Dagur - 11.02.1986, Page 3

Dagur - 11.02.1986, Page 3
11. febrúar 1986 - DAGUR - 3 Ein leiðin enn til að soga fjármagn frá landsbyggðinni - segja menn um aukna bindiskyldu lífeyrissjóðanna úr 40% í 70% „Mér fínnst furðulegt að slá málinu upp með þessum hætti. Þetta hefur verið unnið eitt- hvað í nefnd og á að takast til umræðu í samninganefndinni í dag. Ég tel að svona stórt mál eigi fyrst og fremst að fara til verkalýðsfélaganna og ræðast þar, áður en menn taka af- stöðu. Þetta er geysimikilvægt mál sem snertir hagsmuni svo margra félagsmanna í verka- Iýðsfélögunum,“ sagði Jón Helgason, framkv.stj. lífeyris- sjóðsins Sameiningar um stór- aukna bindiskyldu lífeyrissjóð- anna. „Ég hef ekki séð þessar tillögur ennþá og get því ekki lagt dóm á þær þó held ég að þetta gæti haft mjög neikvæð áhrif t.d. fyrir líf- eyrissjóðina á landsbyggðinni. Það eiga að vera réttkjörnar stjórnir lífeyrissjóðanna sem ákveða það hvort fjármunum þeirra er ráðstafað heima í byggðarlögunum eða annars staðar. í mörgum tilvikum er það mjög stórt mál að þetta geymslu- fé, sem getur myndast, skapi grundvöll fyrir lánum til einstakl- inga og fyrirtækja á viðkomandi svæðum. Á síðustu árum hafa sjóðféjagar leitað minna eftir lán- um en oft áður en féð hefur þá verið geymt í lánastofnunum hér og komið svæðinu til góða með þeim hætti. Við reynum að standa við bakið á fyrirtækjum sem eiga í erfiðleikum og höfum t.d. bent þeim á að leita til lána- stofnana sem hafa fé í geymslu frá Sameiningu. Ég hef haldið því fram lengi að fyrsta skrefið til að koma til móts við húsbyggjendur sé einfaldlega að lækka vextina, því vaxta- greiðslurnar eru oft á tíðum að Valgarður Baldvinsson. sliga húsbyggjendur og hinn ai- menna lántakanda. Auk þess hef ég ekki trú á því að það verði neitt meira fjármagn til húsbygg- ingalána þó peningarnir séu geymdir í Reykjavík,“ sagði Jón Helgason, framkvæmdastjóri líf- eyrissjóðsins Sameiningar. „Mín fyrstu viðbrögð eru þau að hér sé á ferðinni ein leiðin enn til að soga fjármagn frá lands- byggðinni suður til höfuðborgar- innar og miðstýra því þaðan,“ sagði Valgarður Baldvinsson, bæjarritari, sem hefur með mál- efni lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar að gera. „Mér líst ekkert á að láta allt þetta fjármagn fara á einn stað, því hér er um gífurlega mikið fjármagn að ræða. Ég tel að líf- eyrissjóðirnir hafi ekki farið illa með fé umbjóðenda sinna. Auk þess skil ég ekki röksemdirnar á bak við þetta. Hugmyndin mun vera sú að byggingalánasjóðirnir greiði lífeyrissjóðunum yfir 9% vexti, en láni hins vegar hús- byggjendum með 31/i% vöxtum. Einhvers staðar þarf að inn- heimta þennan mismun og ætli niðurstaðan verði ekki sú, að þeíta komi fram í hækkuðu vöru- verði til almennings," sagði Garðar Aðalsteinsson hjá lífeyr- issjóði verksmiðja SÍS. Viðkvæði þeirra sem Dagur hafði samband við vegna þessa máls voru á eina leið: Það er ver- ið að soga fé frá landsbyggðinni til miðstýringarinnar í Reykja- vík. Þetta eykur þensluna í Reykjavík og þar verður fyrst og fremst byggt. Þar af leiðandi fer þetta fé í sífellt auknum mæli til byggingaframkvæmda á höfuð- borgarsvæðinu. Lánastofnanir út um land sem ávaxtað hafa fé líf- eyrissjóðanna og lánað til at- vinnureksturs og almennings