Dagur - 15.08.1986, Side 9

Dagur - 15.08.1986, Side 9
15. ágúst 1986- DAGUR-9 - Sr. Bjöm H. Jónsson Húsavík meira að gera. Skömmu eftir kom- una til Húsavíkur fékk ég vinnu við sjúkrahúsið sem þá var í smíðum, vann við að slá upp vinnupöllum við húsið með starfsmönnunum þar til því verki lauk. Síðar fylgdi ég Ásgeiri Höskuldssyni sem var meist- ari þarna við ýmis önnur byggingar- störf og vann við að standsetja lóðir m.a. sjúkrahúslóðina. Einu sinni hafði ég þann starfa að grafa fyrir hitaveitu og fleira mætti telja af þessu tagi. Ég var vinnunni vanur að heiman og það má segja að vinnan hafi verið minn besti vinur, bæði fékk ég peninga fyrir vinnuna og gat kostað mig til náms og seinna hefur hún fyllt upp margt tómið svo ég hef verið laus við tóm sem margir finna fyrir. Það var svolítið skemmti- legt að tvo sumarparta vann ég í fisk- búðinni sem fiskbúðarmaður. Það atvikaðist þannig að ég mætti Þor- grími Jóelssyni starfsmanni þar á götu. Hann heilsaði mér glaðlega og sagði áreiðanlega bæði í gamni og alvöru og þó líklega meira í gamni: „Heyrðu heldurðu að þú leysir mig ekki af í sumarfríinu? Ég fæ engan til að leysa mig af.“ „Það er nú alveg sjálfsagt,“ sagði ég og þegar hann heyrði svarið ætlaði hann að fara að draga þetta til baka en ég sagði að við værum búnir að slá þessu föstu og værum ekkert að breyta því. Hann var hálf niðurbeygður með að þurfa að færa Tryggva Finnssyni fram- kvæmdastjóra þessa frétt. Ég vann þarna í mánuð til að leysa Þorgrím af og sama sumar leysti ég Björn Þor- kelsson af líka og næsta sumar var sami háttur á hafður. Ég veit að þetta starf mitt hneykslaði suma, veit ekki hversu alvarlega og lét mér það í léttu rúmi liggja. Allt heiðarlegt starf held ég að fari flestum mönnum vel.“ - Kynntistu ekki annarri hlið á sóknarbörnunum með því að ganga til daglegra starfa með þeim? „Ég komst áreiðanlega miklu nær þeim með því að vinna við bygg- ingarvinnuna og einnig í fiskbúðinni, í þriðja lagi vann ég við aðgerð og fiskpökkun og þá kynntist maður enn fleiri og enn nánar. Starfsmennina í aðgerðinni átti ég sem félaga en ekki eingöngu sem sóknarbörn, það hefur ábyggilega tengt mig mjög þessum söfnuði.“ Suma daga kom maður glaður heim - Hvernig eru Húsvíkingar sem sóknarbörn? „Mér hefur fundist þeir afskaplega þægilegir, eiginlega hef ég fengið að segja óáreittur það sem mér hefur legið á hjarta en að sjálfsögðu hef ég reynt að fylgja allri sanngirni. Það sem ég hef sagt bæði í alvöru og gamni hefur aldrei orðið að ásteiting- arsteini. Kannski má segja að kirkju- sókn hafi oft á tíðum ekki verið sem skyldi en á stórhátíðum hefur hún oft verið mjög góð og oft full kirkja.“ - Hvernig líður prestinum á venjulegum sunnudegi þegar örfáar hræður koma til messu? „Þá líður prestinum ekki vel og á leiðinni heim hugsar hann oft sem svo að þetta hljóti að stafa af því að ræðurnar séu svo lélagar, þetta er sannarlega ekki uppörvandi. En það er nú svo með lífið að það þýðir ekki að horfa á það sem miður fer og þá þýddi ekki annað en slá þessu upp í kæruleysi hugsa að við þessu væri ekkert að gera og ekkert þýddi að láta það á sig fá. Þannig hafa árin lið- ið og suma daga kom maður glaður heim, þá var kannski óvænt á þriðja hundrað manns eða fleiri í kirkj- unni.“ - Finnurðu breytingar á trúar- áhuga um þessar mundir? „Það er ef til vill erfitt að svara þessu afdráttarlaust, hins vegar held ég að fullyrða megi að afstaða fólks til kirkjunnar hafi breyst mjög í já- kvæða átt. Það leynir sér ekki að margt fólk á sína trú, viðurkennir það fyrir sjálfu sér og margir einnig fyrir örðum. Ef ekki væri trúin, á hvað á þá að leggja traustið? Ekki er ástæða til að halda að fólk sé minna trúað nú en áður var, það sem skilur á milli er kannski hvað menn iðka minna sína trú vegna ann- arra ytri aðstæðna, það er með trúna eins og annað hana verður að iðka ef hún á að vera manninum eðlileg." - Nú þegar þú ert að hætta prests- störfum og hefur öðlast mikla reynslu, mundirðu hvetja ungan karl eða konu sem væru að hugsa um að leggja út á þessa braut og leituðu álits þíns? „Já það mundi ég gera því prests- starfið er eitt af þeim störfum sem gefur manninum geysilega mikið svo framarlega sem maður