Dagur - 14.11.1986, Side 1
Akureyri, föstudagur 14. nóvember 1986
215. tölublað
Útgerðarfélag Skagfirðinga:
Greiðslustöðvun blasir við
verði hlutafé ekki aukið - Skuldirnar orðnar um hálfur milljarður
Fram kom á hluthafafundi í
Útgerðarfélagi Skagfirðinga á
Sauðárkróki sl. miðvikudags-
kvöld að verði hlutafé félagsins
ekki stórlega aukið á næstunni
blasi greiðslustöðvun við félag-
inu. Hlutaféð er í dag aðeins
43 milljónir. Heildarskuldir að
loknum endurbótum á tveim af
þrem skipum félagsins á þessu
ári eru um hálfur milljarður,
þar af 215 milljónir í Viðskipta-
bankanum. Óttast menn mjög
að skipin nái ekki að koma
með þau verðmæti að landi
sem þarf til að standa undir
skuldunum.
Þungt hljóð og mikill uggur var
í mönnum á fundinum varðandi
framtíð félagsins. Endurskoð-
andi félagsins heldur að ekki dugi
minna en áttatíu milljóna hluta-
fjáraukning í félaginu, sem er
tæplega þreföldun á hlutafé.
Ófeigur Gestsson sveitarstjóri á
Hofsósi kvað hér verið að tala
um meiri upphæðir en menn
hefðu heyrt minnst á hér í firðin-
um. Marteinn Friðriksson stjórn-
arformaður ÚS sagði hluthafa
ekki hafa greitt neitt í þeirri
hlutafjáraukningu sem ákveðin
hefði verið, 15 milljónir 1985 og
20 milljónir í ársbyrjun 1986.
Staða félagsins væri af þeim sök-
um verri í dag en ella. Hluthafar
sögðust aldrei hafa verið látnir
vita um gjalddaga á þessu hlutafé
og könnuðust ekki við þann
gjalddaga sem nefndur var á
fundinum. Fram kom að fengist
hefði 15 milljóna framlag frá
Byggðasjóði til hlutafjáraukning-
ar í félaginu. Engin gögn lágu
fyrir fundinum um rekstrarstöðu
félagsins eða framtíðaráætlanir
eins og hluthafar höfðu vonast
eftir. Astæðan fyrir því var sögð
samningalota forráðamanna US
við þýsku skipasmíðastöðina
vegna uppgjörs á Drangeynni
sem lauk daginn fyrir fundinn.
Voru stjórnarmenn tiltölulega
ánægðir með niðurstöðu upp-
gjörsins. Heildarkostnaður vegna
Drangeyjar var um 170 milljónir,
sem er nokkuð meira en gert var
ráð fyrir, hækkun þýska marksins
á tímanum vegur þar nokkuð.
Heildarkostnaður vegna skip-
anna beggja er um 240-250 millj-
ónir. Að sögn Bjarka Tryggva-
sonar framkvæmdastjóra ÚS
verður nú að koma vanskilalán-
um og lausaskuldum í eins hag-
kvæm lán og hægt er. Eftir það
yrði fyrst hægt að gera sér grein
fyrir hver staða. fyrirtækisins er
raunverulega og meta í því fram-
haldi hvernig veiðum skipanna
verður háttað. Þar væru ýmsir
möguleikar fyrir hendi. -þá
var
málunum
ýtt til hliðar
Síldin hemur
- síldin fer
6-7