verða af þessu fé í enn frekara mæli en verið hefur. Stórfelldur fjármagnsflutningur hefst frá landsbyggðinni til Suðvestur- lands og telja flestir að ekki hafi verið á bætandi. HS Framsóknarflokkurinn Akureyri: Jón til starfa á kosningaskrifstofunni Jón Arnþórsson hefur verið ráðinn skrifstofumaður hjá Framsóknarflokknum á Akur- eyri, en flokkurinn hefur nú aðsetur að Eiðsvallagötu 6. Jón sagði í samtali við Dag að framundan væri mikil vinna við undirbúning bæjarstjórnarkosn- inganna. „Við erum hér í nýju vistlegu húsnæði sem gerir okkur kleift að sinna betur þeim mörgu verkefn- um sem þarf að vinna við undir-. búning kosninga,“ sagði Jón. Jón er á skrifstofunni kl. 16.30- 18.30 alla virka daga. Allir vel- unnarar flokksins eru velkomnir til skrafs og ráðagerða við undir- búning þeirrar baráttu sem fram- undan er og ekki skemmir að allt- af er heitt á könnunni. Jón á skrifstofunni. Mynd: KGA. 1936 — FERÐAFÉLAG AKUREYRAR 50 ARA — 1986 'eeaJ AÐALFUNDUR FERÐAFÉLAGS AKUREYRAR vérður haldinn í skátaheimilinu Hvammi, Hafnarstræti 49, föstudaginn 14. febrúar 1986 kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. 1 Æn&hrpi/tinriar L-ayaui cm /l/cj/ . Undirbúningur vegna 50 ára afmæli félagsins. ÍLI 1 Stjórnin. 1936 — FERÐAFÉLAG AKUREYRAR 50 ÁRA — 1986 Aðalftindur Loðdýraræktarfélags Eyjafjarðar verður haldinn sunnud. 16. febr. 1986 að Hótel KEA kl. 16.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Inntaka nýrra félaga. 3. Afhending skinnaverðlauna. 4. Önnur mál. Stjórnin. Sjálfsákvörðunarréttur þroskaheftra Styrktarfélag vangefinna á Norðurlandi og foreldra- félag barna með sérþarfir á Akureyri efna til fundar laugardaginn 15. febrúar kl. 15.30 að Hrísalundi 1 b. Fundarefni: Sjálfsákvörðunarréttur þroskaheftra. Framsöguerindi flytja Dóra S. Bjarnason lektor og Ásta Baldvinsdóttir félagsráðgjafi. Allir sem áhuga hafa á málefnum þroskaheftra eru hvattir til að mæta. Fræðslunefndin. Til sölu er Garðyrkjustöðin Brúnalaug ef viðunandi tilboð fæst. Um er að ræða lögbýli með eigið vatn, 60 mín.l. 90 gráðu heitt. Tvö íbúðarhús og þarfnast annað við- gerðar. Þá eru ca 700 fm í nothæfum gróðurhúsum og 300 fm í húsum sem þarfnast viðgerðar. Einnig geymsluskúrar og pökkunarhús. Allar nánari upplýsingar á Fasteignasölu Ás- mundar S. Jóhannssonar hdl., Brekkugötu 1 við Ráðhústorg, sími 21967. Norðlendingar - Norðlendingar Nú eru námskeið verkstjórnarfræðslunnar flutt til Ak- ureyrar. Fyrsta námskeiðið var haldið í janúar með góðum árangri. Næstu námskeið verða haldin ef næg þátttaka fæst: 12.-15. febrúar. Verkskipulagning. Ath. breyttan tíma. Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðuatriði í skipulagningu verka, áætlanagerð, upplýsingaöflun og eftirlit með verkum. 17.-20. febrúar. Stjórnun II. Á námskeiðinu verður farið yfir undirstöðuatriði í lík- amsbeytingu við vinnu, verktiisögn, stjórnun breyt- inga í fyrirtækjum og hegðun einstaklinga við vinnu. Námskeiðin eru óháð hvor öðru og kostar hvert námskeið kr. 7.800,- Innifalin eru öil námsgögn og kaffi. Skráið þátttöku strax til Iðntæknistpfnunar (slands sími 91-687000 og til Árna Björns Árnasonar verk- stjórafélagi Akureyrar, vinnusími 96-21300 og heimasími 96-21249.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.