Dagur - 04.12.1986, Blaðsíða 16
SANS
SOUCISsnyrtivörur
SÍMI
(96)21400
BADEN-BADEN • PARIS
Snyrtivörudeild
Kopasker:
Fengur til áramóta
Sæblik hf. á Kópaskeri hefur
síðan í septemberbyrjun haft
Feng, skip Þróunarsamvinnu-
stofnunar íslands á leigu til
rækjuveiða. Nú hefur verið
samið um það að Sæblik hafi
skipið á leigu fram að áramót-
um en þá fer skipið í slipp á
Akureyri til viðhalds og endur-
nýjunar. Eftir áramót fer
Fengur að öllum líkindum til
Grænhöfðaeyja þar sem hann
hefur áður verið við þróunar-
aðstoð.
Sæblik hf. er búið að ganga
frá kaupsamningi við Sjólastöð-
ina hf. í Hafnarfirði um kaup á
Dreka sem er 230 tonna skip en
Fengur er 150 tonn. Kaupverðið
er um 75 milljónir. Ekki er enn
ljóst hvenær skipið verður afhent
því fyrst verða gerðar einhverjar
breytingar á því.
Fengur sér nú um alla hráefnis-
öflun fyrir rækjuvinnslu Sæbliks
hf. og áður en skipið kom hafði
verksmiðjan verið stopp í eitt ár
vegna hráefnisskorts. Að sögn
Kristjáns Ármannsonar fram-
kvæmdastjóra fyrirtækisins ganga
veiðar ágætlega þegar veður leyf-
ir en það hefur verið stopult nú
um nokkurn tíma. Heildarafli
skipsins er á árinu orðinn um 380
tonn af rækju og er verðmæti
hennar um 35-40 milljónir þegar
hún hefur verið unnin. ET
Hótel Húsavík:
Reksturínn geng-
ur mjög vel
Reksturinn á Hótel Húsavík
hefur gengið mjög vel að
undanförnu og fyrirhugað er
að fitja upp á ýmsum nýjung-
um nú í desember.
Að sögn Péturs Snæbjörnsson-
ar var nýting hótelsins góð í sum-
ar og það sem af er vetri hefur
nýtingin verið góð, miðað við
árstíma. Sagði hann að orsakirn-
ar væru margar, m.a. gott tíðar-
far, margar árshátíðir hafa verið
Akureyri:
Margir
árekstrar
Það sem af er þessari viku hef-
ur verið mikið um árekstra á
Akureyri, enda fljúgandi
hálka. í gær voru komnir sex
árekstrar um kl. 17 og eigna-
tjón nokkur, en ekki voru slys
á fólki.
Á þriðjudag voru 2 árekstrar
skráðir hjá lögreglunni, en 6 á
mánudaginn. Einnig er vitað um
marga minniháttar pústra þar
sem lögregla hefur ekki verið
kvödd á staðinn. Brýnt skal fyrir
mönnum að fara varlega þegar
aðstæður eru eins slæmar og raun
ber vitni. SS
haldnar og hefur aðkomufólk
sem þær hefur sótt keypt gistingu
á hótelinu.
Sýning Leikfélags Húsavíkur á
Síldin kemur og síldin fer hefur
verið mikil búbót fyrir hótelið,
sem býður sérstaka leikhúspakka
með afslætti á gistingu og
leikhúsmiða.
Á föstudagskvöld verður fund-
ur Menor, Menningarsamtaka
Norðlendinga á hótelinu og í
tengslum við hann mun hótelið
gangast fyrir bókmenntakynn-
ingu. Ef þetta fær góðar undir-
tektir verður reynt að hafa slíka
kynningu, þar sem skáld munu
lesa úr verkum sínum, einu sinni
í viku fram að jólum.
Pað er kominn jólasvipur á
veitingasal hótelsins, þar er búið
að setja upp aðventuljós, fjölda
af jólastjörnum og gestum eru
boðnar smákökur með. kaffinu.
Jólasveinar hafa tilkynnt komu
sína að kaffihlaðborðinu á
sunnudögum seinna í desember.
Nú þegar geta hópar pantað
hlaðborð með ýmsum jólaréttum
svo sem rjúpum og hangikjöti og
20. des. verður slíkt hlaðborð
fyrir viðskiptavini og opið fram
eftir kvöldi.
Á nýársdagskvöld verður
haldinn nýársfagnaður í Hlíð-
skjálf þar sem boðið verður upp á
það besta í mat og drykk, auk
skemmtiatriða. IM
Miklar ís- og snjóhengjur myndast gjarnan á þakskyggnum gamalla húsa en hér er verið að hreinsa af húsinu Aðal-
Stræti 15. Mynd RPB
Frystihúsin í Ólafsfirði:
Kauptryggingu sagt upp
- samningar um fastráðningu hafa gefist vel
„Frystihúsin eru bæði búin að
segja upp kauptryggingar-
samningunum, annað frá 24.
desember og hitt frá áramót-
um. Búið er að senda starfs-
fólkið heim á launum, en þetta
er árstíðabundið ástand og
ekki verra núna en áður,“
sagði Agúst Sigurlaugsson hjá
Verkalýðsfélaginu Einingu á
Ólafsfirði.
Fastráðningarsamningarnir
hafa haft mikið að segja og fisk-
verkunarfólk hefur ekki sést á
atvinnuleysisskrá síðan í apríl.
