Dagur


Dagur - 11.02.1987, Qupperneq 3

Dagur - 11.02.1987, Qupperneq 3
11. febrúar 1987 - DAGUR - 3 Húnabraut 13, þar sem Dagur er nú til húsa. Blönduós: Dagur flutti í nýtt húsnæði Skrifstofa Dags á Blönduósi er en var áður í húsi númer 29 við flutt að Húnabraut 13 þar í bæ sömu götu. Jörundur á Hofsósi Nýlega voru hafnar æfingar hjá Leikfélagi Hofsóss á söng- og gamanleiknum: „Þið munið hann Jörund“ eftir Jónas Noröurland vestra: Framboös- listi krata Gengið hefur verið frá fram- boðslista Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæmi vestra. Efstu sæti listans eru þannig skipuð: 1. Jón Sæmundur Sigurjónsson Siglufirði, 2. Birgir Dýrfjörð Kópavogi, 3. Helga Hannesdóttir Sauðárkróki, 4. Þorvaldur Skaftason Skagaströnd, 5. Agnes Gamalíelsdóttir Hofsósi, 6. Friðrik Friðriksson Hvamms- tanga, 7. Sigurlaug Ragnarsdóttir Blönduósi. Árnason undir leikstjórn Hilmis Jóhannessonar. Um 20 manns taka þátt í æflngum og undirbúningi sýninga í félags- heimilinu Höfðaborg. Að sögn Gísla Kristjánssonar formanns leikfélagsins er stefnt að því að sýningar geti hafist tímanlega í mars. Sagði hann að ekki stæði til að sýna leikinn ann- ars staðar, því húsinu verður breytt í krá þar sem leikurinn gerist og fleiri leikmunir verða í kringum þessa sýningu en yfir- leitt við leiksýningar. Gísli kvað þá í leikfélaginu þess í stað ætla að leggja áherslu á að laða skóla- fólk og vinnuhópa til sýninga. Nýlega fór fram hið árlega þorrablót sem hrepparnir 3, Hofsós-, Hofs- og Fellshreppur standa fyrir. Blótið var mjög fjöl- mennt að vanda og sagði Gísli það var mjög algengt að burtflutt fólk kæmi á það og hjá mörgum væri þetta hálfgert ættarmót. Dagur opnaði skrifstofu á Blönduósi snemma síðastliðið sumar, í húsi Trésmiðjunnar Stíganda. Þegar svo varð ljóst að Alþýðubankinn ætlaði að kaupa hús Pólarprjóns hf., Húnabraut 13, var strax kannaður möguleiki þess að fá þar stærra og varan- legra húsnæði fyrir blaðið. í janúar var svo undirritaður leigu- samningur um leigu blaðsins á 30 fermetra skrifstofuhúsnæði á götuhæð hússins, en auk þess er þar til húsa afgreiðsla Alþýðu- bankans og verslunin Búðin, og stutt mun í að þar muni einnig opnuð hárgreiðslustofa. Gengi Dags hefur verulega aukist í Húnavatnssýslum síðan skrifstofa blaðsins á Blönduósi var opnuð og ráðinn var blaða- maður með aðsetur þar, sala blaðsins á svæðinu hefur marg- faldast bæði í áskrift og lausa- sölu. Blaðið vill þakka Húnvetn- ingum góðar viðtökur og væntir góðs af samstarfi við þá í framtíð- inni. G.Kr. SPENNUM^ BELTIN • sjálfra / 0A\ okkar 1 ) vegna! ÆjBSiá -þá Hvítasunnusöfnuðurinn á Akureyri: Hvítu heiisuskómir komnir aftur. Leðurjakkar herra, 4 gerðir. Verð frá kr. 8.575.- Dömunærbuxur. Stærðir S-M-L. Verð kr. 60.- Herranærbuxur. 3 stk. í pakka. Verð kr. 298.- Útihurðir, gluggar og gluggagrindur Framleiðum útihurðir, glugga og gluggagrinduraf mismunandi gerðum, kaupandi getur valið um ýmsar viðartegundir, svo sem teak, oregon pine, mahogni, furuo.fi. Gluggaviðgerðir Allar hurðir og gluggagrindur eru með innfræst- um þéttilista. Sérsmíðum eftir ósk kaupanda. Gerum verðtilboð. Bílskúrshurðir Bilskúrshurðajárn Úr —~1 TRÉSMIÐJAN BDRKURf Fjölnisgötu 1a Akureyri Sími 96-21909 Fer fram á bæjar- framlag til bygg- ingar leikskóla Hvítasunnusöfnuðurinn á Akureyri hefur undanfarin ár stadiö í byggingaframkvæmd- um á lóð vestan Veganestis í Glerárhverfi. Þar er söfnuður- inn búinn að byggja hús fyrir leikskóla sem mun rúma 68 börn. Nýlega barst beiðni til Akureyrarbæjar þess efnis að bærinn legði fram fjármuni til að hægt sé að Ijúka bygging- unni fyrir 1. september á þessu ári. Vörður Traustason hjá Hvíta- sunnusöfnuðinum, sagði: „Pað eru um 300 börn sem bíða eftir leikskólaplássi á Akureyri og þessi leikskóli sem við erum með 1 byggingu mun því að hluta til leysa brýna þörf. Framkvæmd- irnar hafa til þessa alfarið verið greiddar af safnaðarmeðlimum og núna er húsið tilbúið undir tréverk. Okkur vantar fjórar og hálfa milljón króna til að ljúka þessu.“ Það kom einnig fram hjá Verði að leikskólinn verður opinn fyrir öll börn, ekki ein- göngu börn safnaðarfólks. Pórarinn Sveinsson, sem á sæti í félagsmálaráði, sagði að ekki hefði verið tekin nein ákvörðun af bæjarins hendi um fjárframlög til þessa en hann taldi alls ekki útilokað að af því gæti orðið. Þó væri verið að fara niður í saum- ana á samstarfsreglum, sem hvítasunnumenn hefðu sett fram á sínum tíma, varðandi samstarf bæjarins og safnaðarins í þessum rekstri. Að því loknu yrði ákvörðun væntanlega tekin. EHB VIÐ HÖLDUM FUNDI Laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00 í samkomuhúsinu Grund, Svarfaðardal. Kaffiveitingar Sunnudaginn 15. febrúar kl. 21.00 í Ðarnaskóla Bárðdæla. Kaffiveitingar FJÖLMENNUM Sérframboð í Norðurlandskjördæmi eystra.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.