Dagur - 14.11.1986, Side 3

Dagur - 14.11.1986, Side 3
14. nóvember 1986 - DAGUR - 3 Jólakort KFUM og K Eins og mörg undanfarin ár gefa KFUM og K á Akureyri út jóla- kort. Ágóði af sölu kortanna rennur í byggingarsjóð félaganna en félagsheimilið í Sunnuhlíð var tekið í notkun í mars 1985. Margt er enn ógert í Sunnuhlíð auk þess sem rekstur hússins kostar sitt. Starf KFUM og K á Akureyri er með töluverðum blóma unt þess- ar mu.idir og kemur umtalsverð- ur fjöldi barna og unglinga á fundi í viku hverri. Er þess vænst að bæjarbúar vilji styrkja þetta kristilega uppeldisstarf m.a. með því að taka vel á móti því unga sölufólki sem á næstu dögum knýr dyra og býður jólakortin til sölu. Að þessu sinni er litprentuð mynd á kortinu af logandi stöfum í Vaðlaheiði á gamlárskvöld 1985, Jesús lifir, en ungt fólk í félögunum hefur séð um þetta s.l. tvö ár. Myndina tók Páll A. Pálsson ljósmyndari. [þróttir helgarinnar í kvöld leika Tindastóll og UBK í 1. deild íslandsmótsins í körfuknattleik. Leikurinn fer fram í íþróttahúsinu á Sauðár- króki og hefst kl. 20. Á morgun, laugardag, koma Breiðabliksmenn síðan til Akur- eyrar og leika gegn Þór í íþrótt- ahöliinni. Sá leikur hefst kl. 13:30, vegna beinnar útsendingar í sjónvarpinu frá þýsku knatt- spyrnunni. Handknattleikslið Þórs leikur tvo leiki í 2. deildinni, báða fyrir sunnan. í kvöld kl. 20 gegn Gróttu á Seltjarnarnesi og á morgun gegn ÍÁ á Akranesi kl. 14. USAH hefur keppni í 2. deild íslandsmótsins í körfuknattleik á morgun, laugardag, er liðið sæk- ir Skallagrím heim í Borgarnes og hefst sá leikur kl. 14. Hafið samband og kynnist af eigin raun kostum Barkar þak- og veggeininga. HJALLAHRAUNI 2 ■ SÍMI 53755 • PÓSTHÓLF 239 ■ 220 HAFNARFIRtíl Núnaget vetmrrúió betra veró segir Dagbjartur Guðjónsson að Lyngum í Meðallandi sem setti Barkar þakeiningar á fjárhúsið sitt. „Við vorum aðeins tvo daga að smella þakeiningunum á og unnum þó bara milli mjalta. Síðan er fjárhúsið allt miklu hlýrra og fyrir vikið get ég vetrarrúið og fengið þannig greiða og fína ull sem flokkast betur og gefur hærra verð. Ég er hæstánægður með að hafa valið Barkar þakeiningar,“ segir Dagbjartur Guðjónsson. Burðarþol Barkar þak- og veggeininga er mikið og uppsetning auðveld og fljótleg. Barkar þak- og veggeiningar henta mjög vel í flestum byggingum, einkum atvinnu- og geymsluhúsnæði, ekki síst þar sem mikils hreinlætis er krafist, s.s. í tengslum við verslun, matvælaiðnað og landbúnað. Barkar hús- einingar tryggja ótvíræðan sparnað í byggingu, viðhaldi og rekstrarkostnaði. Norðurland: Aukið framboð eftirmenntunar I vetur mun Stjórnunarfélag íslands ásamt Tölvutækjum s.f. standa saman að endur- menntunarnámskeiðum hér á Akureyri. Það er mikið hags- munamál fyrir norðlenska stjórnendur að eiga kost á eftirmenntun á heimaslóðum í sama gæðaflokki og gerist í Reykjavík. Með því fást aukn- ir möguleikar, minni kostnað- ur og mikill tímasparnaður fyr- ir norðlensk fyrirtæki. Leiðbeinendur á námskeiðun- um verða hinir sömu og eru á námskeiðum S.F.Í. í Reykjavík og aðbúnaður allur í sama gæða- flokki og fyrir sunnan. Eina breytingin er sú, að námskeið, sem haldin eru á fjórum hálfum dögum í Reykjavík verða haldin á tveimur heilum dögum á Akur- eyri. Kennt verður frá kl. 8:30 á morgnana til kl. 12:30 og aftur frá kl. 13:30 til kl. 17:30 síðdegis. Nú þegar hafa eftirfarandi námskeið verið ákveðin fram að næstu áramótum. Sölutækni I 19. - 20. nóv. 1986. i Stjórnun I 28. - 29. nóv. 1986. Áætlanagerð fyrirtækja 8. - 9. des. 1986. Skráning þátttakenda er í síma 26155. Samráð verður haft við þátttakendur ofangreindra nám- skeiða um val á námskeiðum eftir áramót. Fyrsta námskeið vetrarins í umsjá Tölvutækja s.f. var hið margrómaða Time manager námskeið, sem haldið var dagana 10. og 11. október sl. í Alþýðu- húsinu. Námskeiðið sóttu 55 stjórnendur frá fjölmörgum fyrir- tækjum um allt Norðurland og þótti námskeiðið takast sérstak- lega vel. (Fréttatilkynning frá Tölvutækjum s.f.) LAUT RESTAURANT Matseðill helgarinnar Canapés með reyktum laxi, kavíar og rækjum. Kjötseyði með kryddjurtum. Porterhouse steik með ferskum kjörsveppum. Svartaskógarterta. ★ Kaffi og konfekt. ★ Aðeins kr. 850.- Restaurant Laut, sími 22525.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.