Dagur - 15.08.1986, Side 16

Dagur - 15.08.1986, Side 16
DAfiUR Akurcyri, föstudagur 15. ágúst 1986 Nýir réttir á helgarseðli Smiðjunnar Hofsós: Ný hafnarvog „Það er búið að kaupa nýja hafnarvog og er hún komin til landsins. Það á eftir að leysa hana úr tolli og koma henni fyrir,“ sagði Ófeigur Gestsson sveitarstjóri á Hofsósi. „Það cr húið að scmja um niðursctningu á voginni og rcyn- um við að lcysa hana út cins fljótt og kostur cr, cða þcgar gatna- gcrðarframkvæmdum cr lokið," sagði Ófcigur. Vogin cr af Avcry-gcrð og cr framlcidd í Englandi. Áætlaður kostnaður vogarinnar mcð húsi, lcstrarmælum og tölvuprentara cr um 2 milljönir króna. gcj- Sorpbrennslumálið: Viðræður í gangi Bæjarstjórn Sauðárkróks og hreppsnefnd Rípurhrepps komu saman til fundar síðast- liðinn laugardag og ræddu fyrirhugaða byggingu sorp- brennslustöövar. En hin nýja hreppsnefnd Ríþurhrepps hef- ur eitthvaö að athuga við afgreiðslu síðustu hrepps- nefndar á leyfi til handa Sauð- árkróksbæ að byggja sorp- brennsluþró í landi Hellulands. Að sögn Snorra Björn Sigurðs- son. hæjarstjóra á Sauðárkróki, gcrðist lítið á þessum fundi, cn ákvcðið að lialda viðræöum áfram í næstu viku. „Eg hcf trú á og vona að þctta mál leysist fljót- lega,“ sagrSi Snorri Björn. Á sunnudag fór Hállgrímur Ingv- arsson, tæknifræöingur Sauðár- krókshæjar, ásamt þremur hrcppsnefndarmönnum úr Ríp- urhreppi, að skoða sorphrennslu- þróna á Siglufirði. -þá Herðubreið sést víða að - formfögur og tignarleg. Aðgangur ferðamanna að hálendinu er sífellt að verða auðveldari með nýj- um brúm og bættum vegum. Þessi mynd er tekin frá Möðru- dalsöræfum. Mynd:HS Tillögur menntamálaráðuneytis um niðurskurð sérkennslu: Unnar án nokkurs samráðs við fræðslustjóraembættið Eins og fram kom í blaðinu fyrir nokkru hlutu tillögur fræðslustjóra Norðurlands- umdæmis eystra, varðandi sér- kennslu á næsta skólaári, litla náð fyrir augum manna í menntamáiaráðuneytinu. Sam- Fjórir að norðan - í knattspyrnulandsliðið Sigi Held, þjálfari íslenska knattspyrnulandsliðsins, hefur nú valið 18 manna hóp í lands- lið Islands sem tekur þátt í forkeppni Ólympíuleikanna. Skilyrði er að leikmenn hafi ekki leikið fyrir íslands hönd í heimsmeistarakeppninni. Einhverjar hreytingar eiga eft- ir að verða á hópnum ef að líkum lætur en hann er þannig skipað- ur: Markverðir: Friðrik Friðriksson Fram, Stefán Jóhannsson KR. Aðrir leikmenn: Ágúst Már Jónsson KR, Ársæll Kristjánsson Val, Guðmundur Torfason Fram, Guðni Bergsson Val, Hall- dór Áskelsson Þór, Hlynur Birg- isson Þór, Kristinn Jónsson Fram, Kristján Jónsson Þrótti, Loftur Ólafsson KR, Ólafur Þórðarson ÍA, Óli Þór Magnús- son ÍBK, Siguróli Kristjánsson Þór. Sveinbjörn Hákonarson ÍA, Tryggvi Gunnarsson KA, Viðar Þorkelsson Fram og Þorsteinn Þorsteinsson Fram. BB. kvæmt ncmendagreiningu sem fram fór í umdæminu gerði fræðslustjóri tillögur sem gerðu ráð fyrir að þarna væri um 100 nemendur að ræða og ættu þeir rétt á 850 vikustunda sérkennslu. Nú hefur mennta- málaráðuneytið skilað tillög- um til hagsýslu og þar er gert ráð fyrir að þetta séu ekki nema 44 nemendur sem þarfn- ist 200 vikustunda sérkennslu. Þessar tillögur voru unnar algerlega