Dagur


Dagur - 30.09.1986, Qupperneq 1

Dagur - 30.09.1986, Qupperneq 1
69. árgangur Akureyri, þriðjudagur 30. september 1986 182. tölublað FILMUHUSIÐ Hafnarstræti 106 Sími 22771 Pósthólf 198 gæðaframköllun Filman inn fyrir kl. 10.45. Myndirnar tilbúnar kl. 16.30. Opið á laugardögum frákl. 9-12. Efnaverksmiðjan Sjöfn haslar sér völl erlendis: Selur 25-30 tonn af gólfefni til Póllands Óskar Axel Óskarsson fram- kvæmdastjórí hjá skóverslun Axels Ó segir að skóverk- smiðja Sambandsins á Akur- eyri hafi brotið samkomulag með því að bjóða upp á Puffins skó á útsölu á Akureyri á dögunum. Oskar segir að hann hafi verið staddur í Portúgai er hann fyrst hafði spurnir af þessari útsölu á Akureyri, annars hefði hann far- ið rakleiðis norður og kannað þetta mál. Ágreiningur er um hversu mikið magn af Puffins skóm var á útsölunni. Baldur Baldursson sem verslar með Puffins skó á Akureyri segir að um mikið magn hafi verið að ræða og að líklegt sé að farið verði fram á skaðabætur. Úlfar Gunnarsson deildarstjóri hjá skóverksmiðju Sambandsins á Akureyri segir að hér sé ekki rétt farið með. Aðeins hafi verið um að ræða nokkur pör af skóm sem seld voru á útsölunni af mis- gáningi. Þá segir Úlfar einnig að þetta muni ekki koma fyrir aftur og reyndar sé þetta mál þegar leyst. Sjá nánar á bls. 3 Hótel Húsavík: Samvinnu- ferðir áfram „Við höfum lagt fram ákveðn- ar tillögur um samstarfssamn- ing og höfum fullan hug á áframhaldandi samstarfi,“ sagði Hildur Jónsdóttir hjá Samvinnuferðum er Dagur ræddi við hana í gær. Á morgun rennur út leigu- samningur Samvinnuferða og Hótels Húsavíkur en Samvinnu- ferðir hafa rekið hótelið að undanförnu. í dag verður fundur í stjórn hótelsins og er þess að vænta að á þeim fundi muni línur skýrast. IM „Því miður ber alltaf á þessu annað slagið og er það bundið árstíðum,“ sagði Þorsteinn Þorsteinsson sundlaugarvörð- ur og formaður Umhverfis- málanefndar Akureyrar er hann ásamt Guðmundi Krist- jánssyni sýndi okkur dauða önd sem hafði verið særð illi- Efnaverksmiðjan Sjöfh hefur gengið frá samningi um að verksmiðjan framleiði og ann- ist lagninu gólfefnis á vinnslu- þilför, snyrtingar og stakka- geymslur sex íslenskra togara sem fara til Póllands í gagnger- ar endurbætur. Togararnir sem um ræðir eru svo kallaðir Japanstogarar og að sögn Kristins Sigurharðarsonar efnafræðings hjá Sjöfn var gengið frá samningi um þetta í síðustu viku. Um verulegt magn er að ræða því í hverju skipi verður gólfefnið lagt á um 300 fermetra. Alls verður því lagt á rúmlega lega á andapollinum við sund- laugina. Að öllu líkindum hafði öndin verið skotin með túttubyssu, en þau „vopn“ njóta vinsælda meðal barna og unglinga á haustin. Nef- ið hafði verið skotið af öndinni að hluta til og hafði hún þar af leiðandi ekki getað étið neitt og 1800 fermetra í togurunum sex og er áætlað að til þess þurfi 25- 30 tonn af gólfefni. Samnings- upphæðin er á bilinu 3-4 milljónir króna. Efni þetta, Úretan-kvars, nýt- ur sívaxandi vinsælda, og er sér- staklega hentugt til að koma í veg fyrir hálku. Þetta efni hefur verið lagt í íslenska togara í rúman ára- tug með mjög góðum árangri. Sams konar efni er á gólfi sturtu- klefanna í íþróttahöllinni á Akureyri. Nú er unnið