Dagur - 11.02.1986, Síða 12
Akureyri, þriðjudagur 11. febrúar 1986
Erum farin að taka á móti
pöntunum í fermingaveislur.
✓
Utvegum sali ef með þarf.
Leitið upplýsinga hjá Hallgrími eða Stefáni í síma
Iðnaðardeildin:
2300
mokka-
flíkur
til Sví-
þjóöar
Eitthvað virðast vcgalcngdirnar hafa breyst - Slippstöðin steinsnar frá Pálmholti. Reyndar er málið miklu einfaldara, myndin er tekin með sterkri aðdrátt-
arlinsu með þessum afleiðingum á Ijarlægðir._________________Mynd: KGA.
Léttsteypan í Mývatnssveit:
Framleiðir týrir flugstöðina
- á Keflavíkurflugvelli
Fyrir helgi var gengið frá
samningi um sölu á stórri send-
ingu af mokkaflíkum frá Iðn-
aðardeild Sambandsins til
vöruhússins Lisa Casseles
Modelhus sem er í Kóngs-
bakka í Svíþjóð.
Að sögn Kristjáns Torfasonar
hjá Skinnadeild var samið um
sölu á 2300 flíkum sem jafngildir
tveggja og hálfs mánaðar fram-
leiðslu Skinnadeildar. Vöruhús
þetta hefur verið viðskiptavinur
Skinnadeildarinnnar í nokkuð
mörg ár en aldrei gert svo stóra
pöntun áður.
Þegar er búið að tryggja sölu
á mokkafatnaði sem nægir til að
halda framleiðslunni í fullum
gangi fram í miðjan júní og þá
taka við hefðbundin verkefni sem
ættu að duga fram í október. Þá
er eftir að taka inn í dæmið
mokkaflíkur fyrir Rússa en
venjulega hefur verið byrjað að
framleiða upp í þeirra pantanir í
sumarbyrjun, að sögn Kristjáns.
Það er því Ijóst að það eru næg
verkefni framundan hjá Skinna-
deild Iðnaðardeildar Sambands-
ins. -yk.
Slökkviliðið á Blönduósi var
kallað út á laugardagskvöld. I
neyðarsíma slökkviliðsins sem
staðsettur er á sjúkrahúsinu
komu boð um að eldur væri
laus að Skúlabraut 3 og vai
það unglingsrödd sem var í
símanum.
Allir slökkviliðsmenn staðarins
voru kallaðir út en þegar komið
var á staðinn kom í ljós að um
gabb var að ræða. Menn biðu þó
„Það er mjög bjart yfir okkur
þessa stundina. Enda ekki
á slökkvistöðinm i viðbragðs-
stöðu ef svo illa hefði viljað til að
misskilningur hefði orðið varð-
andi þann stað sem eldurinn væri
á. Svo reyndist ekki vera.
Þorleifur Arason slökkvistjóri
á Blönduósi sagði að langt væri
síðan slökkviliðið á Blönduósi
hefði verið gabbað svona og vildi
hann koma því á framfæri að
slíkt skapaði hættuástand. Lög-
reglan vinnur að rannsókn
málsins. G.Kr.
annað hægt þar sem útlit er
gott með verkefni,“ sagði Har-
aldur Bóasson verkstjóri hjá
Léttsteypunni h/f í Mývatns-
sveit. Það fyrirtæki steypir hol-
steina í útveggi, milliveggja-
steina, gangstéttarhellur og
margt fleira. Nú er verksmiðj-
an að steypa prufusteina fyrir
flugstöðina á Keflavíkurflug-
velli.
„Við gerum okkur góðar vonir
um að fá það verkefni. En þar er
um mánaðarvinnu að ræða,“
sagði Haraldur. Sú framleiðsla er
sérpöntuð fyrir flugstöðina.
Einnig á að vinna 10 þúsund hol-
steina í útveggi flugstöðvarinnar.
Skútustaðahreppur hefur pant-
að gangstéttahellur hjá Létt-
steypunni. Eiga þær að leggjast í
sumar. Þar er 2 mánaða verkefni
fyrir höndum. Þarf fyrirtækið að
kaupa ný mót fyrir þá framleiðslu
utanlands frá. Aætlað er að byrja
þá framleiðslu í apríl.