án samráðs við fræðslustjóra og svo virðist reyndar sem tillögur hans hafi verið látnar sem vindur um eyrun þjóta. Á blaðamannafundi sem boð- að var til á Fræðsluskrifstofu Norðurlandsumdæmis eystra í gær kom fram að fræðslustjóri hefur nú sent menntamálaráðu- neytinu bréf þar sem gerðar eru athugasemdir við þetta og farið fram á leiðréttingu. Þá kom einn- ig fram að fræðslustjóri hefur sent bréf til skólastjóra í umdæm- inu þar sem hann tilkynnir þeim um niðurskurðinn. Jafnframt var í því bréfi bent á þann möguleika að veita þessum nemendum nauðsynlega sérkennslu á ábyrgð sveitarfélaganna í þeirri von að þarna sé um mistök að ræða sem hljóti leiðréttingu. Nú þegar er ljóst að í Skútustaðahreppi verð- ur sérkennslu haldið uppi á ábyrgð hreppsins þar sem ekki þykir unnt að skera þessa þjón- ustu niður af mannúðarástæðum. Lfta má á þessar tölur frá öðru sjónarhorni. Þarna er um 650 vikustundir sem ber á milli. Þetta þýðir að ef farið yrði eftir tillög- um menntamálaráðuneytisins myndu 24 kennarar missa atvinn- una. í Lundarskóla hefur þegar verið gengið frá kennararáðning- um og þar er ljóst að fækka verð- ur um 2-4 kennara ef farið verð- ur eftir þessum tillögum. Þess má geta að um niðurskurð er að ræða í öllum kennslu- umdæmum landsins nema einu. í Reykjavík voru tillögur fræðslu- skrifstofunnar samþykktar óbreyttar. JHB Endurbæturnar á Sléttbak: Skipt um aðalvél „Það þarf bara að gera ýmsar viðhalds- og endurbætur á skipinu, það verður m.a. skipt Loðnuveiðin hefur dregist saman um rúmlega 40% I skýrslu sem Fiskifélag íslands sendi nýlega frá sér kemur fram að heildarafli norð- lenskra báta og skipa fyrstu sjö mánuði ársins var 119.613 tonn. A sama tíma í fyrra var hann 133.235 tonn. Samdrátt- urinn er því um 10,2%. Heildarafli bátanna er 64.271 tonn en var á sama tíma í fyrra 80.260 tonn sem gerir um 20% samdrátt milli ára. Sá samdráttur felst einkum í minni loðnuveiði en hún hefur dregist saman um 40,7% frá því á sama tíma í fyrra. Þorskafli báta hefur hins vegar aukist um rúmlega 21%. Heildarafli norðlenskra togara er nú orðinn 55.342 tonn en var í fyrra 52.975 tonn. Þar hefur því orðið aukning um 4,3%. Þorsk- veiði er þó minni en á sama tíma )' fyrra, eða um 2,5%. Liðurinn „annar botnfiskur" hefur hins vegar aukist um rúmlega 15,5%. Rétt er að láta koma fram að þessar tölur Fiskifélagsins eru bráðabirgðatölur. JHB „Súlan“ á leið til lands með full- fermi. um aðalvél. Þetta eru góð og sterk skip en það þarf þó að gera eitthvað fyrir þau,“ sagði Sverrir Leósson stjórnarfor- maður ÚA um viðgerðir á Sléttbak sem verið er að semja um við Slippstöðina þessa dag- ana. „Þetta er í sjálfu sér nokkuð mikið mál og einhverjum þætti þetta dýrt. En þetta er stórt og gott skip og við vitum að það er mikið eftir í því. Hins vegar eru alltaf vissir hlutir sem þarfnast endurnýjunar eins og eðlilegt er,“ sagði Sverrir. Ekki er endanlega ákveðið hvenær hafist verður handa við verkið þar sem samningar standa enn yfir, en Sverrir sagðist eiga von á að það yrði byrjað í kring um áramótin og yrði því lokið tveimur til þremur mánuðum seinna. JHB

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.