að frágangi fyrstu sendingarinnar en hún mun fara um borð í Hoffellið sem heldur veslast upp úr hungri. Hafði fugl- inn verið svona einhvern tíma, því hann var mjög horaður og með tóman sarp. Þorsteinn sagði að þetta væri ekki í fyrsta skipti sem slíkt gerist, þó nokkrar end- ur hefði hann séð illa leiknar á pollinum. „í mörgum tilfellum eru endurnar drepnar í fyrsta til Póllands þann 6. október nk. Tveir menn frá Sjöfn fara utan til að annast lögnina í fyrsta togar- anum og kenna Pólverjum réttu vinnubrögðin. Auk þess fer einn eftirlitsmaður utan og mun hann hafa eftirlit með framkvæmdum í hinum togurunum. Kristinn sagði að stefnt væri á að leggja þetta efni í fimm nýsmíðatogara að auki, sem ver- ið er að hefja smíði á í Póllandi. Það mál væri þó ekki frágengið ennþá. Forráðamenn verksmiðjunnar hafa að undanförnu verið að þreifa fyrir sér með markaðssetn- skoti, en nokkrar hafa særst illa og þar af leiðandi hefur þurft að aflífa þær,“ sagði hann. Það þarf ekki að taka það fram hversu níðingslegt þetta er gagn- vart varnarlausum fuglunum, sem eru á andapollinum til að veita íbúum og gestum bæjarins ánægju. gej- ingu erlendis og Pólland er ekki eina landið sem er inni í dæminu. Þannig hafa hreinlætis- og snyrti- vörur frá Sjöfn verið settar á markað í Færeyjum. Ein sending er þegar farin og önnur er á leið- inni. Grænlendingar hafa einnig pantað þessar vörur í tilrauna- skyni en í smærri mæli þó. Þá hafa staðið yfir viðræður við aðila í Bandaríkjunum um að koma þessum vörum á framfæri þar. Það er því bjart yfir Sjafnar- mönnum þessa dagana. BB. Miklilax: Hrogna- taka á næstunni - Meira en nóg af heitu vatni Fraihkvæmdir við byggingu laxeldisstöðvar Miklalax hf í landi Lambanesreykja í Fljót- um ganga vel. Að sögn Reynis Pálssonar framkvæmdastjóra verður hluti stöðvarhússins tekinn í notkun á næstunni. Hann sagði þá vera að fá 100 hrygnur af þeim 150 sem þyrftu til hrognatöku í haust og kreistingar mundu hefjast eftir þrjár vikur. Góður árangur varð af borun eftir heitu vatni sem nýlega er lokið á Lamba- nesreykjum. Reynir kvað allri steypuvinnu vera lokið og byrjað sé að reisa þak stöðvarhússins. Búið er að steypa 3 stór eldisker undir stærstu seiðin og botninn í byrj- unarfóðurkerin sem verða 20 að tölu. Klaksalur stöðvarinnar verður fyrst tekinn í notkun en aðrir hlutar hennar verða síðan smám saman teknir í notkun í vetur. Reynir sagði nokkra vönt- un hafa verið á vinnuafli þegar skólarnir byrjuðu en bændur hefðu þá hlaupið í skarðið og bjargað málum. Nýlega lauk bor- un eftir heitu vatni á vegum Miklalax. Árangur varð mjög góður og hefur fyrirtækið nú yfir að ráða um 18 sekúndulítrum af sjálfrennandi 64 gráðu heitu vatni, sem Reynir sagði að með dælingu megi meira en tvöfalda. Það er því greinilegt að af heitu vatni eiga þeir Miklalaxmenn meira en nóg. Gert er ráð fyrir að laxeldisstöðin við Miklavatn verði 350 þúsund seiða stöð til að byrja með, en að sögn kunnugra eru ýmsir möguleikar á að auka þann fjölda áður en langt urn líður. -þá Guðmundur Kristjánsson og Þorsteinn Þorsteinsson með öndina. Akureyri: Mynd: gej Níðingsverk á andapollinum - Endurnar skotnar með „túttubyssum“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.