Dagur - 30.01.1986, Blaðsíða 3

Dagur - 30.01.1986, Blaðsíða 3
30. janúar 1986 - DAGUR -3 Kristján Sigfússon matreiðslunemi á Hótel KEA með myndarlegan þorrabakka. Mynd: GEJ. Hótel KEA: Þorramaturínn vinsæll „Það er óhætt að segja að þorramaturinn geri mikla lukku og það er allt upppantað hjá okkur næstu helgar, við hreinlega komumst ekki yfir að afgreiða meira,“ sagði Rún- Bikarkeppni Norðurlands í bridge: Búið að draga í 3. umferð Dregið hefur verið í þriðju um- ferð í Bikarkeppni Norður- lands í bridds. Ólokið er tveimur leikjum úr annarri umferð og verða þeir spilaðir í byrjun febrúar. Eftirtaldar sveitir spila saman í átta sveita úrslitum og á sú sveit heimaleik sem talin er á undan: 1. Stefán Sveinbjörnsson, Sval- barðsströnd/Helgi Steinsson, UMSE - Ásgrímur Sigurbjörns- son, Siglufirði. 2. Zarioh Hamadi, Akureyri - Sjóvá, Akureyri. 3. Gunnar Berg, Akureyri - Gunnlaugur Guðmundsson, Ak- ureyri. 4. Pétur Guðjónsson, Akureyri - Halldór Tryggvason, Sauðár- króki/Haukur Harðarson, Akur- eyri. Leikjum í þriðju urnferð þarf að vera lokið um mánaðamótin febrúar-mars. ar Gylfason yfírmatreiðslu- maður á Hótel KEA í samtali við Dag. Rúnar sagði að á hótelinu væri mikið um árshátíðir nú á næst- unni, mikið væri bókað af slíkum samkomum. Þá eru þorrablót víða í Eyjafirði sem hótelið sér um og er greinilegt að þorra- maturinn er síður en svo á undanhaldi eins og sumir hafa viljað halda fram. Á þorrabakkanum frá KEA kennir ýmissa grasa og má nefna í því sambandi sviðasultu, hrúts- punga, súrt pressað kjöt, hval, hangikjöt, lambasteik, saltkjöt, harðfisk, smjör, hákarl, kartöfl- ur, rófustöppu, laufabrauð og flatbrauð. Akureyrarmót í tvímenningi: Magnús og Gunnlaugur saxa á forskotiö Lokið er 31 umferð af 39 í tví- menningskeppni Bridgefélags Akureyrar, Akureyrarmóti. Alls spila 40 pör eftir Barometer- fyrirkomulagi. Það þýðir að allir í salnum spila sömu spilin. Röð efstu para er þessi: Stig 1. Soffía Guðmundsdóttir - Dísa Pétursdóttir 338 2. Magnús Aðalbjörnsson - Gunnlaugur Guðmundsson 283 3. Árni Bjarnason - Örn Einarsson 232 4. Stefán Ragnarsson - Kristján Guðjónsson 207 5. Þormóður Einarsson - Kristinn Kristinsson 195 6. Jóhann Gauti - Svcinbjörn Jónsson 184 7. Ólafur Ágústsson - Pétur Guðjónsson 176 8. Páll Pálsson - Frímann Frímannsson 157 9. Stefán Sveinbjörnsson - Máni Laxdal 146 10. Arnar Daníelsson - Stefán Gunnlaugsson 129 Síðustu 8 umferðirnar verða spil- aðar n.k. þriðjudagskvöld í Fé- lagsborg og hefst spilamennskan klukkan 19.30. Næsta keppni Næsta keppni Bridgefélags Akur- eyrar verður Sjóvá-sveitahrað- keppni og hefst hún þriðjudaginn 11. febrúar. Sennilega verður spilað 4-5 þriðjudagskvöld. Þátttakendur eru beðnir að skrá sig sem fyrst hjá stjórn félagsins. Um helgina spila 13 Sveitir af Norðurlandi eystra um þátttöku- rétt einnar sveitar á íslandsmót. Spilað verður í Félagsborg og hefst spilamennskan klukkan 19.00 á t'östudagskvöld. Spilaðar verða 13 umferðir, 12 spila leikir. óskar aö ráöa starfsmann í hlutastarf til aö þýöa og endursegja erlendar greinar. Þarf að kunna skil á Norðurlandamálum, ensku og þýsku og geta unnið heima viö. Umsókn berist skriflega á ritstjórn Dags merkt: DAGUR, c/o Hermann Sveinbjörnsson Strandgötu 31, pósthólf 58 Akureyri. V *'■ ' * Ih-" LAUT Restaurant Laut auglýsir Vegna fjölda eftirspurna höfum við fengið söng- konuna Gaile Peters aftur í heimsókn. Hún mun skemmta mat- argestum okkar í kvöld og næstu kvöld, ásamt hinum frábæra píanó- leikara Kristjáni Magn- ússyni og fleirum. Borðapantanir í símum 22525 og 22527. RESTAURANT LAUT HÓTEL AKUREYRI, HAFNARSTRÆTI 98 ÞORRABLOT U.M.F. DAGSBRÚNAR, verður haldið í Hlíðarbæ laugardaginn 8. febrúar kl. 20.30 Stundvíslega. Hreppsbúar fyrr og nú svo og ungmennafélagar velkomnir. Miðapantanir 3. og 4. febrúar kl. 20.00-22.00 í símum 23613 Jón og 21856 Herbore. Nefndin. Vorum að taka upp 8 gerðir af hinum margeftirspurðu þýsku libelle haeiaháu kvenskóm. Staerðir 361/^-4l. Eigum einnig mikið úrval af karlmanna spariskóm. m kuldaskórnir á dömur og herra komnir aftur. SlMI (96)21400

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.