Dagur - 13.01.1987, Side 12
KA-heimilið
Nudd - Sauna - Ljósabekkir - Nuddpottur.
Opnunartími: Mánud.-föstud. frá kl. 8,00-12,00 og 13,00-23,00
Laugard. og sunnud. kl. 10,00-19,00.
Tímapantanir í síma 23482.
Erum búin að færa lampana á betri
Þrotabú Kaupfélags Svalbarðseyrar:
Hei Ida rkröfur
293 milljónir!
Heildarkröfur í þrotabú Kaup-
félags Svalbarðseyrar nema
292.846.812 krónum og er um
að ræða 583 kröfur. Þar af
hafa verið samþykktar
276.162.500 krónur. Bústjóri
til bráðabirgða, Hafsteinn
Hafsteinsson hrl. hefur lagt
fram kröfuskrána en frestur til
að skila inn kröfum rann út 10.
desember.
Fyrsti skiptafujidur hefur verið
boðaður 15. janúar og rennur þar
með út frestur til ,að mótmæla
afstöðu bústjóra til einstakra
krafna. Gjaldþrotaskipti á félag-
inu.voru ákveðin 28. ágúst í sum-
Akureyrin:
„Agætis krapp“
- segir Þorsteinn Vilhelmsson
„Við hugsum til þeirra sem eru
í landi. Það er fullt af mönnum
sem hafa verið í sömu aðstöðu
og við, þeir hafa verið úti á sjó
þegar við höfum verið í landi.
Þetta skiptist svona í þessum
verkföllum,“ sagði Þorsteinn
Vilhelmsson skipstjóri á Akur-
eyrinni er bfaðið hafði sam-
band við hann á föstudag.
Skipið var þá statt á Vopna-
fjarðargrunni í blíðskaparveðri.
Að sögn Þorsteins gengu veið-
arnar nokkuð vel, „ágætis
kropp,“ og veður hafði verið gott
síðan þeir fóru út milli jóla og
nýárs, aðeins einn bræludagur.
Aðspurður kvaðst hann telja
verkfallið hafa gengið út í öfgar
þegar öllu púðrinu var eytt í það
að ráðast á Hafþór. „Svo eru það
þessi siglingaskip. Þeir telja sig
alla vera löglega og ekki að
brjóta neina samninga. Þetta er
vandamál hjá sjómannasam-
tökunum að koma því ekki í
samninga að þegar verkfall byrj-
ar þá séu allir í höfn,“ sagði Þor-
steinn Vilhelmsson að lokum. SS
ar eftir langvarandi erfiðleika og
óreiðu í rekstrinum.
Kröfur í þrotabúið eru þrenns
konar. Almennar kröfur nema
rúmlega 166 milljónum króna.
Kröfur utan skuldaraðar með veð
í eignum eru samtals tæplega 113
milljónir. Loks eru svo forgangs-
kröfur upp á samtals 13,3 millj-
ónir. Þar er fyrst og fremst um að
ræða laun og orlofsgreiðslur.
Stærsti skuldaraðili félagsins er
Samvinnubanki íslands en kröfur
hans nema samtals um 95 millj-
ónum króna. Þar af eru almennar
kröfur 24.4 milljónir en afgang-
urinn kröfur með veð í eignum.
Kröfur ríkissjóðs íslands eru
samtals um 32 milljónir.
Áburðarverksmiðja ríkisins á
kröfu upp á tæpar 22 milljónir og
krafa Sambands íslenskra sam-
vinnufélaga nemur um 23 millj-
ónum. Iðnaðarbankinn gerir
einnig kröfu um rúmar 13 millj-
ónir í búinu og Byggðastofnun
telur sig eiga inni tæplega 10
milljónir.
Alls eru um 150 kröfur frá fyrr-
verandi starfsmönnum félagsins
vegna ógreiddra launa, orlofs og
skyldusparnaðar. ET/IM ;
31 við vinnu.
