frakklandi.
Bamagleraugu em
sérgrein okkar.
Gleraugnaþjónustan
Skipagötu 7 - í miðbæ Akureyrar
Þessa dagana vinna tveir Þjóðverjar að uppsetningu vatnspökkunarvéla fyrir Akva hf. í Mjólkurstöð KEA á Ak-
urcyri. Ef allt gengur að óskum verður byrjað að pakka vatni í fernur upp úr mánaðamótum. Á myndinni stendur
Júlíus Kristjánsson starfsmaður Akva við hluta vélasamstæðunnar. Mynd: KGA
Haustþing framhaldsskóla-
kennara var haldið í Möðru-
vallakjallara um fyrri helgi.
Um 200 manns sóttu þingið
víðsvegar að af landinu. Aðal-
þema þingsins var kennsla er-
lendra tungumála.
Einnig var á þinginu fjallað um
ráðningu kennara og kom frami
að aldrei hefur verið erfiðara en
á þessu hausti að fá kennara til
IQclfere
Gleraugu
starfa. Aðalorsök þess eru talin
kjaramál kennara.
Á þinginu var einnig rætt um
aðbúnað og vinnuaðstöðu
kennara og hvað mætti bæta í
þeim efnum. Ákveðið var að
halda viðræðum um betri vinnu-
aðstöðu áfram og gera tillögur
um hvað betur mætti fara. Þá var
fjallað um gerð námsefnis, en
skortur er mikill á námsefni í
ýmsum sérgreinum. Rætt var um
hvað helst þyrfti að gera til að
bæta þá hlið málsins. - mþþ
Ungir gestir og gestgjafar halda til fiskveiða. Þeir gátu mannað 6 báta Húsa-
víkurflotans. Mynd: IM
Frá þingi framhaldsskólakennara. Mynd: KGA
Ráðning kennara,
vinnuaðstaða og
skortur á námsefni
- til umræðu á haustþingi framhaldsskólakennara