Dagur


Dagur - 18.11.1985, Qupperneq 11

Dagur - 18.11.1985, Qupperneq 11
18. nóvember 1985 - DAGUR - 11 Bakarameistarar um fyrirhugað vörugjald á brauð: „Órökræn skattheimta" Nýbakaður fjármálaráðherra, sem hefur þá yfirlýstu stefnu að draga úr skattheimtu, hefur ný- verið flutt fjárlagaræðu sína. Þegar gluggað er í fjárlagaræðu ráðherrans kemur ýmislegt fróð- legt í ljós. Það sem mestu furðu þó vekur, er stórkostleg aukning skattheimtu í formi vörugjalds, sem gefa á ríkissjóði lítinn millj- arð í beinar tekjur. Hefur þá ver- ið tekið tillit til fyrirhugaðra tollalækkana og lækkunar á tekjuskatti sem sjálfsagt hefur verið hugsuð sem dúsa, til að kaupa nokkurn frið vegna skatt- heimtu þessarar. Brauð er meðal þeirra vöruflokka, sem ætlunin er að innheimta 30% vörugjald af miðað við framleiðsluverð. Vegna þessara hugmynda leyfir Landssamband bakarameistara sér að hreyfa eftirfarandi: 1. Álagning vörugjalds er í eðli sínu afar órökræn skatt- heimta. Vörugjaldið leggst á suma vöruflokka, en aðra ekki, og er þannig til þess fall- ið að hafa óeðlileg áhrif á neysluval almennings. Brauð, sem er viðurkennd hollustu- vara og nauðsynleg í fæðu fólks, á að skattleggja um 30%, en aðrar mikilvægar fæðutegundir eins og kjöt og fiskur eru undanþegin skatt- heimtunni, svo dæmi sé tekið. Augljóst er, að vörugjaldið hefur í för með sér minnkandi neyslu á brauðvörum, en áð sama skapi aukna neyslu ann- arrar matvöru, sem ekki er gjaldskyld. Landssamband bakarameistara mótmælir harðlega órökrænni skatt- heimtu af þessu tagi. 2. Viðurkennt er af sérfræðing- um, að kornmeti eins og brauð sé einhver hollasta fæða, sem mönnum er tiltæk. Jafnframt hefur verið á það bent af sérfræðingum, að auk- in neysla brauðmetis bæti heilsufar og sé liður í fyrir- byggjandi heilsuverndarstarfi. Það vekur því nokkra furðu, að brauð skuli nú eiga að skattleggja og að þau, nánast ein hollustuvara, skuli tekin út úr að þessu leyti. Svo virðist nefnilega sem vörugjalds- skyldar neysluvörur eigi fyrst og fremst að vera þær, sem hingað til hafa ekki þótt sér- staklega hollar. Með hug- myndum um upptöku vöru- gjalds á brauð er verið að skipa þessari mikilvægu fæðu á Sekk með sælgæti og gos- drykkjum. Landssamband bakarameistara telur vinnu- brögð af þessu tagi út í hött, og í engu samræmi við hug- myndir um fyrirbyggjandi starf á sviði heilsugæslu og stórfelldan sparnað í opinber- um útgjöldum, sem á þann hátt mætti ná. 3. Þegar leitað hefur verið eftir hækkunum á „vísitölubrauð- unum“ svonefndu hefur af stjórnvöldum beint og óbeint verið til þess vísað, að brauð séu vörugjaldsskyld skv. lögum. Þeirn lögum yrði hins vegar ekki fylgt eftir meðan „vísitölubrauðin" væru undir verðlagsákvæðum, enda hefði þessi gjaldtaka í för með sér ekki aðeins gífurlega hækkun á almennri brauðvöru, heldur einnig á „vísitölubrauðum". Þessar hótanir um innheimtu vörugjalds á brauð hafa löng- um slegið á harðari kröfugerð af hálfu Landssambands bak- arameistara varðandi verðlag á „vísitölubrauðum“. Nú hef- ur á hinn bóginn verið tekin ákvörðun um að innheimta vörugjald af öllum brauðum frá og með næstu ármótum. Það eru því stjórnvöld sjálf, sem ríða á vaðið með stór- fellda hækkun „vísitölu- brauða", þeirra sömu brauða, sem bakarameistarar hafa ver- ið neyddir til að selja undir kostnaðarverði árum saman „til að gefa barnmörgum fjöl- skyldum kost á ódýrri og hollri brauðvöru", eins og það hefur hljómað í munni stjórn- málamanna og embættis- manna. Þessi vörugjaldstaka stjórnvalda nú er í samræmi við þann tvískinnung, sem ríkir á þessum bæ og lýsir sér í óskráðu reglunni: „Pegar ríkissjóð vantar peninga í kassann, skipta fagleg vinnu- brögð engu máli. Félagar Landssambands bakarameist- ara skora á fjármálaráðherra, ríkisstjórn og alþingsmenn að láta af öllum áætlunum um innheimtu vörugjalds af brauði. Brauð- og kökugerð er stærst matvælagreina hér á landi og veitir 700 manns fulla atvinnu. Afkoma greinarinnar og þeirra, sem í henni starfa er teflt í tvísýnu, komist hug- myndir um vörugjald á brauð til framkvæmda. Bakarameistarar telja ekki ráðlegt að setja vörugjald á brauð. brúða t.d. hanskabrúður, stang- arbrúður, brúðugerð sem nefnd er