Dagur


Dagur - 23.09.1985, Qupperneq 12

Dagur - 23.09.1985, Qupperneq 12
Bflapernr 6-12 og 24 volta TegUNdÍr SAMLOKUR fyrir og án peru Kópasker: Utlitið ekki gott með rækjuvertíðina „Þetta kom ekki nogu skemmtilega út,“ sagði Jón- björn Pálsson hjá Hafrann- sóknastofnuninni á Húsavík, er hann var spurður um þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á rækjugengd í Öxar- firði. Norðurland: Mikil aukning á þorsk- veiði báta Þorskafli sem borist hefur á land til vinnslu á Norðurlandi var 10 þúsund tonnum meiri á tímabilinu janúar til ágúst í ár en á sama tíma í fyrra. í ár hefur 58.424 (48.439) tonnum af þorski verið landað á Norðurlandi. Þar af veiddu togarar 39.512 (36.818) go bátar 18.912 (11.621). Tölur frá árinu í fyrra eru í svigum. Af öðrum botnfiski hefur hins vegar veiðst ívið minna í ár en á sama tíma í fyrra eða 22.948 (26.449). Heildarafli togaranna er því þeg- ar upp er staðið því sem næst sá sami í ár og á sama tíma í fyrra. Veiðiaukningin hjá bátunum liggur aftur á móti öll í þorsk- inum því þar hefur veiði á öðrum botnfiski staðið í stað. Ef litið er á ágústmánuð sér, þá kemur í ljós í bráðabirgða- tölum frá Fiskifélagi íslands að 25.586 (13.333) tonn af fiski hafa borist á land og munar þar mest um 15.592 tonn af loðnu en engin loðnuveiði var í ágústmánuði í fyrra. -yk. „Ástandið er gjörólíkt því sem var í fyrra, því þá var rækja svo til um allan flóa. En núna fund- um við ekki nema tvo örlitla bletti. Að vísu stóð hún þétt á þeim blettum en þeir eru litlir." Jónbjöru reinaði með að það færu fram frekari rannsóknir á þessum slóðum síðar. „Það er heldur ekki útilokað að rækjan eigi eftir að dreifa sér meira þeg- ar fer að líða á haustið," sagði hann. Kristján Ármannsson sem er oddviti á Kópaskeri, og jafnframt framkvæmdastjóri rækjuvinnsl- unnar Sæbliks hf. sagði að þeir vonuðu að breytingar yrðu á þessu. Það á eftir að rannsaka þetta frekar svo við vonum að þetta fari allt vel.“ Kristján sagði að rækjuvinnslan hefði komið mjög vel út á síðasta ári, svo það yrði mikið áfall ef þetta brygðist nú. Rækjuveiði hefst venjulega í september eða október, og stendur fram í apríl. Fyrirhugað er að byrja veiðar eftir sláturtíð, því mikið er að gera á þessum árstíma hjá fólki. gej- Fyrsti Kanadatogarinn, sem vinna á við hjá Slippstöðinni á Akurcyri, kom um helgina. Mynd: KGA. Stuðmenn: Dansleikur í stað tónleika „Stuðmenn sóttu hér um leyfí fyrir tónleika og fengu það, og ég hef ekki áreiðanlegar heim- ildir fyrir því að um dansleik hafi verið að ræða,“ sagði Sig- urður Eiríksson fulltrúi bæjar- fógeta á Akureyri í samtali við Dag. Sl. laugardagskvöld var hald- inn mikill dansleikur í samkomu- húsinu Freyvangi í Eyjafirði. Er talið að þar hafi verið á fimmta hundrað ungmenna sem greiddu 750 krónur hvert í aðgangseyri. Samanlagður aðgangseyrir mun því hafa verið á fjórða hundrað þúsund krónur. En Stuðmenn, sem héldu þennan dansleik fengu leyfi fyrir tónleika en ekki dansleik. Við spurðum Sigurð Eiríksson hvaða munur væri á þessum leyfum. „Þegar haldnir eru tónleikar er ekki greiddur söluskattur eða skemmtanaskattur eins og gert er þegar um dansleik er að ræða. Annars var lögreglan þarna á staðnum og mun gefa skýrslu um málið, og það verður svo athugað um framhaldið ef ástæða þykir til.