Dagur - 30.09.1986, Side 5
30. september 1986 - DAGUR - 5
Jesendahornið.
Haustfegurö í bænum
Þessa dagana ríkir veruleg haust-
fegurð í bænum. Flest tré og
runnar standa enn í laufskrúði
sumarsins, sem er að fá á sig
haustlitadýrðina og þau mörgu
og fögru blómabéð, sem eru víðs
vegar um bæinn, standa enn að
mestu í hásumarskrúða og gleðja
augu og anda vegfarenda.
Mig hefur oft langað til, þegar
leið mín hefur legið framhjá
þessum blómabeðum, að þakka
þeim, sem þarna hafa lagt hönd
að verki.
Þó að sumarblíðan og sólskinið
eigi mikinn þátt í þessari ágætu
listsköpun, þá hefur hugur og
hönd fólksins lagt sitt af mörkum
og gróðursett skrúðjurtirnar af
smekkvísi, sem fegrar og bætir
umhverfið.
Það hefur komið í ljós að
bæjarbúar kunna að meta þetta
starf, því að umgengni við þessa
reiti mun yfirleitt hafa verið
sómasamleg, og það er líka
þakkarvert. Það er margt, sem
aflaga fer og við erum oft að
kvarta og ekki að ástæðulausu,
því miður. En það er einnig vert
að minnast þess, sem jákvætt er
og þakkarvert.
G.K. - Akureyri.
Spuming um tillitssemi
Moldrok frá
KA-vellinum
Kona úr bænum hafði samband
við blaðið og vildi fá að vita hvort
ekki væri óleyfilegt fyrir fullfrískt
Áskriftin
ekki dýr
Kona hringdi:
„Ég hef verið áskrifandi að
Degi í nokkur ár og get ekki skil-
ið fólk sem segir áskriftina dýra.
Það kvartar yfir því að fá miklu
færri blaðsíður fyrir peningana
heldur en ef það keypti Morgun-
blaðið. Svona rök eru fáránleg.
Morgunblaðið er bákn sem gefið
er út í meira en 40000 eintökum,
en Dagur kannski í 5-6000. Sam-
keppnisgrundvöllur er enginn.
Og er virkilega til fólk sem sér
eftir 480 krónum á mánuði fyrir
blaðið? Fyrir þennan pening er
hægt að kaupa 5 sígarettupakka,
eða fjögur blöð af HP plús eitt
tímarit, svo dæmi sé tekið. Nei,
ég skil ekki fólk sem er að grenja
út af þessum peningum og fær
blaðið sent til sín á hverjum
morgni. Nær væri að efla Dag
með því að fleiri gerðust áskrif-
endur.“
Matvælaeftir-
lit á Akureyri
Maður hringdi og kvartaði yfir
skemmdum mat og spurði af því
tilefni hvort hér væri ekkert mat-
vælaeftirlit sem hann gæti snúið
sér til. Því er til að svara að yfir-
leitt fara menn í þá verslun sem
þeir keyptu viðkomandi matvæli,
kvarta þar og fá þeim skipt.
Einnig skal bent á Neytendafélag
Akureyrar Gránufélagsgötu 4.
Þar eru hagsmunir neytenda
hafðir að leiðarljósi.
Maðurinn vildi einnig benda á
það að þar sem hvítar merkingar
eru á götum er malbikið minna
slitið en annars staðar. Ég hugsa
að ástæðan sé sú að það er mjög
lítið keyrt á þessum yfirborðs-
merkingum, en þessu er samt
komið á framfæri.
Þakkir til
Þingeyinga
Þegar við hjónin hverfum héðan
úr héraði þökkum við áratuga
samstarf og samveru með ykkur.
Sérstakar þakkir eru færðar
fyrir veglegt samsæti sem sóknir
Grenjaðarstaðarprestakalls, Aðal-
dælahreppur og Kirkjukórasam-
band Suður-Þingeyinga héldu
okkur og fjölskyldu okkar að
Ýdölum þann 22. ágúst sl. Við
þökkum höfðinglegar gjafir sem
okkur voru færðar, þökkum fyrir
söng kirkjukóranna og vináttu
alla. Aðalbjörg Halldórsdóttir,
Sigurður Guðmundsson.
fólk að leggja á bílastæðum sem
merkt væru fyrir fatlaða. Hún
sagði að sér fyndist lágkúrulegt
að vita til þess að fullfrískt fólk
gæti ekki lagt það á sig að ganga
nokkrum metrum lengra því
ómögulegt væri að vita hvenær
kæmi fatlaður einstaklingur sem
þyrfti á þessu stæði að halda en
þyrfti frá að hverfa. Konan
nefndi sem dæmi um þetta bíla-
stæðið við Hagkaup.
Blaðið hafði samband við Ólaf
Ásgeirsson yfirlögregluþjón
vegna þessa máls og sagði hann
að þessi bíiastæði væru ætluð
þeim sem vegna tímabundinnar
eða varanlegrar fötlunar ættu erf-
itt með að hreyfa sig. Sem dæmi
nefndi hann að maður sem ætti
við meiðsl í baki að stríða gæti átt
erfitt um gang þó að hann gæti
keyrt bíl. Ólafur sagði að ekkert
væri til í lögum sem bannaði fólki
að nota þessi stæði að óþörfu en
hins vegar væri þetta spurning
um tillitssemi eins og svo margt
annað.
Á fimmtudag hringdi íbúi í Eini-
lundi og sagði að moldarbingir á
KA vellinum þyrluðust upp í
strekkingnum og sæist ekki á
milli húsa. „Það er ekki einu
sinni hægt að opna glugga. Þetta
er til svo háborinnar skammar að
ég næ ekki upp í þetta. Mig lang-
ar að hreyfa aftur við þessu því
þetta er að verða alvarlegt mál.
Það er ekki hægt að hengja út
þvott þarna í efstu húsunum í
Einilundi þegar hann er úr þess-
ari átt. Þetta er alveg ferlegt."
■ \
■ ;
Opið:
Miðvikudag: 1. okt. 10-6.
Fimmtudag: 2. okt. 10-10.
Föstudag: 3. okt. 10-7.
Laugardag: 4. okt. ■. 10-3.
■
Fyrir þá sem
vilja föt á
hlægilegu veröi
Úlpur, mittisjakkar,
jogginggallar, joggingpeysur,
gallabuxur, peysur,
stretsbuxur o.fl. o.fl. o.fl.
Afsláttarmúrinn
sprengdur
-
hm
Opið frá kl. 10
alla dagana
Fyrir þær sem
vilja sauma
Bómullarefni, ullarefni,
joggingefni, ótrúlegt úrval
200 krónur metrinn.
Trúir þú því?_________
„Skemmtun“
Fyrir alla hina
„Skemmtun“
Lukkumiðar við innganginn
= Frítt = Dregnir út
vinningar á 1 klst. fresti
Leynigestur skemmtir litla fólkinu
Kaffi og pepsí
á svölunum
Afmælisdrykkur Davíðs frír fyrir alla
SANITAS
Avallt nýjar myndir
FLUGLEIÐÍR
Akureyrar h/f
HADHUSTORGl 3 S<Mt 86-JS000