Dagur - 11.02.1986, Side 8
8 - DAGUR - 11. febrúar 1986
Yerdtflbod óskast í eftirtaldar
fasteignir á Akureyri:
íbúö mína á tveimur hæöum í Strandgötu 45.
Verslunarhús á Hafnarbakka, þarf að flytja af grunni.
Bílskúr á Oddeyrartanga, þarf aö flytja af grunni.
Áskil mér rétt til að taka hvaöa tilboði sem er, eöa hafna
öllum.
Oddur Ágústsson, simi 23395, Akureyri.
Iðnaðarhúsnæði
Leitum að 1000-1500 ferm. verksmiðjuhúsnæði
fyrir matvælaiðnað. Leitað er að leiguhúsnæði
með hugsanleg kaup í huga síðar.
Ahugaaðilar hafi samband við Iðnþróunarfélag
Eyjafjarðar hf. í síma 96-26200.
Iðnþróunarfélag Eyjafjarðar hf.
Glerárgötu 30, 600 Akureyri,, sími 96-26200.
Odýr einangrun
Seijum annars flokks steinull fyrst um sinn á
óbreyttu verði.
2” kr. 41,00 fm. Stgr. 4” kr. 82,00 fm. Stgr.
3” kr. 61,50 fm. Stgr. 6” kr. 123,00 fm. Stgr.
Hentugt til einangrunar á gripa- og geymsluhúsnæði
svo og eldri íbúðarhúsum.
Sauðárkróki
Byggingavörudeild Eyri
Sími 95-5200 og 5874.
Ódýri húsgagnamarkaðurinn
Skipagötu 13, Kjarnahúsinu
Erum alltaf að fá fleiri og fleiri húsgögn.
Lítið inn og skoðið.
Allt á að seljast. - Hagstætt verð.
Opið milli kl. 3-6 e.h. virka daga.
KJARNAKARLAR.
Húsvíkingar - Þingeyingar
41585
er símanúmer Ingibjargar Magnúsdóttur
blaðamanns Dags.
Skrifstofan er að Stóragarði 3.
Opið frá kl. 9-11 f.h.
$ SAMBANDISLEN2KRA SAMVINNUFÉLAOA
Iðnaðardeild - Akureyri
Húsnæði óskast
Einbýlishús eða raðhús óskast til leigu frá og með
1. júní nk. Þarf að vera staðsett á Brekkunni.
Uppl. gefur Jón Arnþórsson.
Iðnaðardeild Sambandsins.
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Simi (96)21900
Jokdreifat___________________
Eyðið tegundinni
Homo sapiens
- svo aðrar líftegundir geti lifað og þróast
- Draumvitrun Úlfs Ragnarssonar
Við rákumst á frásögn af
draumvitrun Úlfs Ragnars-
sonar, læknis, í nýútkominni
Dagskrá, sem gefin er út á
Selfossi. Raunar er frásögnin
tekin upp úr tímaritinu Lífs-
geislar, þar sem Ingvar Agn-
arsson hafði viðtal við Ulf.
Frásögnin af þessari draum-
vitrun er hluti af þessu við-
tali. Hér á eftir er gripið nið-
ur í frásögnina, þegar Úlfi
finnst að geimskip sé í grennd
við hann og hvernig honum
tekst að ræða við farþega
þess.
„Heyrðist mér þá eins og í út-
varpssendi að sagt er á ensku:
Yes, the end has come. (Þ.e.
endalokin eru komin). Hljóðið
var málmkennt eins og það bær-
ist frá tölvu. Ég þóttist reyna að
beina huga mínum inn á sama
bylgjusvið, og sendir þeirra
flugdisksmanna, og ég sendi
þeim hugskeyti: „Hverjir eru
þið, hvaðan komið þið og hvert
er erindi ykkar?“
Og ég greindi svar þeirra:
„Við komum frá öðrum hnetti,
við erum verur með sams konar
sál eins og þið en með annarri
líkamsbyggingu, og við erum
sendir af yfirboðurum okkar til
að eyða því sem eftir er af
mannkyni jarðar ykkar.“
Ég þóttist svara: „Hverjir eru
þessir yfirboðarar ykkar og hver
er ástæða þess, að þeir vilja
eyða mannkyninu á okkar
jörð?“
Ég nam svar þeirra: „Þið
menn eruð að tortíma öllu lífi á
ykkar jörð. Við og þeir sem
okkur eru æðri, viljum koma í
veg fyrir að slíkt gerist. Við
leyfum ekki að ein líftegund á
einhverju hnetti tortími bæði
sjálfri sér og um leið öllum öðr-
um líftegundum hnattarins. Því
var haldin allsherjar ráðstefna
hjá allífsstjórnendum hnatt-
anna (eða alheimsráði hnatt-
anna), og sú samþykkt gerð, að
tilraun Homo sapiens - hafði
mistekist og eyða skyldi því,
sem eftir væri af tegundinni, svo
að aðrar líftegundir mættu lifa
áfram og þróast.“
Og röddin frá flugdiskinum
hélt áfram að berast inn í huga
minn á þessa leið:
„Mjög lengi höfum við reynt
að komast í samband við ein-
hvern jarðarbúa en aldrei
tekist. Enginn virðist skilja
hvert stefnir og hverjar afleið-
ingarnar verða. Þú ert fyrsti
maðurinn, sem við höfum náð
sambandi við.“
Ég þóttist svara: „Ég held að
þetta sé nú ekki alls kostar rétt,
því ég þekki marga menn, sem
skilja hvert stefnir og vilja mjög
leggja sig fram um að breyta hér
um stefnu og þeir vilja ná sam-
bandi við lengra komna hjálp-
endur í geimnum. Það sem á
vantar er að hitta á rétta bylgju-
lengd, svo samband við ykkur
geti tekist.“
Foringi geimskipsmanna
svaraði á þessa leið: „Þar sem
okkur hefur nú tekist að komast
í samband við einn jarðarbúa
(sem ert þú), með fullan áhuga
á að þiggja hjálp til að breyta
um stefnu, þá eru forsendur fyr-
ir að eyða mannkyni jarðarinn-
ar breyttar, a.m.k. í bili. Við
munum hætta við þetta áform
sem stendur en í þess stað snúa
aftur til heimahnattar okkar og
skýra frá, hvers við höfum orðið
áskynja. Þá mun aftur verða
boðað til ráðstefnu til þess að
ræða þessi mál. Og e.t.v. verður
niðurstaðan önnur en sú, sem
varð á síðustu alheimsráðstefnu
hnattanna.
En festu þér eitt í minni: Við
viljum, að þú kunngerir öðrum,
hvers þú hefur orðið vísari,
hver ógn vofir yfir og að von
geti verið um björgun. Þú verð-
ur að skilja, að líf milljóna get-
ur verið undir því komið, að þú
kunngjörir opinskátt, hvers þú
hefur orðið vísari.““
Líklega munu lesendur leggja
misjafnan dóm á þessa frásögn
Úlfs. En hvað um það, hún
hlýtur að vekja menn til um-
hugsunar á atómöld.
Krakkar!
\ erið velkomnir
é ikrifstofu
hitaveitunnar
á öskudaginn.
Hitaveita Akureyrar.