Dagur - 06.08.1986, Blaðsíða 3

Dagur - 06.08.1986, Blaðsíða 3
6. ágúst 1986 - DAGUR - 3 Sundlaugarbygging við Sólborg: „Stöndum uppi með fjárfest- ingu sem nýtist ekki“ - segir Bjarni Einarsson forstöðumaður Svæðisstjórnar fatlaðra „Það er vissulega bagalegt að standa uppi með mikla fjár- festingu sem nýtist okkur ekki neitt og kemur þeim ekki að gagni sem njóta áttu,“ sagði Bjami Einarsson forstöðu- maður Svæðisstjórnar fatlaðra í samtali við Dag. í október árið 1983 hófust framkvæmdir við sundlaugarbyggingu við Sólborg sem er vistheimili fyrir þroskahefta. Nú tæplega þremur árum síðar er bygging- in fokheld. Styrktarfélag vangefinna og Foreldrafélag bama með sérþarfir höfðu forgöngu um að hafist var handa við sundlaugarbygging- una. Félögin lögðu fram til þessa verkefnis verulegt fé. Unnið var við verkið fram á mitt ár 1984, en þá hafði verið lokið við að steypa upp húsið. Síðan hefur ekkert verið aðhafst. Þau félög sem styrktu bygginguna upphaflega hafa verið í öðrum verkefnum, m.a. hafa þau komið upp sumar- búðaaðstöðu að Botni í Eyja- firði. Á meðan hefur sundlaugar- byggingin ekki verið á verkefna- skrá þessara félaga. Framkvæmd- ir við sundlaugarbygginguna eru þó ennþá unnar af þessum félög- um. Bjarni sagði að félögin tvö hefðu enga fasta tekjustofna, en fé hefði verið safnað sem notað var þegar hafist var handa. Þegar er búið að leggja um 2,5 milljónir króna í sundlaugarbygginguna og er það eingöngu söfnunarfé. Sótt hefur verið um fjárveit- ingu úr Framkvæmdasjóði fatl- aðra, en honum er ætlað að standa undir kostnaði við hús- næðisbyggingar fatlaðra. „Því miður hefur engin fyrirgreiðsla fengist ennþá,“ sagði Bjarni. Framkvæmdasjóður fatlaðra hefur ákveðna upphæð til. ráð- Dalvík: Utflutningur á fiski í gámum „Ég sá um að flytja þessa gáma út fyrir nokkra aðiía og þetta er tilkomið vegna þess að ég starfaði þó nokkuð út í Hull og er nýkominn þaðan núna. Það hefur verið mikill áhugi fyrir þessu hér í nokkum tíma en þetta hefur ekki verið mögu- legt fyrr en nú,“ sagði Hilmar Daníelsson þegar hann var inntur eftir útflutningi sem nú er nýhafínn á físki í gámum frá Dalvík. Hilmar sagði að fyrsta ferðin hefði verið farin á þriðjudag í síðustu viku og yrði sá fiskur seldur í Hull í dag. Þarna er um að ræða þorsk úr Björgúlfi og grálúðu úr nokkrum rækjubát- um, bæði frá Dalvík og Árskógs- strönd. Þetta voru um þrír gámar og það eru um það bil 10-12 tonn á hverjum gám. „Þessi gámaútflutningur hefur verið vaxandi hér allt í kring um landið en lítið sem ekkert héðan frá Norðurlandi vegna þess að skipafélögin hafa ekki sinnt flutningum héðan. Kannski hefur heldur ekki verið nægur áhugi en hann hefur þó verið til staðar hér á Dalvík og við fjörðinn Austur- far, sem er skipafélag í eigu Seyðfirðinga, að ég held, og Fær- eyinga er nú byrjað með reglu- legar siglingar héðan og áleiðis til Hull og þeir fóru fyrstu ferðina fyrir okkur fyrir viku síðan,“ sagði Hilmar. Aðspurður hvort það yrði framhald á þessu sagðist Hilmar alveg eiga von á því svo framar- lega sem þessir flutningamögu- leikar yrðu á boðstólnum. JHB Vatnsveita Akureyrar: Bætir miðlunarkerfið Vatnsveitan hyggst á næstu 3 árum stækka geymarými sitt