Dagur - 17.01.1986, Síða 11
17. janúar 1986 - DAGUR - 11
- Sigmundur
Ernir Rúnarsson
- Já, það er hann.
- Til hamingju
með þáttinn
ykkar í gær; hvernig líður þér í
dag?
- Mér líður bærilega, ég er
svona rétt að komast niður á
jörðina.
- Hvernig kom það til, að þú
tókst þetta að þér. Nú hafði
maður ekki heyrt á þig minnst í
þessu sambandi, það sást ekki
einu sinni í slúðurdálkum Helg-
arpóstsins?
- Nei, það var ekki nema
von, þetta bar svo brátt að. Það
var hringt í mig heim, þar sem
ég lá í flensu. viku fyrir útsend-
ingu. Ástæðan fyrir þessum
skamma fyrirvara var sú, að sá
sem átti að vera með Ómari og
Agnesi forfallaðist á síðustu
stundu. Nú, ég sló til. Ég hef
skrifað pistla um sjónvarpið í
Helgarpóstinn, þar sem ég hef
sett út á eitt og annað í þeim
fjölmiðli, sérstaklega hvað inn-
lenda dagskrárgerð varðar.
Þess vegna gat ég ekki neitað
þessu boði móralskt séð. Þar að
auki hef ég alltaf litið þennan
miðil hýru auga sem blaðamað-
ur; þetta er eitthvað sem hvern
blaðamann dreymir um. En
þetta var rosaleg eldskírn, því
ég hafði aldrei komið nálægt
sjónvarpi áður, hafði ekki einu
sinni komið inn fyrir veggi sjón-
varpshússins."
- Hvernig var svo líðanin
fyrir útsendingu?
- Ég var nú svolítið óttasleg-
inn framan af miðvikudeginum,
af því að mér fannst ég ekki
nægilega stressaður. En þegar
áhorfendur voru komnir í sal-
inn fann ég að það voru óþarfa
áhyggjur. Þá fann ég að alvaran
var að nálgast, munnurinn gat
þornað upp á augabragði og
maginn var sérstaklega slæmur.
Svo þegar þátturinn byrjaði,
þá vorum við send allt of
snemma inn, á meðan upphafs-
stefið var í gangi. Ómar var
byrjaður að kynna, en þá vor-
um við send til baka og látin
byrja upp á nýtt. Ég signdi mig
bara og hugsaði; nú þetta byrj-
ar þá svona, því mér datt ekki
annað í hug en klúðrið hefði
allt farið í loftið. En fall er far-
arheill, því þátturinn gekk
áfallalítið í útsendingu eftir
þetta. Þetta atvik varð til þess
að maður var sveittari í upphaf-
inu en annars hefði orðið, en
það lagaðist.
- En hvernig var sálar-
ástandið þegar allt var búið?
- Pá fann ég fyrst hvað ég
var orðinn þreyttur, því í svona
vinnu gleymir maður þreytunni
fyrir stressi. En þegar þátturinn
var búinn þá helltist þreytan
yfir mig, þreyta sem hafði safn-
ast fyrir í marga daga.
- Hvernig vinnið þið svona
,petta var
eldskím
u
- Sigmundur Emir Rúnarsson,
nýslegin sj ónvarpsstj ama,
er á línunni
þátt, tekur undirbúningurhvers
þáttar alla vikuna?
- Já, þetta er vikuprógram.
Þetta er allt önnur vinna heldur
en á blaði, því við þáttagerð
fyrir sjónvarp þarf að leysa ótal
smáatriði. Svo þarf að panta
tæki, því tækjakostur sjón-
varpsins er í rýrasta lagi og
margir um að nota hann. Það
þarf því að samræma vinnudag-
inn, þannig að tækjakosturinn
nýtist sem best. Skipulag er því
mikið atriði.
- Er ef til vill stefnt aðþvíað
þátturinn komi á skjáinn oftar
en einu sinni í viku?
- Já, sú hugmynd hefur
komið upp, að hafa þáttinn
einnig á dagskrá á sunnudags-
kvöldum. Persónulega finnst
mér það of mikið. Ég held að
dagskrá íslenska sjónvarpsins
sé það stutt, að svona þáttur
tvisvar í viku yrði allt of áber-
andi. Þar að auki yrði hann
helmingi fljótari að tæma sig
hvað efni varðar. En það ræðst
í febrúar, hvort úr þessu
verður.
- Nú stefnið þið mikið á
beinar útsendingar frá „líðandi
stundu“. Kemur það ekki niður
á efni frá landsbyggðinni?
- Jú, það má vera, en ég ætla
að reyna að gæta hagsmuna
landsbyggðarmanna, sem sann-
ur Akureyringur. ( næsta þætti
verðum við t.d. með 15 mín-
útna prógram frá Akureyri, þar
sem við gerum úttekt á Silfur-
túnglinu, sem Leikfélag Akur-
eyrar er að frumsýna. Við ætl-
um að leita liðsinnis hjá Bíla-
klúbbnum, til að ná fram þeim
tíðaranda, sem ríkti árið 1954,
en efni leikritsins er sótt til þess
tíma.
