Dagur - 29.04.1986, Side 5
29. apríl 1986 - DAGUR - 5
Hugbfll?
Þó að þessi ruslabíll sé vel útbúinn fyrir akstur í snjó, eins og
best sést á stærð hjólanna, þá er þetta eina leiðin sem hann
kemst til fjallaþorpsins Betten í svissnesku Ölpunum yfir
vetrarmánuðina. Hann hangir þarna neðan í kláfi fyrir
skíðamenn og þannig er bíllinn fluttur á milli kvölds
og morgna, rúmlega kílómetra leið í allt að 80 feta hæð
yfir jörðu.
FRAMSOKN
TIL FRAMFARA
Framsóknarfélögin á Akureyri
Unnur Pétursdóttir iðnverkakona er 6. á lista framsókn-
armanna til bæjarstjórnarkosninganna í vor. Hún verð-
ur til viðtals á skrifstofunni Eiðsvallagötu 6, miðvik-
udaginn 30. apríl frá kl. 17-18.
Heitt veröur á könnunni. Hittumst hress.
Valgerður Sverrisdóttir:
í tilefni kosninga
Nú segir almanakið okkur að
sumarið sé komið og margt bend-
ir til þess að það nálgast í raun-
veruleikanum. Við sem njótum
þeirra forréttinda að búa í sveit
eigum í vændum annasaman en
um leið yndislegan mánuð,
maímánuð. t>á er stórkostlegt að
fylgjast með gróðrinum lifna við
og lömbunum fæðast og komast á
legg-
Maímánuður verður væntan-
lega annasamur hjá fleirum en
sveitafólki í ár, en þá á ég við
frambjóðendur til bæjarstjórnar-
kosninga sem fram fara 31. maí.
Framsóknarmenn hafa lagt
fram lista í flestum þeim bæjum
og kauptúnum þar sem kosið
verður 31. maí. Ég vil sem for-
maður kjördæmissambandsins
lýsa sérstakri ánægju með listana
og fullum stuðningi kjördæmis-
stjórnarinnar.
Mig langar sérstaklega að
nefna þann mikla og góða
stuðning, sem konur og ungt fólk
hafa fengið. Hann sýnir og stað-
festir það sem við framsóknar-
menn höfum haldið fram að inn-
an flokksins ríkir frjálsræði.
Flokkurinn hefur á síðustu miss-
erum verið að laga sig að kröfum
nútímans um fullt jafnrétti kynj-
anna og eru listar framsóknar-
manna um allt land lýsandi dæmi
um það. Pá er ástæða til að geta
þess, að ungu fólki er gefið tæki-
færi og eru listarnir skipaðir
yngra fólki nú en nokkru sinni
fyrr. Þetta vil ég sérstaklega
benda þeim fjölmörgu ungu kjós-
endum á, sem nú kjósa í fyrsta
sinn og hafa ekki gert upp hug
sinn og efast kannski um hvort
þeir eigi að taka þátt í þessum
leik.
Framsóknarflokkurinn hefur
alla tíð verið sterkur í þessu kjör-
dæmi, enda má kannski leiða rök
að því að hann eigi rætur sínar
einmitt hér rétt eins og sam-
vinnuhreyfingin. Ég leyfi mér að
halda því fram, að þessi tvö fé-
lagasamtök, sem eiga margt sam-
eiginlegt þótt þau séu ekki eitt,
eigi sinn þátt í því að hér stendur
byggð á sterkum grunni. Ein-
hverjir vilja e.t.v. halda því fram,
að blómaskeiðinu sé löngu lokið
og allt stefni norður og niður, ef
marka má umfjöllun í fjölmiðl-
um. Það þýðir víst ekki annað en
viðurkenna það, að landsbyggðin
hefur verið í mikilli vörn á
undanförnum árum og er
skýringin á því að stærstum hluta
kvótamálin, bæði í landbúnaði og
fiskveiðum. En ég spyr, treystir
einhver sér til að halda því fram
að þar hafi verið um óþarfar
aðgerðir að ræða? Það má alltaf
deila um leiðir og allt orkar tví-
mælis sem manneskjan aðhefst.
Það er margt sem bendir til þess
að nú séu hlutirnir að snúast við
og landsbyggðin að komast í
sókn, og væri óskandi að svo
væri. Ekki bara okkar vegna sem
búum í dreifbýli, heldur þjóðar-
innar í heild.
í samræmi við ályktun frá síð-
asta kjördæmisþingi efnir kjör-
dæmisstjórnin til fundar og nám-
skeiðs fyrir frambjóðendur
Framsóknarflokksins í kjördæm-
inu 2. og 3. maí nk.
Ég skora á frambjóðendur að
fjölmenna og ekki síður fram-
sóknarfólk sem situr í sveitar-
stjórnum þar sem kosning fer
fram síðar.
Með baráttukveðju
Valgerður Sverrisdóttir.