Dagur - 29.04.1986, Blaðsíða 9
29. apríl 1986 - DAGUR - 9
-íþróttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Knattspyrna:
- Þór vann Tindastól 2:0
Þessi skemmtilega mynd var tekin í leik Vasks og Magna á fimmtudaginn.
Bikarmót KRA:
Mynd: KGA.
Vaskur vann öruggan
sigur á Magna
Vaskur og Magni frá Grenivík
Iéku í Bikarmóti KRA í knatt-
spyrnu á sumardaginn fyrsta.
Leiknum lauk með nokkuð
öruggum sigri Vasks 2:0. Voru
þetta fyrstu stig Vaskara í mót-
inu en Magnamenn hafa tapað
sínum leikjum.
Vaskur lék undan sterkum
vindi í fyrri hálfleik. Þeir komust
þó lítið áleiðis fyrr en á 20. mín.
er Valdimar Júlíusson skoraði
laglegt mark fyrir Vask af víta-
teig.
Skömmu síðar skoruðu Magna-
menn sjálfsmark. Samúel Björns-
son einn besti maður Vaskara
komst þá í gegn um vörn Magna
en átti misheppnað skot sem lenti
í varnarmanni Magna og af hon-
um í markið.
Magnamenn hresstust örlítið
eftir markið en voru engu að síð-
ur heppnir að vera ekki 3:0 undir
í hálfleik er Valdimar komst einn
inn fyrir vörn Magna í lok hálf-
leiksins en gott skot hans fór rétt
framhjá.
Lítið minnisstætt gerðist í síð-
ari hálfleik. Þó sýndi ísak mark-
vörður Magna snilldartakta er
hann varði meistaralega, fyrst skot
frá Valdimari en síðan skalla frá
Sölva Ingólfssyni. Fleira mark-
vert gerðist ekki í leiknum sem
lauk eins og áður sagði með 2:0
sigri Vasks.
Lið Vasks virðist nokkuð
sterkt og gæti orðið til alls líklegt
í sumar í 4. deildinni. Ekki er
sömu sögu hægt að segja um lið
Magna sem hefur leikið frekar
illa í þeim tveimur leikjum sínum
í KRA mótinu til þessa. Gætu
þeir átt erfitt uppdráttar í 3.
deildinni þó enn sé dálítið
snemmt að spá um þessa hluti.
Knattspyrnulið KA, bæði
karla og kvenna léku æfinga-
leiki fyrir sunnan um heigina.
Ekki er hægt að segja annað en
ferðin hafi verið nokkuð góð
og að unnist hafi sætir sigrar.
Karlaliðið lék á laugardag gegn
ÍBV á gervigrasinu í Laugardal.
KA vann stórsigur 5:1 og var það
mál manna að leikmenn ÍBV hafi
aldrei átt glætu í leiknum. Mörk
KA gerðu þeir Steingrímur Birg-
isson 2, Tryggvi Gunnarsson 2 og
Stefán Ólafsson 1 mark.
Daginn eftir léku KA-menn
gegn Skagamönnum og lauk
þeirri viðureign með jafntefli,
hvort lið skoraði 1 mark. Mark
KA gerði Steingrímur Birgisson.
Kvennalið KA lék þrjá leiki
fyrir sunnan. Fyrst gegn UBK og
fór leikurinn 1:1. Mark KA gerði
Hjördís Úlfarsdóttir. Þá gegn ÍA
og varð einnig jafntefli í þeim
leik, hvorugu liðinu tókst að
skora. í þriðja leiknum, gegn KR
unnu KÁ-stelpurnar sanngjarnan
2:0 sigur. Mörk KA í þeim leik
gerðu þær Anna Gunnlaugsdóttir
og Valgerður Jónsdóttir.
Þórsarar fóru til Sauðárkróks
og léku gegn liði Tindastóls á
laugardag. Leikurinn þótti frekar
slakur og var leikinn við erfiðar
aðstæður þannig að fátt var um
fína drætti. Þórsarar unnu þó
sanngjarnan sigur 2:0 og skoruðu
ungu mennirnir þeir Hlynur Birg-
isson og Siguróli Kristjánsson
mörkin.
Körfubolti:
Tindastóll
fær styrk
frá bænum
Bæjarstjórn Sauðárkróks
hcfur ákveðið að styrkja lið
Tindastóls í körfubolta
næsta vetur. Verður það
gert með því að fella niður
húsaleigu af heimaleikjum
liðsins.
Fram kom tillaga um þetta
frá félagsmálaráði bæjarins
sem bæjarstjóm samþykkti.
