Dagur - 11.02.1987, Blaðsíða 6

Dagur - 11.02.1987, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 11. febrúar 1987 Pólarprjón hf. á Blönduósi var stofnað 1971 og hefur því verið stór þáttur í atvinnulífí Blöndósinga í nær 16 ár. En flestum er kunnugt um erfíðleikana sem steðjað hafa að fyrirtækjum í þessum iðnaði á undanförnum árum. Pólarprjón hf. virðist hafa brugðist við þeim vanda á réttan hátt, alla vega er bjartara framundan hjá fyrirtæk- inu nú, en verið hefur í langan tíma. Baldur Valgeirsson framkvæmdastjóri Pólarprjóns hf. segir Baldur Valgeirsson framkvæmdastjóri Pólarprjóns Baldur Valgeirsson er fram- kvæmdastjóri Pólarprjóns hf., hann hóf fyrst störf hjá fyrirtæk- inu 1972 og var þar til ársins 1982 en byrjaði aftur í hálfu starfi um áramótin ’85 og síðan um mitt það ár hefur Baldur svo verið í fullu starfi, og kannski vel það, sem framkvæmdastjóri Pólar- prjóns hf. Þrátt fyrir miklar annir gaf Baldur sér tíma til að rabba um fyrirtæki í ullariðnaði, og þá auð- vitað sérstaklega Pólarprjón, við blaðamann Dags fyrir skömmu. - Nú er það svo að í þessum iðnaði hefur gengið á ýmsu og það hafa komið slík hallæris- tímabil að mörg fyrirtækjanna hafa riðað og sum til falls. Um tíma munaði ekki miklu með Pól- arprjón, en ykkur tókst að bjargast, eru .enn þeir erfiðleikar í rekstrinum sem þá voru? „Það má kannski segja að Voðirnar pressaðar. þetta hafi hangið svona á horrim- inni í fyrra og ’85 út af ákveðnu máli sem er ekki rétt að vera að tala um í blaðaviðtali, en þetta hangir ennþá yfir okkur og fyrir- tækið á í ákveðnum erfiðleikum út af því máli. Síðan hafa þessi tvö undanfarin ár verið erfið fyrir það að það hefur verið samdrátt- ur í sölu, og sumir segja ekki nægjanleg aukning, þetta tók svo verulegan kipp seinnihluta ársins ’86 og þannig er það enn.“ - Er sem sagt allt á uppleið núna? „Ekki á uppleið kannski, en það er mikið að gera og það er það sem skiptir mestu máli. Verðlagning á þessu er léleg mið- að við þær forsendur sem við erum með í framleiðslu, þó svo að við borgum lág laun þá er launaliðurinn of hár í okkar framleiðslu. Það má kannski segja að það sem helst gerir að við náum ekki því verði sem ver- ið er að tala um er að þetta eru litlar pantanir, ekki nógu mikið magn í einu.“ - Störf á sauma- og prjóna- stofum eru Iáglaunastörf, þarf það að vera svo? Er ekki mögu- Ieiki að það gæti breyst t.d. ef framleiðslan frá þessum stöðum yrði ekki lengur miðuð við þarfir afmarkaðs hóps, heldur yrði farið að selja hana í almennum fata- verslunum þannig að veltan á vörunni frá ykkur yrði hraðari með stækkuðum kaupendahópi? „Það er ég ekki viss um, vegna þess að markaðurinn er allt of lítill. Þetta er enginn markaður hér, það eru margir um hituna og allir að reyna að komast á innan- landsmarkaðinn og þar er verðstríð, kannski, það er alveg til í því að menn eru með lægra verð á innanlandsmarkaði en ætti að vera. Þá er ég að tala um þær verslanir sem fólk kallar minja- gripaverslanir, við erum að selja vöruna á verksmiðjuverði þang- að og það er náttúrlega tómt rugl. Það er bara búið að koma þessu á og menn eru að selja vörurnar sínar þangað á verði sem er svona 30 prósent undir því sem þeir ættu að gera. Með þessu eru fyrirtækin náttúrlega að eyði- leggja fyrir sjálfum sér. Við getum tekið annað dæmi. Á undanförnum árum hafa saumastofurnar verið með sína eigin sölu, ýmist á saumastofunni eða í nágrenni við hana, og þar er verðið allt of lágt. Verðið er lægra en hjá þeim verslunum sem hafa verið einna lengst með þess- ar vörur í Reykjavík og það gerir það að verkum að fólk fer framhjá þeim af því að það veit að víða úti á landi er varan ódýr- ari. Að vísu er stundum um að ræða vörur sem verið er að afsetja eða eiga að vera á lægra verði, en hitt stendur engu að síður.“ - Mér heyrist af þessu að samstaða fyrirtækja í ullariðnað-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.