Dagur - 13.01.1987, Síða 11
13. ianúar 1987 - DAGUR - 11
Fólksfækkun á
landsbyggðinni
Auglýsing
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar var mannfjöldi á
landinu 1. desember sl.
243.698. Þar af voru karlar
122.438 en konur 121.260. Á
einu ári nemur fjölgunin 1948
manns eða 0,81%. Það er ör-
lítið meiri fjölgun en árið 1985
en mun minni en árin þar á
undan. Á árinu fæddust rúm-
lega 3800 börn lifandi og hafa
fæðingar ekki verið svo fáar á
landinu síðan árið 1947. Þó
hefur tala kvenna á barnsburð-
araldri ríflega tvöfaldast síðan
þá.
Þótt nákvæmar tölur liggi ekki
fyrir enn, virðist sem tala brott-
fluttra hafi orðið um 200 hærri en
tala aðfluttra en tala fæddra um
2100-2200 hærri en tala látinna.
Á þessum áratug hefur það
einkennt fólksfjölgunina að hún
hefur mestöll orðið á höfuðborg-
arsvæðinu. Á síðastliðnum þrem-
ur árum hefur fólki fjölgað meira
þar en sem nemur heildarfjölgun
landsmanna, svo bein fækkun
hefur orðið í öðrum landshlutum
samanlögðum. Heldur hefur hall-
að á ógæfuhliðina, því í þeim
fækkaði um 20 árið 1984, um 142
árið 1985 og um 321 árið 1986.
Mannfjöldi stóð í stað á Aust-
urlandi, á Vesturlandi og Suður-
landi fækkaði um 0,2%, á Vest-
fjörðum um 0,5%, á Norðurlandi
eystra um 0,6% og á Norðurlandi
vestra varð fækkunin mest eða
1,1%.
Mannfjöldi óx um 1,7% á höf-
uðborgarsvæðinu árið 1986 og
, Fiskeldisstöð
ísnó hf. stækkuð
um 0,4% á Suðurnesjum. í
Reykjavík fjölgaði fólki um
1,8%. Hefur hlutfallsleg fjölgun
ekki orðið meiri þar síðan 1962
og bein fjölgun ekki meiri síðan
1959.
Ef litið er á Norðurland vestra,
kemur í Ijós að eilítil fjölgun varð
á Sauðárkróki, um 0,8%. Á
Siglufirði og Hvammstanga stóð
mannfjöldi í stað. Hins vegar
fækkaði íbúum Blönduóss um
4,4%, á Skagaströnd varð fækk-
unin 1,4% og í Austur-Húna-
vatnssýslu 3,2%.
Á Norðurlandi eystra stóð
mannfjöldinn í stað á Ólafsfirði,
Dalvík og Akureyri en fækkaði
um 1% á Húsavík. í Suður-Þing-
eyjarsýslu fækkaði um 2,7% og
hefur nú fólki í Þingeyjarsýslum
og á Húsavík fækkað um rúmlega
300 á síðustu þremur árum. Ugg-
vænleg þróun það. BB.
um fasteignagjöld 1987
Álagningu fasteignagjalda á Akureyri 1987 er lok-
ið og verða gjaldseðlar sendir út næstu daga.
Fasteignagjöldin eiga að greiðast með fimm jöfn-
um greiðslum á gjalddögum 10. janúar, 10.
febrúar, 10. mars, 10. apríl og 10. maí.
Hafi gjöldin ekki verið greidd innan mánaðar frá
gjalddaga reiknast á þau dráttarvextir, nú 2,25%,
fyrir hvern mánuð eða brot úr mánuði frá gjald-
daga að telja.
Elli- og örorkulífeyrisþegum mun tilkynnt síðar
um lækkun eða niðurfellingu fasteignaskatts sbr.
ákvæði í 3. mgr. 5. gr. laga um tekjustofna sveit-
arfélaga og samþykkt bæjarstjórnar þar um.
Síðar í mánuðinum munu fáanlegir á pósthúsi og
bönkum sérprentaðir gíró-seðlar frá Akureyrar-
bæ til hægðarauka fyrir greiðendur fasteigna-
gjalda og útsvara.
Sérstök athygli er vakin á breyttum gjalddaga
og eindaga fasteignagjaldanna.
Bæjarskrifstofan er opin frá kl. 9.30-15.00 dag-
lega frá mánudegi til föstudags.
Akureyri, 12. janúar 1987.
Bæjarritari.
„Það er verið að vinna í þessu
núna, við verðum að bora eftir
heitu vatni því það er forsenda
þess að hægt sé að stækka
fiskeldisstöðina,“ sagði Páll
Gústafsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins Isnó hf., en fyrir-
tækið rekur fiskeldisstöð í
Kelduhverfi.
Að sögn Páls eru tvö hundruð
þúsund seiði í stöðinni. Áætlað
er að fjölga þeim upp í tvær millj-
ónir ef nægilegt heitt vatn fæst.
Þá verður óhjákvæmilega að
fjölga starfsmönnum ef af þessari
áætlun verður.
