Dagur - 18.11.1985, Síða 1
68. árgangur Akureyri, mánudagur 18. nóvember 1985 144. tölublað
Óveðrið um helgina:
- Umsögn Gísla
Sigurgeirssonar um
Jólaævintýrið - bls. 9
Allt um
helgarinnar
-í opnu
Tré rifnaði upp
- Víða fuku járnplötur af þökum
Mig
langaði
heim
Viðtal dagsins bls. 2
Þakplötur rifnuðu af húsum og
mikið af heyi fauk út um allan
dal.
í gærmorgun varð aftur mjög
hvasst og þá lagðist bárujárns-
veggur í kringum vélsmiðjuport
á Blönduósi niður. Til að koma í
veg fyrir að plöturnar fykju yfir
íbúðahverfi sem var hlémegin við
vélsmiðjuna var griþið til þess
Skemmdir urðu víða á Norður-
landi í óveðrunum sem gengu
yfir landið í gær og á föstudag-
inn, sérstaklega vestan til.
Á föstudaginn urður skemmdir
mestar í Vatnsdal. Þar gerðist
m.a. sá fátíði atburður að gamalt
tré rifnaði upp við Forsæludal
sem er innsti bær í Vatnsdal.
ráðs að keyra jarðýtu og vörubíl
ofan á girðinguna.
Ekki hafa borist fréttir af
meiriháttar óhöppum annars
staðar á Norðurlandi en víða
fuku járnplötur af húsum og á
Akureyri skemmdist a.m.k. einn
bíll við það að verða fyrir járn-
plötu. -yk.
Stora flugskýlið á Akureyrarflugveili opnaðist á óvenjulegum stað á föstudaginn. Það var hann Kári sem reif gat á
suðvesturhorn skýlisins og hér er barist við að loka á eftir honum. Mynd: -yk.
Norræna menningarmálastofnunin:
Tryggvi Gíslason
ráðinn deildarstióri
Tryggvi Gíslason, skólameist-
ari Menntaskólans á Akureyri,
hefur verið ráðinn deildarstjóri
við Norrænu menningarmála-
skrifstofuna í Kaupmanna-
höfn. Ráðningartíminn er fjög-
ur ár og mun Tryggvi hefja
störf þann 1. aprfl n.k.
Tryggvi sagði í samtali við Dag
að verið væri að breyta skipulagi
Norrænu menningarmálaskrif-
stofunnar sem starfað hefur frá
árinu 1972. Fram til þessa hefur
hún starfað á tveimur stöðum
aðallega, í Ósló og Kaupmanna-
höfn en verður nú starfrækt ein-
göngu í Kaupmannahöfn.
Starfsemi Norrænu menning-
armálaskrifstofunnar er skipt
niður í fimm fagdeildir og mun
Tryggvi veita einni þeirra for-
Halldór Asgrímsson, sjávarútvegsráðherra:
Mikil verðmætaaukning
í kjölfar kvótakerfisins
Að sögn Halldórs Asgrímsson-
ar sjávarútvegsráðherra spör-
uðust líklega u.þ.b. 400
milljónir króna á árinu 1984
með breyttri sókn fiskiskipa
vegna kvótakerfisins. 85.5%
aflans fóru ■ fyrsta flokk á móti
80% árið áður. Þessi breyting
hafði í för með sér um 200
milljón króna verðmætaaukn-
ingu á afla upp úr sjó. Rækju-
veiðar jukust mjög mikið I
kjölfar breyttrar fiskveiða-
stjórnunar á árinu 1984 og
nemur su aukning 700-800
milljónum króna. Samanlagt
þýðir þetta verðmætaaukningu
um hátt á annan milljarð
króna.
Halldór sagði að öll þessi
aukning á verðmætasköpun ís-
lensks sjávarútvegs væri ekki
bein afleiðing kvótakerfisins en
hún væri vissulega sterk vísbend-
ing um hagkvæmni þeirrar stefnu
sem nú er við líði í stjórnun fisk-
veiða.
Samkvæmt framkomnum spám
mun árið í ár verða mesta aflaár í
sögu íslensks sjávarútvegs og er
búist við að heildaraflinn verði
um 1.671 þús, lesta. Metið sem
nú er í gildi var sett árið 1979 en
þá bárust alls 1.649 þús. lesta á
land. Þessar tölur segja hins veg-
ar ekki nema hálfa sögu þar sem
athuga verður samsetningu aflans
til að hægt sé að spá um verðmæti
hans. Sem dæmi má nefna að
þrátt fyrir að aflinn verði 1671
þús. lesta í ár en hafi aðeins verið
839 þús. lesta árið 1983 þá verður
verðmæti aflans í ár ekki nema
fimmtungi hærra en það var árið
1983. Það sem ræður úrslitum um
þessa aflaaukningu er fyrst og
fremst mikill loðnuafli.
Aðspurður kvaðst Halldór
vera ánægður með samþykkt
Fiskiþings þess efnis að kvóta-
kerfið skyldi vera í gildi næstu
tvö ár en hann kvaðst þó sérstak-
lega vera ánægður með það
hversu góð samstaða hefði náðst
innan sjávarútvegsins í heild.
-yk.
stöðu. Sú deild fjallar um skóla-
og menntunarmál, menningu og
fjölmiðlun.
Tryggvi flytur til Danmerkur í
vor og fær á sama tíma leyfi frá
störfum sem skólameistari
Menntaskólans á Akureyri. BB.
Pizzaria de Cosimo:
Skiptimynt
stolið
Aðfararnótt laugardags var
brotist inn í Pizzaria de Cos-
imo í Brekkkugötu 7.
Brotin var rúða á suðurhlið
hússins og farið þar inn. Þar
komust innbrotsþjófarnir í pen-
ingakassa með skiptimynt og létu
greipar sópa. Lítið var af pening-
um í kassanum og sjónarvottar
gátu bent lögreglunni á hverjir
þarna voru á ferð. -vk.
Óká
Ijósastaur
í gærmorgun lenti fólksbfll á
ljósastaur, sunnarlega á Hlíö-
arbraut á Akureyri.
Bæði staurinn og bíllinn
skemmdust mikið, að sögn lög-
reglu, en ökumaður sem var einn
í bílnum slapp ómeiddur. Ekki er
vitað um orsakir slyssins en mjög
hvasst var þegar það átti sér stað
og kann ökumaðurinn að hafa
fipast við stjórn bílsins af þeim
sökum. -vl