Dagur - 08.01.1987, Blaðsíða 7

Dagur - 08.01.1987, Blaðsíða 7
Texti: Ingibjörg Elfa Stefánsdóttir. Myndir: Kjartan Þorbjörnsson. andinn annar.“ - Hvað finnst þér Bryndís, er þetta ólíkt því sem þú átt að venj- ast á Sauðárkróki? B: „Já, mér finnst fólk hér mik- ið „snobbaðra" og þetta er frekar fúlt miðað við heima þar þekkja allir alla en hér hugsar hver um sig og sína.“ - Finnst þér erfitt að komast inn í hópinn? B: „Já, manni liði eins og hálf- vita ef maður kæmi hingað einn og ætlaði að kynnast fólkinu. Það er ekki hægt nema að vera í fylgd með bæjarfólki eða ef mað- ur er ekki alveg edrúl" - Finnst ykkur ölvun vera meiri en gengur og gerist á venjulegum böllum? S: „Mér finnst ölvun minni en oft. Ég held að það mætti komast hjá mikilli ölvun á áramótaböllum með því að leyfa ölvun. Núna eru hér 15-16 ára krakkar og eldri og þeir eru orðnir alveg nógu stórir L: „Hitta gamla skólafélaga." H: „Ég hef aldrei verið hér áður á áramótaballi." - Skemmtið þið ykkur vel? „Já, það er æðislega gaman.“ - Hafið þið oft komið í Dyn- heima? H: „Dálítiö." L: „Sjaldan." - Finnst ykkur vanta einhver skemmtiatriði? S og K: „Ekki skemmtiatriði heldur hljómsveitir eitthvað „live“ t.d. Stuðmenn!“ (í kringum okkur heyrðust hávær hróp þeirra sem voru sammála, greinilegt að það eru fleiri en Kínverjar sem fíla Stuðmenn.) Henni var ekki sama hvaða lag var spilað. til að fara með vín. Leyfa vín á einu balli á ári!“ K: „Sammála." B:- „Sammála." - Einhver minnisstæður atburður? S og B:„ Þegar við yfirgáfum heimavistarskólann að Núpi. Það var æðislegt!" K: „Bandaríkin." - Áramótaheit? S: „Hætta að reykjal!" - Skemmtið þið ykkur vel? „Já, alveg frábærlega, þetta er svaka stuðl" Helen og Lilja Fossdal (ekki systur) 15 og 16 ára - Af hverju Dynheimar um áramót? Eigum við ekki að spila gömlu góðu lögin núna? - Finnst ykkur mikið sama fólkið eins og áður? „Já, stór hluti hópsins kemur oft hingað." - Hafið þið áður verið á ára- mótaballi? H: „Já í Lundarskóla." L: „Já hér í Dynheimum." - Finnst ykkur þetta ball öðru- vísi á einhvern hátt? L: „Meira stuð og fleiri krakkar." - Finnst ykkur að unglinga- staður eins og Dynheimar ætti að gera eitthvað sérstakt til að skapa áramótastemmningu? „Kannski ekki skemmtiatriði en eins og Sjallinn bauð upp á, hatta og knöll.“ - Finnst ykkur þetta ball þá of líkt venjulegum böllum? „Já, allt of líkt fyrir þessa stemmningu sem á að ríkja um áramót." - En hvað með ölvunina? „Tvímælalaust meiri en venju- lega því hún er mikil.“ - Hvernig þætti ykkur að setja uþp skemmtun fyrir alla aldurs- hópa um áramót? „Jú, það væri flott, allir saman að skemmta sér.“ „Ekki sérstakir staðir fyrir hvern aldurshóp." - Einhver minnisstæður atburður? (Þær litu hálfvandræðalegar á hvor aðra.) „Ekkert persónulegtl! Segjum bara leiðtogafundurinn." - Einhver áramótaheit? „Er ekki best að hætta að reykja eins og aðrir, svona þegar við höfum byrjað! Nei í alvöru, haga sér betur og ná öllum prófunum!“ 8. janúar 1987 - DAGUR - 7 Ingi V. Jónasson: Menn á borð við Jóhannes Nordal og bankamálaráðherra Matthías Bjarnason eiga rétti- lega að sæta ábyrgð og segja af sér, eða vera skilyrðislaust reknir. Egill Helgason: Það nær auðvitað engri átt að menn komist upp með að bkra hver á öðrum. Þarna er greini- lega brotalöm í löggjöfinni, að Seðlabankanum skyldi lást að auglýsa hæstu leyfilegu vexti. Mér finnst samt engin ástæða til að bankastjórarnir segi af sér og ekki þörf á annarri rannsókn, því eins og Steingrímur segir, þá hefur hún farið fram. Björn Níelsson: Það er greinilegt að þarna hafa átt sér stað mistök sem eru alfarið sök Seölabankans. Fyrst Jóhannes vill ekki viðurkenna þessi mistök og reynir að verja þau, á að reka hann. Margrét Sigurðardóttir. Þetta er algjörlega óhæft að ekki sé hægt að koma lögum yfir þessa menn sem stunda óprúttin viðskipti sem okurlána- starfsemi er og í mörgum tilfell- um notfæra sér neyð annarra. Mér finnst bankastjórarnir eigi ekki að segja af sér, enda óljóst hver á sök á þessum mistökum. Haukur Hafstað: Þetta sýnir að það er ekkert treystandi á Jóhannes Nordal og bankavaldið né löggjafar- valdið í þessu landi. Það er gjörsamlega óþolandi að ekki sé hægt að koma lögum yfir glæpamenn vegna mistaka þessara aðila. spurning vikunnac Hvað finnst þér um síðasta dóm I okurmálinu svokallaða og þau mistök sem Hæstiréttur telur háfa verið gerð og grundvallar sína niðurstöðu á?

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.