- Ætlið þið að vinna það efni
sjálfir, sem tekið verður úti á
landsbyggðinni?
- Já, ég býst við því að það
verði gert hvað dagskrárgerð
varðar, því þá verður sent
tæknilið og umsjónarmenn héð-
an og það er lögð áhersla á að
sama fólkið vinni sem mest
saman. Það er hins vegar ekki
afráðið hvernig fréttatengt efni
verður unnið.
- Leikfélag Akureyrar verð-
ur ínæstaþætti; eitthvað fleira?
- Já, já, en við skulum segja
að það sé leyndarmál enn. En
við reynum að koma á óvart.
Meginstefnan er að grípa
„augnablikið". Það er málið.
- Pú byrjaðir þína blaða-
mennsku á gamla góða Vísi, en
fórst með honum inn í DV og
undanfarin ár hefur þú verið á
Helgarpóstinum. Ertu þá hætt-
ur þar?
- Ekki alveg, ég ætla að
halda tengsluin við blöðin með
því að skrifa þar grein og grein.
Það er nú einu sinni sinni svo,
að þegar maður er búinn að
taka þessa bakteríu í sig, þá
losnar maður ekki við hana.
- Hvað með Akureyringinn
í þér, er hann ekkert farinn að
biðja um að komast norður?
- Jú, mann er farið að langa
til að kíkja norður, ekki síst
vegna þess að atvinnutækifæri
fyrir blaðamenn þar eru orðin
mörg og freistandi. Dagur er
orðinn til í orðsins fyllstu nierk-
ingu og svo eru ljósvakamiðl-
arnir allir að færast í aukana.
Þar að auki höfðar þessi stærð-
argráða af bæjarfélagi til mín.
Fjöldinn hér í Reykjavík er
ekki það sem hentar mér best;
ég vil annað hvort vera í millj-
ónaborg eða tiltölulega fá-
mennum stöðum. Akureyring-
urinn er því við góða heilsu.
- Pakka þér fyrir spjallið
Sigmundur og gangi ykkur vel
með þáttinn. Pú mátt eiga loka-
orðin.
- Já, þakka þér sömuleiðis.
Ég bið kærlega að heilsa í
bæinn.
-GS
. , A>.
"iiinTTr
Á
innin irr rmrmrm
[1x1 rm m rm LIIJ rm
Frá Menntaskólanum
Á Akureyri
Innritun í Öldungadeild fyrir vorönn 1986 er á skrif-
stofu skólans virka daga frá kl. 8-12 og frá 13-15
fram til 24. janúar. Viö innritun skal greiða innritunar-
gjald kr. 3.200.
Skólameistari.
Auglýsing
frá ríkisskattstjóra
Vísitala jöfnunarhiutabréfa
Samkvæmt ákvæöum 5. og 6. málsl. 1. mgr. 9. gr.
laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt hefur
ríkisskattstjóri reiknað út vísitölu almennrar verð-
hækkunar í sambandi við úgáfu jöfnunarhlutabréfa á
árinu 1986 og er þá miðað við að vísitala 1. janúar
1979 sé 100.
1. janúar 1980 vísitala 156
1. janúar 1981 vísitala 247
1. janúar 1982 vísitala 351
1. janúar 1983 vísitala 557
1. janúar 1984 vísitala 953
1. janúar 1985 vísitala 1.109
1. janúar 1986 vísitala 1.527
Við útgáfu jöfnunarhlutabréfa skal annars vegar
miða við vísitölu frá 1. janúar 1979 eða frá 1. janúar
næsta árs eftir stofnun hlutafélags eða innborgunar
hlutafjár eftir þann tíma, en hins vegar við vísitölu 1.
janúar þess árs sem útgáfa jöfnunarhlutabréfa er
ákveðin.
Reykjavik 2. janúar 1986.
Ríkisskattstjóri.
Akureyringar - Bæjargestir
Komið og njótið góðra veitinga og skemmtunar
í nýjum glæsilegum veitingastað.
Laugardagskvöldið 18.janúar 1986 bjóðum við upp á:
* Forréttir * * Kjötréttir *
Graflax meö diilsósu Lambahryggur meö
Innbakaöur kræklingur íslenskum fjallajurtum Heilsteiktar naulalundir
* Súpur * Bourguingnonnne
Lauksúpa meö madeira * Ábætisréttir *
og eggjarauöu
Fiski- og appelsínusúpa Bláberjafrauöís á rjómaskyri Súkkulaðiterta meö mintuís
* Fiskur *
Blandaö sjávargratin
Lilja Hjaltadóttir og Kristinn Örn Kristinsson
leika létt lög fyrir matargesti.
Kvöldverður framreiddur frá kl. 19.00.
Borðapantanir (aðeins fyrir matargesti) í síma 22200.
Stórdansleikur
Hinn landskunni Haukur i
Morthens og hljómsveit 1 #
ásamt hljómsveitinni BöJ!IS
leika fyrir dansi til kl. 03.00.
Húsið opnað kl. 10.30 fyrir dansgesti.
Verið velkomin.
HOTEL KEA
Borðapantanir
teknar í
síma 22200.
AKUREYRI