úr 6.000 rúmmetrum í 10.000 rúmmetra. Verkefnið átti að hefjast á yfirstandandi ári og var áætlaður kostnaður 15 milljónir króna. Hugmyndir voru uppi um það á síðasta ári að bæta 4.000 rúm- metra geymi við miðlunarkerfi Vatnsveitunnar, til þess að auð- velda vatnsöflun og til að mæta sveiflum. Að sögn Sigurðar J. Sigurðssonar, formanns veitu- stjórnar, var gert ráð fyrir því í tillögum vatnsveitustjórnar, að það yrði byrjað á þessari tram- kvæmd á yfirstandandi ári, og var fyrirhugað að verja 15 milljónum til þessarar framkvæmdar, en við stöfunar sem samþykkt er á fjár- lögum hverju sinni, það er síð- an félagsmálaráðuneytið sem umsjón hefur með sjóðnum og úthlutar úr honum, „við höfum ekki komist á blað ennþá með þessa framkvæmd.“ Bjarni sagði að nú stæðu yfir umræður um að gera átak og koma þessum málum í gang aftur. Nú er til í sjóði um ein milljón króna sem ætluð er í sundlaugarbygginguna. „Við þurfum u.þ.b. 1,5-2 milljónir króna til að hægt sé að fara út í útboð á næsta áfanga byggingar- innar,“ sagði Bjarni. Sundlaugarbyggingin er um 200 fermetrar að grunnfleti, þar verður búningsaðstaða og að- staða til líkamsþjálfunar. Bjarni sagði að sundlaugin sjálf yrði lítil og hún væri aðallega hugsuð sem þjálfunarlaug fyrir alvarlega fatl- aða einstaklinga. Nýlega hefur sundlaugarsjóði borist fé frá kvenfélagasambönd- um á Norðurlandi, en samþykkt þar um var gerð á fundi Sam- bands norðlenskra kvenna sem haldinn var í vor. Kvenfélaga- samband Suður-Þingeyinga sendi nýlega 139 þúsund krónur í sund- laugarsjóðinn, Kvenfélagasam- band Norður-Þingeyinga 15 þús- und og Kvenfélagið Von á Siglu- firði 13 þúsund. -mþþ Barnaheimilið Ástjörn 40 ára Leyfið börnunum að koma til mín. Um leið og við þökkum öllum vinum og velunnurum okkar fyrir margvíslega aðstoð, með fjárframlögum, vinnu og bænagjörð, viljum við í tilefni 40 ára afmælis heimilisins, bjóða öllum að heimsækja okkur að Ástjörn, laugardaginn 9. ágúst milli kl. 14.00 og 18.00. F.h. Ástjarnar: Bogi Pétursson. Óskum að taka íbúð á leigu nú þegar Aðeins tvö í heimili. Góðri umgengni og öruggum greiðslum heitið. Uppl. í síma 21216. sími 21216 gerð síðustu fjárhagsáætlunar, þá samþykkti bæjarstjórn hins vegar, að nýta þessar 15 milljónir af ráðstöfunarfé veitunnar til annarra verkefna á árinu 1986. í bæjarráði núna er tekin afstaða með þessu máli, þannig að gert er ráð fyrir að bæjarsjóður muni sjá um að Vatnsveitan fái þessar 15 milljónir endurgreiddar á næstu 3 árum, að fullu verðtryggðar. Vatnsveitan mun því nota þessa fjárhæð til uppbyggingar, ásamt nýrri stofnlögn frá Laugalands- svæðinu á Þelamörk, í bæinn. Sú framkvæmd gæti því komist í framkvæmd á næstu árum. Fram- kvæmdaáætlun gerir ráð fyrir að verkið taki ekki lengri tíma en 3 ár. -SÓL Það margborgar sig að líta inn á dúndur útsöl- una okkar. Þar koma prísamir öllum skemmtilega á óvart og svo skemmir ekld fyrir að við bætum daglega við vörum á útsöluna. ★ Kápur - vetrar. ★ Frakkar - fóðraðir. ★ Stakkar - ófóðraðir. ★ Blússur - margar gerðir. ★ Peysur - klukkuprjón. Póstsendum. Sími 22866 Tískuverslun Tele-x, Sunnuhlíð P.S. AUir karlmenn líka velkomnir.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.