Mynd: RÞB
„Getur orðið heil-
mikið fyrirtæki
- segir Þorvaldur Vestmann Magnússon
um framleiðslu á beitningarvél á Húsavík
Aö undanfömu hefur Atvinnu-
málanefnd Húsavíkur verið í
sambandi viö norska aðila sem
undanfarin 5-6 ár hafa verið að
þróa hugmynd að línubeitning-
arvél. Málið er nú komið á það
stig að fljótlega verður hægt að
fara að framleiða vélina sem
söluvoru og hefur atvinnu-
málanefnd auglýst eftir aðilum
sem áhuga hafa á þessu verk-
efni.
„Vonandi fer að komast skrið-
ur á þetta núna þegar búið er að
leysa öll tæknileg vandamál,"
sagði Þorvaldur Vestmann
Magnússon formaður atvinnu-
málanefndar. „Þetta gæti orðið
heilmikið fyrirtæki, þó er verk-
efnið þess eðlis að ég hugsa að
það muni þróast hægt og bítandi.
Vél þessi tekur fram öllum öðr-
um vélum sem á markaði eru,
þær hafa ekki náð neinni teljandi
útbreiðslu því mönnum hefur
ekki tekist að leysa viss vanda-
mál. Norsku aðilarnir sem við
Skákmót á Dalvík:
Olafur fékk 15 þúsund krónur
Ólafur Kristjánsson frá Akur-
eyri varð 15 þúsund krónum
ríkari er hann bar sigur úr být-
um á nýársskákmóti Skákfé-
lags Dalvíkur sem haldið var
um helgina.
Mót þetta var afar veglegt og
glæsileg peningaverðlaun í boði
sem’ mun vera nýlunda á skák-
mótum norðanlands. Keppendur
voru 58 talsins og komu frá ýms-
um stöðum við Eyjafjörð, Rauf-
arhöfn, Siglufirði og Sauðár-
króki.
Ólafur hlaut 15 vinninga af 18
mögulegum. Annar varð Gylfi
Þórhallsson Akureyri með 13,5
vinninga og hlaut hann 12 þúsund
krónur fyrir. Þriðji varð Jón
Garðar Viðarsson Akureyri með
sama vinningafjölda en færri stig
og hlaut hann 8 þúsund krónur.
Bogi Páisson Akureyri fékk 6
þúsund krónur fyrir 12,5 vinn-
inga og 4. sætið. Páll A. Jónsson
Siglufirði hlaut 12 vinninga og 4
þúsund krónur og Arnar Þor-
steinsson Akureyri 2 þúsund
krónur fyrir 12 vinninga og 6.
sæti.
Bogi Pálsson Akureyri fékk
sérstök unglingaverðlaun, 2 þús-
und krónur og náði sér því í 8
þúsund krónur alls á mótinu.
Aðrir unglingar sem fengu verð-
laun voru Rúnar Sigurpálsson og
Tómas Hermannsson frá Akur-
eyri og Ásgrímur Angantýsson
frá Raufarhöfn. gk-.
erum í sambandi við hafa leyst
þessi meginvandamál og vélin er
hönnuð þannig að hún tekur
minna pláss en aðrar véiar og
hægt verður að nota hana um
borð í tiltölulega litlum bátum.“
í Noregi verða framleiddar
nokkrar vélar til reynslu og fyrir-
hugað er að ein þeirra komi til
Húsavíkur í sumar. Atvinnu-
málanefnd hefur látið kanna
hugsanlegan markað fyrir vélina
og athugað hagkvæmni og dæmið
virðist líta þannig út að ástæða sé
til að skoða málið í fullri alvöru.
Þorvaldur segir að fyrst og fremst
sé verið að hugsa um framleiðslu
hér fyrir íslenskan markað en ef
vel gangi og samkomulag náist
við norsku aðilana megi einnig
hugsa um að framleiða vélina til
útflutnings.
Sumir hlutar vélarinnar eru
flóknari í smíði en aðrir og verið
getur að smíði þeirra verði boðin
út bæði af norsku og íslensku
framleiðendunum.
Nokkrir aðilar hafa haft sam-
band við atvinnumálanefnd og
sýnt áhuga á að framleiða vélina
og sagði Þorvaldur að eins vel
yrði að standa að þessu máli og
hægt væri. IM