“ gk-. Húsavík: Innheimta gengur erfiðlega Bæjarstjóm Húsavíkur hélt ný- Iega sinn fyrsta fund eftir sumarleyfí. Margvísleg málefni lágu fyrir fundinum. Samþykkt var gjaldskrárhækkun fyrir barna- og dagheimilið Besta- bæ. Nemur hækkunin 15% og tekur gildi 1. október. Einnig var samþykkt hækkun aðgangs að sundlauginni frá sama tíma. Kostar nú 40 kr. fyrir full- orðna, en 20 kr. fyrir börn. Rætt var um að innheimta bæjargjalda, - sérstaklega gjalda hitaveitu og rafveitu - gengi erf- iðlega hjá nokkrum fyrirtækjum í bænum. Þrengdi þetta stöðu bæjarsjóðs, til að standa við skuldbindingar sínar út á við. Umræður úrðu um að nú lægi fyrir að koma upp sundlaug fyrir landsmót UMFI sem fram fer á Húsavík 1987, þar sem UMFÍ hafnaði tillögu um að sundmótið færi fram í sundlauginni í Reykjahlíð í Mývatnssveit. At- hugað verður hvort hagkvæmara verður að reisa sundlaug til bráðabirgða eða steypa upp var- anlega laug. - IM Akureyri: „Erfitt að fáfolk til starfa“ „Staðan á vinnumarkaði á Ak- ureyri er þannig núna að það er víða erfítt að fá fólk til starfa,“ sagði Jón Sigurðarson, formaður Atvinnumálanefndar Akureyrar aðspurður um at- vinnuástand á Akureyri um þessar mundir. Það hefur löngum verið hvað mest að gera á haustin en hvernig eru horfurnar í vetur? Jón kvaðst telja að horfumar í atvinnumál- um væru skárri nú en marga undanfarna vetur. Með tilkomu nýs togara ÚA og þess kvóta sem honum fylgir er útlit fyrir að nóg verði að gera hjá Utgerðarfélag- inu og nær að óttast vinnuafls- skort en fiskleysi. - yk. Veðrið í dag: Hæg- viðri, skýjað með köfl- um og hitinn verður á bilinu 5 til 10 stig. Ekki sem verst. Og þetta er samkvæmt upplýsingum veður- fræðings Veðurstof- unnar í morgun. • Mátti ekki tala um kjöt Blaðamenn lenda stundum í hinum skrýtnustu hlutum og svo fór fyrir útsendara Helg- arpostsins sem á dögunum hugðist ræða við yfirmann Stokknesstöðvar varnarliðs- ins nærri Hornafirði. - Yfir- maðurinn kvaðst mjög gjarn- an vilja ræða við blaðamann- inn en hann þyrfti fyrst að fá leyfi til þess frá blaðafulltrúa hersins á Keflavíkurflugvelli. - Þegar til kom reyndist það leyfi ekki fáanlegt og var ekki annað að heyra en að yfir- manninum í Stokknesstöðinni þætti það miður. Svo fór HP að kanna hvað hefði valdið þessu og þá voru svör blaða- fulltrúans þau að viðtalið hefði ekki verið veitt vegna þess að hann héldi að um- ræðuefnið ætti að vera kjöt og innflutningur varnarliðs- ins á því hingað til lands. Blaðamaðurinn varð að von- um hissa og sagðist ekki hafa gert sér ferð til Horna- fjarðar til að ræða um kjöt, en blaðafulltrúanum varð ekki hnikað. • Línur milli hnitpunkta „... í samræmi við samþykkt miðbæjarskipulags vestan og norðan ióða félagsins við Hafnarstræti 87-89. Öll lóðin Hafnarstræti 87-89 takmark- ist af línum milli hnitpunkt- anna nr. 10-11-12-13-14-24- 27-37-36-35-45-56-54-55-57- 9-10, samanber mæliblað nr. 682.1....“ Ofanritað er úr fundargerð bygginganefndar á Akureyri og menn geta svo sem dundað sér við að reyna aö skilja! • Að leita í lit Björgunarsveitarmaður, sem þaulvanur er að bregða sér á öræfin til hjálpar nauðstödd- um eða leitar að týndu fólki, fór á dögunum í göngur með bændum. Undi sér hið besta á heiðum uppi og ætlar aftur næsta haust. En þá vonar hann að gangna- menn verði búnir að tileinka sér hinn ágæta sið björgun- arsveitarmanna, að nota skærlita búninga til fjalla- ferða. Vita ekki aliir hvers vegna?

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.