Dagur


Dagur - 13.01.1987, Qupperneq 3

Dagur - 13.01.1987, Qupperneq 3
13. janúar 1987 - DAGUR - 3 Kópasker: Endurbótum á rekstri haldið áfram - að sögn Eysteins Sigurðssonar nýráðins kaupféiagsstjóra Um áramót tók Eysteinn Sig- urðsson við starfi kaupfélags- stjóra KNÞ á Kópaskeri. Hann sagði starfið leggjast vel í sig þrátt fyrir nokkra rekstrar- erfiðleika, en stefnt væri að því að sigrast á þeim. Lausafjár- staðan hefur verið frekar slæm en Eysteinn ætlar að halda áfram með þær endurbætur á rekstri sem hófust á síðasta ári og eru farnar að skila sér. Eysteinn er fæddur í Reykja- vík en hóf störf hjá Kaupfélagi Langnesinga á Þórshöfn 1976 og vann þar uns hann flutti sig til Kaupfélags Norður-Þingeyinga á Kópaskeri síðastliðinn vetur. Um áramót tók hann síðan við starfi Péturs Þorgrímssonar sem kaupfélagsstjóri. „Þetta er að verða harðari rekstur. Kaupfélögin hafa verið að gefa eftir á mörgum vígstöðv- um. Þau hafa haft það að sjónar- miði að stuðla að eflingu byggðar en stundum hafa kaupfélögin þurft að borga fyrir það,“ sagði Eysteinn. Ekki sagðist hann búast við neinum nýjungum hjá kaupfélaginu heldur yrði reynt að hagræða þeim rekstri sem fyrir er og sagðist hann líta björtum aug- um á árið framundan. KNÞ er með útibú í Ásbyrgi og á Raufarhöfn. Að sögn Eysteins hefur reksturinn gengið ágætlega í Ásbyrgi, sérstaklega yfir sumar- mánuðina. Með vaxandi ferða- mannastraumi væri engin ástæða til að ætla annað en að útibúið þar myndi spjara sig vel. SS Slysavarnadeild kvenna á Akureyri afhenti um helgina Sjódeild Slysavarnafélags Islands á Akureyri talstöðvar að gjöf. Myndin er af fulltrúum beggja deildanna er afhending talstöðvanna hafði farið fram. Mynd: rm Hafspil hf. á Akureyri: Mikil aukning í sölu „Þetta gengur vel og við smíð- um fyrir sífelit stærri báta og skip. Mestur vandinn við svona rekstur er að við þurfum að eiga lager upp á 7-8 milljón- ir,“ sagði Elliði Hreinsson framkvæmdastjóri Hafspils hf. í samtali við Dag. Meðal skipa sem búin eru tækjum frá fyrir- tækinu eru Akureyrin og Margret. Hafspil hf. er eitt þeirra fyrir- tækja sem eflst hefur með aðstoð Iðnþróunarfélags Eyjafjarðar. Iðnþróunarfélagið á 20% í fyrir- tækinu, Samherji 20% og ein- staklingar afganginn. Fyrirtækið smíðar ýmiss konar vökvadrifin tæki svo sem spil og blakkir í báta og skip. Nú er verið að endurskipu- leggja reksturinn hjá fyrirtækinu þar sem húsnæðið er orðið nokk- uð lítið. Fyrirhugað er að byggja við húsnæðið á næstunni. Starfs- menn hjá fyrirtækinu eru 10. Mikil aukning hefur orðið í sölu hjá fyrirtækinu og sem dæmi um það nefndi Elliði að fyrir miðjan mars þyrftu þeir að vera búnir að afgreiða pantanir upp á tæplega 7 milljónir. Elliði sagði að sér virtist sem veltan á þessu ári yrði talsvert meiri en því síð- asta. Mest sala hefur verið í svo- kölluðum netaafdrögurum og sagði Elliði að þeim hefði verið mjög vel tekið. Helsti keppinaut- ur á þessum markaði er norskt fyrirtæki og sagði Elliði að miðað við gæði teldu þeir sig vera mjög vel samkeppnisfæra. ET Þingeyjarsýslur: Samstarfssamningur um iönþróunarmál Þann 1. janúar síðastliðinn tæki og einstaklinga innan við- um og fasteignagjöldum. gekk í gildi samstarfssamning- ur milli Iðnþróunarfélags Húsavíkur og Húsavikurkaup- staðar, Presthólahrcpps, Rauf- arhafnarhrepps, Þórshafnar- hrepps og Skútustaðahrepps. Samningurinn kveður m.a. á um að Iðnþróunarfélag Húsavík- ur taki að sér að vera ráðgefandi aðili fyrir sveitarstjórnir, fyrir- komahdi sveitarfélaga við hvers kyns athuganir á hugsanlegri at- vinnuuppbyggingu, veita aðstoð við stofnun nýrra fyrirtækja og vera starfandi fyrirtækjum innan handar við bættan rekstur og aukið hagræði. Árleg þóknun sveitarfélaganna fyrir þessa þjónustu skal vera 0,5% af aðstöðugjöldum, útsvör- Þorvaldur Vestmann Magnús- son formaður Atvinnumála- nefndar Húsavíkur sagði að starfsmaður Iðnþróunarfélagsins, Sigurbjörn Þorkelsson iðnráð- gjafi hefði haft mikið að gera. Af starfi hans væri sjáanlegur árang- ur sem mæla mætti í einhverjum fjölda nýrra ársstarfa á Húsavík. IM Bændur Norðurlandi! Óska eftir að kaupa góða bújörð. Lysthafendur leggi nafn og heimilisfang inn á afgreiðslu Dags fyrir 14. febrúar merkt „Bújörð ’87“. Utvegsmenn Norðurlandi Útvegsmannafélag Norðurlands boðartil fundar fimmtudaginn 15. janúar á Hótel KEA, Akureyri kl. 14.00. Stjórnin. Bíla- og bátasími Mobira er eitt vandaðasta merkið á markaðinum. ★ ísetning í bíla samdægurs. ★ ísetning og frágangur í báta og skip annast HJkF~TÆM€Nl SF~. (Birgir Aðalsteinsson og Sævar Örn Sigurðsson) Söluumboð á Norðurlandi. Möhhirsf. Draupnisgötu 1 Símar 21365 og 21715 CBÍi' Bronco Til afgreiðslu í febrúar. Leitið upplýsinga. Bílasalan hf. Strandgötu 53, sími 26301. Vegna nýrra samninga getum við nú boðið Ford Bronco II, árg. ’87 á ótrú- lega hagstæðu verði. Frá kr. 995.000 - og er m.a. eftirfar- andi búnaður innifalinn: ☆ Vél 2,9 L V-6 m/tölvustýrðri innspýtingu og kveikju, 140 hö. ☆ Aflhemlar, diskar að fram- an, skálar að aftan m/ABS læsivörn. ☆ 5 gíra skipting m/yfirgír (sjálfskipting fáanleg). ☆ Vökvastýri. ☆ Rafstýrð drifskipting, sjálf- virkar framdrifslokur. ☆ Hjólbarðar P195/75Rx15 m/grófu mynstri. ☆ Varahjólsfesting ásamt læsingu og hlíf. ☆ Krómað grill og krómaðir stuðarar. ☆ Útvarp AM/FM stereo ásamt klukku (digital), 4 hátölurum, minni og sjálf- leitun. ☆ Skyggðar rúður.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.