Ágúst sagði að ekki hefði verið
meiri afli í ár en venjulega og auk
þess hafa tveir togarar verið í
viðgerð, þannig að trygg atvinna
í fiskvinnslu er samningunum að
þakka.
Ólafur bekkur hefur séð að
mestu einn um veiðarnar síðan í
september, en hann á að fara í
klössun í febrúar. Sú aðgerð gæti
útvegað 30-40 manns vinnu að
sögn Ágústar. Síðan er Merkúr
væntanlegur og framkvæmdir við
Sæver fara að hefjast, í smáum
stíl þó. „Við erum bara nokkuð
bjartsýnir,“ sagði Ágúst.
En staðan núna er þannig að
Sólbergið er í siglingu og Ólaf-
ur bekkur er einnig að veiða
fyrir sölutúr. „Skipin hafa ekkert
selt erlendis og það er nokkur
þrýstingur frá sjómönnunum út
af þessu háa verði. Enda skilst
mér að í sjómannalögunum
standi að skipstjóranum beri
skylda til að reyna að fá hæsta
verð fyrir aflann sem mögulegt
er. Ég hef einnig heyrt að báta-
sjómenn séu byrjaðir að þrýsta á
það að fá að setja í gáma og selja
út. Petta er skiljanlegt þegar
verðmismunurinn er hafður í
huga,“ sagði Ágúst.
Hann bætti því við að það
verði að taka tillit til þess í sam-
bandi við hráefnisskortinn nú að
það eru ekki sömu félögin sem
eiga skipin og frystihúsin. Hrað-
frystihús Ólafsfjarðar á ekki
Ólaf bekk, heldur Útgerðarfélag
Ólafsfjarðar, og Sæberg sem er
með Sólbergið er ekki með fisk-
verkun, en Sigvaldi Þorleifsson
hefur verkað afla frá því og
frystihúsin fengið þann afla. Það
hefði verið umdeilanlegra ef Sig-
urbjörgin hefði ætlað að sigla,
áður en skipinu var breytt í frysti-
togara, því þar er eigandinn
einnig með frystihús; Magnús
Gamalíelsson h.f.
„Ég er hræddur um að það
verði mjög lítill afli hérna núna,
en hins vegar gæti Sólbergið
kannski náð einum túr fyrir jól.
Þá eru frystihúsin ekki búin að
segja upp kauptryggingunni og
þetta gæti bjargast. Smærri bát-
arnir eru líka drjúgir,“ sagði
Ágúst Sigurlaugsson að lokum.
SS
Siglufjörður:
Tveir
bílar
fuku
Akureyrartogarar:
Harðbakur aflahæstur yfir landið
en Akureyrin með mesta aflaverðmæti
„Auðvitað fara saman afli og
verðmæti þegar talað er um
aflahá skip og kemur í Ijós að
Harðbakur er aflahæstur
togara yfir landið fyrstu 9 mán-
uði ársins,“ sagði Vilhelm Þor-
steinsson forstjóri Útgerðarfé-
lags Akureyringa um aflahæsta
skip félagsins og reyndar afla-
hæsta skip yfir landið.
„Þegar litið er á brúttótölur
yfir aflaverðmæti þá stöndum við
ekki vel, því þcir sem eru með
mest aflaverðmæti eru þeir sem
flytja mest út í gámum, “ sagði
Vilhelm.
Samkvæmt aflatölum hefur
Harðbakur EA aflað mest allra
islenskra togara, eða 3926 tonna
að verðmæti rúmar 69 milljónir.
Aðrir togarar félagsins eru
nokkru lægri. Kaldbakur er með
3224 tonn að verðmæti rúmar 59
milljónir, Sléttbakur með 2743
tonn að verðmæti rúmar 48 millj-
ónir, Svalbakur með 2349 tonn
að verðmæti rúmlega 51 milljón
króna og Hrímbakur með 2503
tonn að verðmæti rúmlega 51
milljón króna.
Öllum þessum afla hefur verið
landað á Akureyri og hann unn-
inn að mestu þar.
Af frystitogurum er það að
segja að Akureyrin EA er með
mesta afla og mesta aflaverðmæti
allra frystitogara á landinu.
Akureyrin hefur borið á land
3633 tonn að verðmæti rúmlega
178 milljónir króna. Næstur kem-
ur Örvar HU frá Skagaströnd
með 3348 tonn að verðmæti rúm-
lega 163 milljónir króna.
gej-
Á Siglufirði, eins og víðar á
Norðurlandi, hefur verið
mjög slæmt veður undan-
farna tvo sólarhringa eða svo.
Viðmælandi blaðsins sagðist
ekki muna eftir öðru eins
veðri og var þar á Sigluflrði í
fyrrinótt.
Síðdegis á þriðjudaginn fauk
bíll út af veginum við Sauðanes.
Bíllinn sem var mannlaus valt
alla leið niður í fjöru og gjör-
eyðilagðist. Hann náðist ekki
upp og er nú að öllum líkindum
horfinn í sjóinn.
í gærmorgun fauk síðan ann-
ar mannlaus bíll og lenti á hlið-
inni. Hann skemmdist töluvert.
Mikið fannfergi er nú á Siglu-
firöi en síðdegis í gær var veður
heldur tekið að lægja. ET