En eins og öllum er kunnugt
sigraði lið Tindastóls í 2.
deildinni í vetur með glæsi-
brag og vann sér þar með rétt
til að leika í 1. deild að ári.
Kraftlyftingar:
Kári keppir á Evrópu
meistaramótinu
Akureyrarmót í göngu:
Síöasta mót
vetrarins
Kári Elíson kraftlyftingamaður
frá Akureyri mun á flmmtu-
daginn fara til Svíþjóðar og
taka þar þátt í Evrópumeist-
aramótinu í kratlyftingum á
föstudag í Stokkhólmi.
Með Kára í förinni verður
Haukur Ásgeirsson varaformað-
ur Lyftingaráðs Akureyrar og
mun hann aðstoða Kára á mótinu
og jafnframt sitja þing Evrópu-
sambandsins fyrir hönd KRAFT.
Kári verður eini íslenski kepp-
andinn á mótinu en ástæðan fyrir
því að ekki eru fleiri keppendur
frá íslandi mun vera m.a. vegna
mikils kostnaðar en enginn styrk-
ur fæst frá KRAFT þar sem kass-
inn þeirra er tómur. Aftur á móti
hefur Haukur verið duglegur við
að ganga í fyrirtæki hér í bæ og
leitað eftir styrk til fararinnar.
Hefur það gengið nokkuð vel og
eru þeir félagar þakklátir þeim
fyrirtækjum fyrir þá aðstoð.
Kári sem keppir í 67,5 kg
flokki á nokkuð góða möguleika
á verðlaunasæti. Hann kemur þó
Drengir 10 ára og yngri 1,5 km: Drengir 15-16 ára 5,5 km:
Ragnar I. Jónsson KA, 8,32 Ásgeir Guðmundsson KA, 20,46
Helgi Jóhannesson Þór, 10,36
Anton J. Þórarinsson KA, 11,22 20-34 ára 12,5 km:
Kristófer Einarsson KA, 11,36 Haukur Eiríksson Þór, 39,03
Drengir 11 ára 2,0 kni: Kári Jóhannesson Þór, 7,41 Árni F. Antonsson KA, Jóhannes Kárason Þór, 41,33 48,11
Arinbjörn Þórarinsson KA, 8,17 35-40 ára 12,5 km:
Jakob Jörundsson Þór, 9,14 Sigurður Aðalsteinsson KA, 40,31
Drengir 12 ára 2,0 km: Kristinn Eyjólfsson KA, 56,49
Sverrir Guðmundsson KA, 8,05 41-45 ára 10,0 km:
Sigurður Helgason KA, 8,19 Kristinn Finnsson KA, 70,12
Stúlkur 11 ára 2,0 km: 46-50 ára 10,0 km:
Anna María Kristinsd. KA, 10,55 Þorlákur Sigurðsson KA, 43,07
Stúlkur 13-15 ára 3,5 km: 51-55 ára 7,5 km:
Helga Malmquist Þór, 24,18 Jóhann Sigvaldason KA, 51,07
Kári Elíson á góða möguleika á verölaunasæti á Evrópumeistaramótinu í
kraftlyftingum sem fram fer í Svíþjóð um næstu helgi. Mynd: KGA.
til með að etja kappi við sjálfan
heimsmeistarann í þessum
flokki, heimsmeistara unglinga
og heimsmeistarann í réttstöðu-
lyftu. Kári er engu að síður bjart-
sýnn og ætlar að gera sitt besta.
Á Evrópumeistaramótinu í fyrra
hafnaði Kári í öðru sæti.
Knattspyrna:
KSIék
fyrir
sunnan
Knattspyrnulið KS frá Siglu-
fírði fór á fimmtudag til
Reykjavíkur og dvaldi þar yfir
helgina og Iék þrjá leiki. Var
árangur liðsins góður og voru
þeir KS-menn ánægðir með
ferðina. Sérstaklega þóttu
ungu nýliðarnir standa sig vel í
leikjunum.
Fyrsti leikur KS var gegn ÍR og
unnu Siglfirðingar sanngjarnan
sigur 2:1. Annar leikur liðsins var
gegn 1. deildar liði Breiðabliks í
Kópavogi. Breiðablik vann leik-
inn 3:2 í skemmtilegum leik.
Sýndu Blikarnir oft skemmtilega
takta og spiluðu vel en KS-menn
vörðust vel og áttu sín færi í
leiknum.
Síðasti leikur ferðarinnar var
gegn Ármanni. Þann leik unnu
KS-menn 2:0 í frekar rólegum
leik enda menn orðnir þreyttir
eftir erfiða leiki.
KA gerði góða
ferð suður