Dagur - 15.08.1986, Síða 6
6 - DAGUR - 15. ágúst 1986
Heilsuhæli Náttúrulækningafélags Akureyrar er óneitanlega glæsilegt.
Þessi mynd var tekin skömmu eftir að framkvæmdir hófust.
I Kjarnalandi hefur nú risið
myndarlegt þriggja hæða hús,
hver hæð 600 fermetrar. Hús
þetta er tilvonandi heilsuhæli
Náttúrulækningafélags Akur-
eyrar. Hafist var handa við
bygginguna árið 1979 og haldið
stöðugt áfram eftir því sem
fjármagn leyfír.
Hugmyndin að byggingu slíks
heilsuhælis hafði í mörg ár
þróast meðal félagsmanna og
verið unnið ötullega að söfnun
fjár og mikil vinna lögð í staðar-
val. Endanlega var byggingunni
valinn staður við neðanverðan
Kjarnaskóg rétt innan við Akur-
eyri á mjög fögrum stað með
rmkið og fallegt útsýni um
fjörðinn. Fyrsta skóflustungan
var tekin með viðhöfn þann 7.
ágúst 1979 og lágu þá fyrir teikn-
ingar af allri byggingunni sem er
skipt í fjóra áfanga. Hönnuðir
byggingarinnar eru frá Arki-
tektastofunni sf. í Reykjavík, en
allar sérteikningar eru unnar af
Verkfræðistofu Norðurlands,
sem einnig hefur annast allt eftir-
lit með byggingaframkvæmdum.
Heilsuhælið í Kjarnalandi hef-
ur hlotið nafnið Kjarnalundur og
er því ætlað svipað hlutverk og
heilsuhælið í Hveragerði. Þegar
náttúrulækningastefnan hafði
skotið rótum hér á landi þóttu
aðstæður til byggingar heilsuhæl-
is ákjósanlegar í Hveragerði. Var
það ekki síst vegna jarðhitans
sem bauð upp á fjölbreytt böð og
laugar. Þar höfðu þá þegar risið
gróðurhús sem framleiddu græn-
meti og ávexti í vaxandi mæli. í
bígerð er að við Kjarnalund verði
reist gróðurhús og þar ræktað allt
grænmeti sem neytt verður á
heilsuhælinu.
Verktækni við jarðhitakönnun
og borun hefur fleygt fram síðan
heilsuhælið í Hveragerði var
stofnað, auk þess sem hitaveitu-
framkvæmdir eru að öllu leyti
auðveldari. Því hefur Eyjafjarð-
arsvæðið, nágrenni höfuðstaðar
Norðurlands, náð því að uppfylla
öll skilyrði til þess að teljast hent-
ugur staður fyrir heilsuhæli.
Kemur á daginn þegar hitaveita
er komin til skjalanna að hent-
ugri staður verður vart fundinn.
Veðursæld við innanverðan
Eyjafjörð er mikil, umhverfið
fagurt og friðsælt.
í kjallara Kjarnalundar verður
verkstæði, vélasalur, sundlaugar,
hreinsitæki, tómstundasalur,
búningsherbergi, snyrtingar,
böð, loftræstikerfi, sýningarklefi,
salur fyrir sjónvarp og kvik-
myndasýningar.
Á 1. hæð eru herbergi sjúkra-
þjálfara, æfingasalur, sundlaug,
búningsherbergi, snyrtingar,
böð, ljós- og nuddherbergi,
leirböð, leirgeymsla, herbergi
læknis og hjúkrunarfræðings,
skrifstofa, símavarsla, anddyri og
aðalinngangur.
Á 2. hæð verða 8 herbergi, 12
fermetrar hvert. 7 herbergi, 9,5
fermetrar, þessi herbergi eru fyr-
ir 30 dvalargesti. Snyrting og bað
í hverju herbergi, skrifstofur,
ræstingarherbergi, eldhús og búr,
matsalur.
Á 3. hæð eru 8 herbergi, 12
fermetrar og 14 herbergi 9,5 fer-
metrar, fyrir 44 dvalargesti.
Snyrting og bað í hverju her-
bergi, ræsting og lín, setustofa. í
þessari byggingu er jafnframt
steypt upp lyftuhús.
Fjármögnun framkvæmda til
þessa hefur byggst upp á al-
mennri fjársöfnun, gjöfum vel-
unnara meðal einstaklinga, fram-
lögum stofnana og félagsamtaka,
ýmsum fjáröflunarleiðum
félagsmanna, árlegu landshapp-
drætti NLFA og NLFÍ, framlög-
um ríkis og bæjar, o.fl. Það hafa
engin lán til þessa verið tek-
in til fjármögnunar framkvæmda.
Kostnaður við bygginguna er
orðinn 12 milljónir króna og er
þá ekki framreiknaður til dagsins
í dag. Af gjöfum frá einstaklingum
má nefna að Steindór Pálmason,
sem nú er nýlátinn, gaf 2,5 mill-
jónir kr. og huldumaður nokkur
gaf 2 milljónir.
