Dagur - 04.12.1986, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 4. desember 1986
Hinn föngulegi leiklistarhópur.
Myndir og texti: Kjartan Þorbjörnsson
aLIt
En ef ég skrepp til Köben í 3 ár og þú færö að stjórna á meðan?
Það var fullt út úr dyrum.
Gegnum tíöina hefur árshátíð
Menntaskólans á Akureyri verið
haldin árlega þann 1. desember.
Þetta ár varð engin undantekn-
ing. Næstum allir nemendur
Menntaskólans mættu á svæðið.
Hátíðin byrjaði með borðhaldi í
heimavist skólans en vegna þess
hve fáir komust inn í matsal
heimavistar var setustofan líka
þétt setin, en þar var 1. og 2.
bekk komið fyrir. Var ræðuhöld-
um síðan sjónvarpað þangað
beint. (Ekki í gegnum gervi-
hnött).
Ræðuhöldin byrjuðu á því að
fulltrúi karla í 4. bekk steig í
ræðustól og hélt ræðu um nyt-
semi og galla kvenmanna. Síðan
gekk fulltrúi kvenna í ræðustól og
flutti líka ræðu en nú um kosti og
galla sterkara kynsins. Mikið var
borðað en meira var þó hlegið.
Þá var komið að formanni skóla-
félagsins Hugins sem steig í
ræðustól en þá hættu allir að
hlæja. Hún (vegna þess að
formaðurinn er kvenkyns) hélt
síðan langa ræðu um allt og ekk-
ert við litlar undirtektir viðstaddra.
Loks hætti hún að tala. Núna
hafði skólafólkið og aðrir gestir
nær klárað allar veitingar sem
fram höfðu verið bornar. Þá gekk
skólameistari Jóhann Sigurjóns-
son í ræðustól, þakkaði fyrir veit-
ingarnar og lét nokkra lauflétta
fjúka um fyrrverandi nemendur
skólans. Það var ekki þægilegt
að hlæja svona rosalega með
vömbina fulla af kökum. Síðan
var sungið og sungið þangað til
fólkið gat ekki sungið meira. Þá
var fólkinu raðað upp í skrúð-
göngu niður að Möðruvöllum en
þar átti ballið að vera.
En fyrst voru það skemmti-
atriðin. Aldrei á ævinni hef ég
séð jafn góð skemmtiatriði í
Menntaskólanum á Akureyri (enda
þau fyrstu sem ég sé). Fyrst kom
nýendurstofnaður kór MA fram á
á árshátíð MA
Setið yfir kræsingum.
Blautbolaslagur.
svið og söng nokkur lög. Það var
mjög gaman að hlusta á þau
syngja. Þau voru klöppuð upp
einu sinni en ekki aftur eftir það.
Eftir að fólkið hafði jafnað sig
eftir kórinn kom leiklistarfélag
Menntaskólans með nokkur
endurfrumsamin atriði þar á
meðal var leikrit um Rauðhettu
og köttinn hennar. En það sem
var nýtt við þetta leikrit var að
Rauðhetta litla var kínversk, úlf-
urinn var orðinn að vampíru en
veiðimaðurinn var kallaður
Rambo. Síðan var leikritið
„Gullna hliðið". Þetta leikrit var
um Lykla-Örn og konu hans Sól-
veigu sem stóðu við þetta heil-
aga hlið og ákváðu hverjir kæm-
ust inn og hverjir ekki. Núna voru
það „kennarar" sem reyndu að
komast inn í þessa paradís ekki á
jörð. En öllu góðu fylgir eitthvað
illt. Þarna var Djöfsi gamli mættur
á sviðið og reyndi að lokka
„kennara" til sín. Flestir notuðu
heilbrigða skynsemi og fóru hinn
Ijósa veg, en ekki allir, einn fékk
alveg ómissandi boð og hugsaði:
„Til hvers eru freistingar nema til
að falla fyrir þeim.“ Djöfsi (sem
var í gervi Jóhanns skólameist-
ara) fór því ekki tómhentur í
neðra.
Oft þurftu leikarar að taka sér
smá þásu vegna þess að ekkert
heyrðist í þeim fyrir hlátri í áhorf-
endum. Eftir þessi frábæru leikrit
voru leikarar með alls konar skot
og skæting, og ýmsa ádeilu á
t.d. stjórn Hugins, starfslið í
mötuneyti og marga aðra. Var
eins og þakið og tvær efri hæðir
ætluðu að fjúka af salnum þegar
skemmtiatriðin voru búin, svo
mikið var klappað.
En þá byrjaði loksins ballið.
Skólinn hafði leigt þrjár hljóm-
sveitir. Tvær þeirra spiluðu í kjall-
ara en ein spilaði uppi í skóla-
stofu og var það gömlu dansa
hljómsveitin. Var boðið upp á
margt annað en hljómsveitir t.d.
bar sem seldi óáfenga kokteila,
Ijósmyndatöku og margt annað.
Á öllum hæðum var hoppað og
skoppað og alls staðar var svaka
stuð. Vöktu hljómsveitirnar mikla
lukku og þá einkum Stuðkomp-
aníið. Spiluðu þeir fram á rauða
nótt og var ekki sleppt af sviðinu
fyrr en þeir höfðu spilað sex
aukalög. Síðan fóru allir heim
að sofa.
Daginn eftir þegar fólkið sem á
árshátíðina hafði komið var að
vakna talaði ég örstutt við nokkra
þeirra. Það voru nú ekki allir jafn
hressir.
Ásmundur
- Nú varst þú í leiklistarfélaginu
og lékst í nokkrum atriðum á árs-
hátíðinni, var ekki mikil vinna í
kringum þetta allt?
„Júhúú, það var unnið dag og
nótt núna vikuna fyrir skemmtun-
ina en þetta gekk ágætlega,
þetta var mikið strit en við nutum
diggrar aðstoöar leiklistar-
kennara og þannig gekk þetta allt
upp.“
- Hvernig fannst þér sjálfum
skemmtiatriðin heppnast?
„Alveg æðislega vel, það var
hlegið vonum framar."
- Kom þessi vinna ekki niður Ra,
á námsgreinunum?