„Þetta kemur í ljós á næstu
vikum, við ætlum að vera búnir
að Ijúka öllum rannsóknum 1.
mars og í framhaldi af því verður
endanleg ákvörðun tekin. Þarna
eru góð skilyrði til fiskeldis frá
náttúrunnar hendi, eini óvissu-
þátturinn er heita vatnið. Vaxtar-
broddur fyrirtækisins er í stöð-
inni í Kelduhverfi, og nauðsyn-
legt verður að byggja við stöðina
ef til stækkunar kemur."
ísnó hf. rekur tvær fiskeldis-
stöðvar fyrir utan stöðina í
Kelduhverfi; í Vestmannaeyjum
og á Öxnalæk. EHB
Y
Hljómsveit
Steingríms Stefánssonar
____auglýsir:
Eigum lausar helgar
í janúar og febrúar.
Leikum almenna
dansmúsík, dinner-
músík og getum
séð um undirleik
fyrir almennan söng.
Upplýsingar gefur
Steingrímur, v.s. 21400,
h.s. 21560.
Bjarki h.s, 21081.
30 tonna námskeið
Námskeið sem veitir réttindi
til að stjórna bátum allt að 30
rúmlestum verður haldið, ef
næg þátttaka fæst. Nám-
skeiðið stendur í 10 vikur.
Kennt verður frá kl. 18.30-
20.30 þrjú kvöld í viku. Nám-
skeiðsgjald veröur kr. 15.000.
Öll námsgögn og kaffi innifal-
in.
Enska I
Byrjendaflokkur. Enginn er of
gamall til að byrja að læra.
Taktu þér tak og farðu rólega
af stað. Kennt verður einu
sinni í viku.
Námsgjald kr. 3.500.
Enska II
Framhaldsflokkur ætlaður
þeim, sem voru í ensku I fyrir
áramót eða öðrum með svip-
aða þekkingu. Kennt verður
tvisvar í viku.
Námsgjald kr. 6.000.
Alcu reyrar
Enska III
Fyrir þá, sem lokið hafa við
ensku II eða hafa ca. tveggja
ára enskunám að baki. Kennt
tvisvar í viku.
Námsgjald kr. 6.000.
Enska IV
Talflokkur, ætlaður þeim, sem
hafa þokkalegt vald á ensku
og vilja æfa sig í að tala
málið. Kennt verður tvisvar í
viku.
Námsgjald kr. 6.000.
Norska I
Byrjendaflokkur. Kennt verð-
ur einu sinni í viku.
Námsgjald kr. 3.500.
Norska II
Kennt tvisvar í viku. Þessi
flokkur er ætlaður þeim, sem
hafa lokið Norsku I.
Námsgjald kr. 3.500.
Sænska I
Byrjendaflokkur, ætlaður
þeim, sem ekki hafa lært
neina sænsku áður. Kennt
verður einu sinni í viku.
Námsgjald kr. 3.500.
Þýzka I
Byrjendaflokkur. Kennt verð-
ur einu sinni í viku.
Námsgjald kr. 3.500.
Þýzka II
Framhaldsflokkur fyrir þá,
sem voru í Þýzku I eða hafa
ca. eins vetrar þýskunám að
baki.
Námsgjald kr. 3.500.
Latína II
Framhaldsflokkur í latínu,
ætlaður þeim, sem vilja rifja
upp latínukunnáttu sína.
Kennt verður tvisvar í viku.
Námsgjald kr. 5.000.
Vélritun
Kennt verður á rafmagnsrit-
vélar, einu sinni í viku.
Námsgjald kr. 3.500.
Skattskil
Helgarnámskeið. Kennt á
laugardegi kl. 13-14.
Námsgjald kr. 1.000.
Réttritun
Kennt einu sinni í viku. Farið
yfir meginatriði íslenskrar
stafsetningar.
Námsgjald kr. 3.500.
Snyrtinámskeið
Málun og snyrting. Kennt
verður laugardag 20. janúar
kl. 13-16 og 27. janúar kl.
13-16, ef næg þátttaka verð-
ur í tvö námskeið.
Námsgjald kr. 1.000. Allt efni
innifalið.
Saumar f. byrjendur
Kennt verður einu sinni í viku
í 5 vikur (20 t.) Námsgjald kr.
3.500.
Hjálparflokkar
fyrir skólafólk
Stærðfræði fyrir
framhaldsskólanema
í þremurflokkum. Kenntverð-
ur tvisvar í viku - tvær
kennslustundir í senn.
Námsgjald kr. 6.000.
Danska f. 9. bekk
Kennt verður tvisvar í viku.
Námsgjald kr. 6.000.
Viðskiptaenska
Þetta er mjög vel sniðinn
flokkur fyrir alla þá, sem
stunda erlend viðskipti.
Vídeóefni. Kennt tvisvar í
viku.
Námsgjald kr. 9.000.
NÁMSFLOKKAR AKUREYRAR - KAUPANGI V/MÝRARVEG
INNRITUN ALLA ÞESSA VIKU KL 16-19 SÍMI 25413