Náttúrulækningafélag Akur-
eyrar var stofnað í ágúst árið
1944, en hugmyndin að heilsu-
hælisbyggingu kom fyrst fram
árið 1971. Eins og áður kom fram
hófust framkvæmdir 1979. Starf
NLFA er af fullum krafti allt árið
um kring. Á veturna eru bingó og
spilavistir. í maí var lq'nningar-
dagur á hollustufæði. I júní var
10 aura ganga og í júlí kaffisala í
göngugötunni. I september eða
október verður haldin hlutavelta.
Þrisvar í viku er opinn flóamark-
aður í Hafnarstræti. Hinn árlegi
Kjarnalundardagur verður hald-
inn sunnudaginn 17. ágúst í ár.
Þá verður í hælisbyggingunni gott
kaffihlaðborð kl. 14-17.
í NLFA eru um 200 félagar og
nær 300 með styrktarfélögum.
Milli 50 og 60 manns eru virkir
félagar og eru þeir venjulega í 2-3
nefndum hver yfir árið. Verið er
að byrja á þeim framkvæmdum
sem fyrirhugaðar eru í ár. Þær
eru að ganga frá í kringum húsið.
Komið verður fyrir listaverki við
húsið, er það eftir Ágúst
Jónsson. Gengið verður frá
gluggum og hurðum og síðan haf-
ist handa innanhúss. Vonast er til
að hægt verði að pússa allt húsið
að innan. Búið er að einangra
það, það voru Jón Backmann og
Emil Sigurðsson sem það verk
unnu í sjálfboðavinnu. Fram-
kvæmdir í ár eru upp á 3-4 mill-
jónir kr.
Stefnt er að því að aðalbygg-
ingin komist sem fyrst í fullan
rekstur en til þess þarf samstillt
átak allra Norðlendinga, en fyrir
þá er þessi bygging fyrst og
fremst reist. -HJS
vísnaþáttur-
Þessari vísu stal ég úr Þjóðviljan-
um, ásamt formálanum: Einar Karl
fyrrum Þjóðviljaritstjóri hitti Pái
frá Höllustöðum í Svíþjóð fyrir
skömmu. Sá fyrrnefndi spurði
frétta og stóð ekki á svörum:
Ennþá gengur allt í vil,
Ólafur Ragnar kátur.
Hann er að gera Guðmund til
og Gunna að sjóða slátur.
Á Sprengisandi rétti maður glas að
Hallgrími Jónassyni leiðsögu-
manni, en hann þakkaði með
kveðskap:
Boðnarmjöður borinn er
bráðvelkominn sértu.
Jafnvel strax ígegnum gler
geislavirkur ertu.
Gleði eykur, glæðir von
goðafæðan drjúga.
Petta sagði Salómon,
sá var nú ekki að ljúga.
Ekki er vitað við hvaða dag er átt í
þessari ævagömlu vestfirsku vísu:
Ef að þoka Óðins kvon
á þeim degi byrgir,
fjármissir og fellisvon
forsjáll bóndi syrgir.
I hitabylgjunni sem yfir fór í sumar
sást til verkamanna sem tóku lífið
rólega og þótti engum mikið. Þetta
varð til:
Ljómar sól á himni hátt,
heitt er nú að vinna.
Starfsmenn eru lagstir lágt.
Lamast þrek og sinna.
Hér er allt í sæld og sátt,
svona á það að vera.
Sumir annast ýsudrátt,
aðrir hrúta skera.
Næsta vísa mun vera ný og auk þess
heimagerð:
Enn mig vekja augu hlý
og æskurjóðar kinnar.
Neistinn lifir lengi í
leifum kvenseminnar.
Þetta hefur gamall sveitamaður að
segja um söngvakeppnina frægu í
Björgvin 1986.
Gamla Björgvin skaut á skjá
skrípalátum margra þjóða.
helst mér fannst ég horfa á
hundaþvarg og tíkur lóða.
íslands frægð á báli brann,
best um það sem fæst að segja.
Tryllingi fyrst æskan ann
ellinni er skylt að þegja.
Næstu vísu sagði mér aldraður
maður. Taldi hann hana ævagamla.
Nefndi hann stökuna kvenlýsingu.
Æru rúin, töfrum tæld.
Tötrum búin, fjærri sæld.
Undin, snúin, skitin, skæld.
Skorpin, lúin, slitin, bæld.
Næstu vísu skaut ég að tveim vinum
mínum er ég sat á milli þeirra við
matborð.
Brosmildur sit ég borðið við.
Bragðgóðum vistum feginn.
Andinn er mér á hægri hlið.
Holdið er vinstra megin.
Jón
Bjarnason
frá Garðsvík
skrifar
Þessi vísa varð einnig til við veislu-
borð. Beindi ég henni að fríðri frú
er hjá mér sat:
Mér er ekki lífið leitt
og líður vel hér inni.
Bara að verða helst til heitt
á hægri síðu minni.
Hjörleifur Jónsson á Gilsbakka
kvað, er frú ein þrábað hann að
yrkja um sig vísu:
Pínir lestir liggja bert,
líkar flestum illa,
en sá er berstur ef þú ert
orðin prestafrilla.