Sala á holsteinum hefur aukist
mjög mikið frá því sem verið
hefur. Fer framleiðslan um allt
land. Þegar Haraldur var spurður
hvort þeir væru þá ekki ánægðir
með allar þessar pantanir, sagði
hann: „Auðvitað erum við
ánægðir. En hefðum samt gjarn-
an vilja hafa undan að framleiða
upp í pantanir sem streyma inn.“
gej-
Hrísey:
Mál Snæfells
Gabb á Blönduósi
Siglufjörður:
100% umframvatns-
magn nægir ekki alltaf
í biðstöðu
Vatnsleysið hefur ekki skapað
nein vandræði enn sem komið
er. Þó skapaðist óöryggi í
vatnsmálum hér nokkurn tíma
fyrr í vetur,“ sagði Ottar
Proppé bæjarstjóri á Siglu-
fírði. Þar hefur borið á vatns-
skorti af og til.
Bæjarstjóri sagði að vatns-
magn sem bærist til bæjarins væri
óeðlilega mikið, eða um 100 sek-
úndulítrar. Álitið er að vatnsþörf
bæjarins sé um 50 sekúndulítrar.
Það bendir því allt til þess að
mjög mikill leki sé í kerfinu. Þeg-
ar hefur fundist leki sem sam-
svarar 15 sekúndulítrum. Fannst
hann innanbæjar. Er unnið að
frekari leit að bilunum.
Ekkert er vitað um vatnsneysl-
una í bænum þar sem engir mæl-
ar hafa verið notaðir. Kemur það
til af því að viðkvæm tæki sem
vatnsmælar hafa ekki þolað
óhreinindin í vatninu. Með frek-
ari vatnsöflun og betra vatni er
fyrirhugað að mæla og kortleggja
notkunina. Óttar sagði að ekki
væri vitað hve mikið vatn færi til
fisk- og rækjuvinnslu sem væri
mjög vatnsfrekur iðnaður.
Miklar framkvæmdir hafa ver-
ið í vatnsmálum Siglfirðinga á
undanförnum árum. Byggð var
dælustöð, vatnstankur fyrir ofan
bæinn og unnið að endurbótum á
kerfinu innanbæjar. Mikið af
vatnslögnum í bænum eru gamlar
og lélegar og hefur tilkoma nýja
geymisins valdið auknum þrýst-
ingi á kerfinu og væntanlega auk-
ið leka sem fyrir var í eldri
lögnum. gej-
„Staðan er ágæt hjá okkur
þessa stundina. Við erum byrj-
aðir að vinna aftur og útlitið er
þokkalegt,“ sagði Jóhann Þór
Halldórsson útibússtjóri KEA
í Hrísey. Þar hefur verið stopul
vinna í fiskverkun að undan-
förnu. Astæðan er meðal ann-
ars bilun í togaranum Snæfelli
sem gerður er út frá Hrísey.
Núpur frá Grenivík landaði
fyrir helgina 50 tonnum af góðum
fiski í Hrísey. Er reiknað með að
hann landi þar fljótlega aftur.
Jóhann sagði að þeir hjá KEA
væru með í athugun að fá báta til
að landa í Hrísey meðan Snæfell-
ið væri frá veiðum.
„Mál Snæfellsins er í biðstöðu.
Það er verið að kanna fjármögn-
un og annað því viðkomandi,"
sagði Jóhann.
Bíða Hríseyingar eftir svari
frá Fiskveiðasjóði varðandi það
mál. Ef úr rætist eru uppi hug-
myndir að endurbyggja skipið.
Auk þess þarf að skipta um vél í
því, eins og komið hefur fram
áður. Þegar Jóhann var spurður
hvaða vonir Hríseyingar gerðu
sér varðandi úrlausn frá Fisk-
veiðasjóði sagði hann: „Við erum
bjartsýnir á að það gangi. Annað
væri óeðlilegt þar sem skipið er
komið til ára sinna. Þess vegna
þykir okkur fáránlegt ef á að
neita okkur um fyrirgreiðslu til að
endurbyggja skipið og halda því
gangandi. Þetta er mikið byggða-
mál og þar af leiðandi nauðsyn-
legt að koma þessu máli í höfn
sem fyrst.“ gej-