marotten og stórar brúður sem stjórnandinn fer innan í. Einnig verða í Dynheimum brúðuleiksýningar. Sýndir verða leikþættirnir „Feluleikurog „Lilli gerist barnfóstra" en þeir voru báðir sýndir í Brúðubílnum í sumar sem leið. Sýnt verður fyrir leikskólana á Akureyri fimmtudag og föstudag og fyrir almenning verða sýning- ar sunnudaginn 24. nóvember klukkan 14 og klukkan 16. Miða- verð er kr. 150.00. Sala hefst klukkan 12.30. Sýningin tekur llA klukkustund. Það eru þær Helga og Sigríður Hannesdóttir sem sjá um sýningar í Brúðubíln- um. Dagana 23. nóvember til 2. des- ember heldur Helga Steffensen sýningu á leikbrúðum sínum í sýningarsal Dynheima á Akur- eyri. Sýningin er opin frá klukk- an 14-19 virka daga og klukkan 14-22 á sunnudögum. Sýndar verða 60 leikbrúður, sem allar hafa komið fram á sviði eða í sjónvarpinu á síðastliðnum árum. Elsta brúðan er frá 1969, en það er Sigga sem var í sjón- varpsþáttunum „Sigga og skessan “. Þarna eru ýmsar tegundir leik- Helga Steffensen ásamt nokkrum brúðum. Leikbrúðu-hátíð í Dynheimum á Akureyri Nauðungaruppboð sem auglýst var í 41., 45. og 48. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á fasteigninni Fjólugötu 10, Akureyri, þingl. eign Brynjólfs Snorrasonar, fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árnasonar hdl., Har- aldar Blöndal hrl. og Brunabóteíélags íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 22. nóvember kl. 16.45. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 52., 65. og 68. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Sunnuhlíð 12, H-hluta, Akureyri, þingl. eign Smára hf., fer fram eftir kröfu bæjargjaldkerans á Akureyri og innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 22. nóvember 1985 kl. 14.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 41., 45. og 48. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á fasteigninni Óseyri 16, Akureyri, þingl. eign Varar h.f., fer fram eftir kröfu inniheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri föstudaginn 22. nóvember 1985 kl. 14.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 1., 27. og 33. tbl. Lögbirtingablaðsins 1985 á fasteigninni Grenilundi 15, Akureyri, þingl. eign Hauks Þórs Adólfssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á fasteigninni sjálfri föstudaginn 22. nóvember 1985 kl. 17.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 128., 130. og 133. tbl. Lögbirtingablaðsins 1983 á fasteigninni Arnarsíðu 6d, Akureyri, þingl. eign Ásgeirs Inga Jónssonar, fer fram eftir kröfu veðdeildar Landsbanka íslands, Jóns Sveinssonar hdl., Tryggingastofnunar ríkisins og bæjargjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 22. nóvember 1985 kl. 16.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Kjalarsíðu 18d, Akureyri, talinni eign Árna Þorvaldssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns rikissjóðs, Gunnars Sólnes hrl., Ásgeirs Thoroddsen hdl. og bæjargjald- kerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 22. nóvember 1985 kl. 13.30. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Ægisgötu 13, Akureyri, þingl. eign Svein- ars Rósantssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árnasonar hdl. og Gunnars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 22. nóv- ember 1985 kl. 15.15. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Vanabyggð 2b, Akureyri, talinni eign Eð- varðs R. Guðbjörnssonar, fer fram eftir kröfu Jóns-Bjarnason- ar hrl., Valgarðs Briem hrl„ Guðmundar Jónssonar hdl., Út- vegsbanka fslands, lögfræðingad., bæjargjaldkerans á Akur- eyri og Gunnars Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 22. nóvember 1985 kl. 15.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð annað og síðasta á Eyrarlandsvegi 22, Akureyri, talinni eign Hjörleifs Gísiasonar, fer fram eftir kröfu Útvegsbanka islands, lögfræðingadeildar, bæjargjaldkerans á Akureyri, Gunnars Sólnes hrl., Ólafs B. Árnasonar hdl., Ólafs Gústafssonar hdl., Verslunarbanka íslands, Ásgeirs Thoroddsen hdl. og Bruna- bótafélags íslands á eigninni sjálfri föstudaginn 22. nóvember 1985 kl. 14.45. Bæjarfógetinn á Akureyri.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.