veldur starf- inu. Stundum koma mjög svo alvar- legar stundir en ef rétt er við þeim brugðist fær maður venjulega meira frá þeim sem í sorginni og vandanum eru heldur en maður getur sjálfur gefið. Að því held ég eru þetta mjög notaleg gagnkvæm samskipti, það sem hefur snúið að mér hefur verið mér mikils virði. Það er spurning út af fyrir sig hvað gefur lífinu mest gildi. Ég held að sá sé auðugastur í lífinu sem sér þegar hann lítur til baka sem flest tækifæri sem hann hefur notað til góðs af þeim sem boð- ist hafa. Þetta er eins og með talent- urnar sem sagt er frá í Biblíunni og ekki á að grafa í jörðu." Vil ekki gista innan um blöðin - Þú ert ekki orðinn gamall maður og ert að hætta sem opinber starfs- maður, hvernig líður þér, ertu sáttur við þennan þátt ævinnar? „Mér líður satt að segja mjög vel. Ég hætti störfum án þess að vera óánægður með eitt eða neitt og er ekki að hætta vegna þess að ég sé orðinn óhæfur til starfsins. Þegar maður lítur til baka getur maður eig- inlega glaðst mest yfir því að engir skuggar skuli vera að baki manns og ekki heldur neinir skuggar framund- an sem fortíðin hefur dregið upp.“ - Hvað er framundan hjá þér, sestur í heigan stein eða hefurðu sótt um vinnu í fiskbúðinni? „Nei, undir niðri er ég sjálfsagt lat- ur maður og hugsa mér að vinna ekki neitt. Það má segja að ég verði al- frjáls þegar ég hætti störfum, ekkert bindur mig, börnin eru komin upp og ég er einhleypur og öllum óbundinn. Get sem sagt hugsað mér að leika mér eins og mig langar til en að sjálf- sögðu á ég mín hugðarefni í tóm- stundum og mun vafalaust sinna þeim að ákveðnum hluta.“ - Þú ert að vinna að ritstörfum? „Já, ég ætla mér að reyna að ljúka seinna bindinu af Sögu Húsavíkur. Því verki var mér úthlutað án þess að ég nokkurn tíma samþykkti, en það er samt orðið að samþykki mínu að reyna að Ijúka þeirri bók. Hins vegar hef ég tekið mér hvíld frá því verki í sumar vegna flutninga, ég er að flytja úr prestssetrinu aðalmagnið af tíma- ritum og blöðum í kjallara sem ég á, þar hef ég býsna gótt húsrými.“ - Þú hefur verið þekktur sem bóka- og blaðasafnari, ertu hættur að safna? „Nú má segja að ég sé ekki orðinn sérstakur safnari, er búinn að ná saman mjög mörgum tímaritum og dagblöðunum að verulegu leyti og hef gefið Bókasafni Suður-Þingey- inga fjögur blöð: Alþýðublaðið, Þjóðviljann, Tímann og Morgun- blaðið. Að vísu vantar einhver ein- tök enn sem ég ætla að reyna að ná. Þar með er ég alveg búinn að vísa þessum blöðum frá mér og hef ekki áhuga á að viða meiru að mér, hins vegar er mér ljóst að þörf er á ein- hvers konar tímarita- eða blaðamiðl- un því margir eru að safna einhverju ákveðnu efni og þá er nauðsynlegt að einhvers staðar sé svona miðstöð eða fyrirgreiðslustaður. Ég geng að þessu sem vinnu og veit að í framtíðinni þegar ég gegni engum sérstökum störfum hins opinbera þarf ég að skipuleggja mína vinnu. Ekki vinna frá morgni til kvölds heldur ákveðinn kafla úr degi og eiga síðan mitt frí eins og ungur maður á besta aldri sem vill fá eitthvað út úr sínum frí- stundum.“ - Ætlar þú að búa áfram hjá okk- ur á Húsavík? „Það er eiginlega meiningin ef ég fæ húsnæði við mitt hæfi. Ég vil ekki gista innan um blöðin í kjallaranum hjá mér. Þetta ræðst líklega seinni- partinn í sumar, annars verð ég að fá leigt heldur en að fara í burtu.“ Það ríkir yfirleitt glaðværð og gamansemi umhverfis séra Björn og oft hefur hann komið mönnum á óvart með alþýðleik sínum. Til marks um það er að lokurn ein lítil saga: Það var skömmu eftir að séra Björn kom til Húsavíkur að hann fór sér til gamans með Hálfdáni Hjalta- syni að Tjarnarrétt í Kelduhverfi. Hittu þeir bónda einn sem átti margt fé í réttinni en var liðfár. Ganga þeir félagar nú til liðs við bóndann og var presturinn enginn liðleysa við fjár- dráttinn. Er mesta annríkið var um garð gengið gaf bóndinn sér loks tíma til að víkja sér að Hálfdáni og spyja hvaða piltur þetta sé sem svo ötullega hafi aðstoðað hann um dag- inn. Séra Birni mun ekki hafa leiðst að sjá svipinn á bóndanum þegar honum varð ljóst hvaða embætti aðstoðarmaðurinn gegndi. IM . . . fór beint í prestsstarf á Árnesi á Ströndum. E 'S

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.