Dagur - 13.02.1987, Síða 3
13. febrúar 1987 - DAGUR - 3
Vörukynning
á Kotasælu
verður í Kjörmarkaðnum Hrísalundi
föstudaginn 13. febrúar frá kl. 15-18.
Kymist möguleikum gómsætrar
megrunarfæðu.
Mjólkursamlag KEA
Akureyri Simi 96-21400
Mjólkurframleiðendur
Til sölu eru tveir Wedholmes mjólkurtankar 750 I og
900 I í góöu lagi. Upplýsingar fást hjá Guðmundi eða
Kristjáni, Mjólkursamlagi KEA, sími 21400 á daginn
eða í símum 24641 og 22112 á kvöldin.
Skíðaskólinn
Hlíðarfjalli
Skíðanámskeið hefjast
aftur nk. mánudag.
Innritun og upplýsingar á Skiðastöðum sími 22280 og 22930
Nemendur í Hrafnagilsskóla fóru í gær í „áheitaboðhlaup“. Hlaupið var frá skólanum fram fjörðinn og síðan út aft-
ur að austanverðu, yfir nýja Leiruveginn og endaði aftur viðskólann. AUs er þetta 51,4 km vegalengd. Krakkarnir
söfnuðu áheitum í ferðasjóð og munu hafa haft um 70þúsund krónur upp úr krafsinu. Myndin er tekin af hluta
hópsins er hlaupið var að hefjast í gærmorgun. Mynd: Rt>B
, Golfklúbbur Akureyrar:
Oskar eftir stækkun á
golfvallarsvæðinu
- fyrir 9 holu golfvöll
Golfklúbbur Akureyrar hefur
sótt um stækkun á golfvallar-
svæði sínu og í framhaldi af því
hefur bæjarráð lagt til að sagt
verði upp tveimur erfðafestu-
löndum. Þar er um mikið
landsvæði að ræða, samtals 6,7
hektara. Erfðafestuhafi er
Magnþór Jóhannsson. Upp-
sögnin er miðuð við 1. febrúar
1988.
Pá er einnig lagt til að sagt
verði upp bráðabirgðaleigu á
landi er Sigurjón E. Sigurgeirs-
son hefur á leigu, þannig að hér
er um mikið flæmi að ræða þegar
allt er talið. Að sögn Árna Jóns-
sonar framkvæmdastjóra Golf-
klúbbs Akureyrar er þetta svæði
innan vegarins sem liggur að rétt-
inni sunnan við völlinn. „Þetta er
það svæði sem var skipulagt fyrir
Norrænu félögin:
Nordjobb"
vinsælt
Aðalfundur Blönduóssdeildar
Norræna félagsins var haldinn
síðastliðinn mánudag, Sighvat-
ur Björgvinsson framkvæmda-
stjóri Norræna félagsins mætti
á fundinn og ræddi um starf-
semi félagsins og svaraði fyrir-
spurnum.
í máli Sighvats kom fram að
um átta þúsund félagar eru í
félaginu, og er þá átt við þá sem
greitt hafa félagsgjöld á síðustu
tveim árum. Fram kom að fram-
lög til starfseminnar eru mjög
misjöfn milli landa, í Finnlandi er
framlag ríkisins um 2400 krónur
á félagsmann og í Svíþjóð um 990
krónur en hér á landi er framlag-
ið nálægt 11 krónum á félags-
mann. Árgjöld til félagsins eru
400 krónur en aðaltekjur sínar
sagði Sighvatur félagið hafa af
ferðaþjónustu. Fram kom að
þrátt fyrir aukna samkeppni hef-
ur Norræna félaginu tekist að
útvega félögum sínum verulega
góð kjör á ferðum til útlanda,
bæði til Norðurlanda og annað.
Sem dæmi um sérkjör félaga í
Norræna félaginu má nefna að
afsláttur félagsmanna með Norr-
öna síðastliðið sumar var 25% og
upp í 50% í ákveðnar ferðir.
Athyglisverðasti þátturinn í
starfi norrænu félaganna á síð-
asta ári er án efa Nordjobb, en
það er samstarf félaganna um að
útvega ungmennum á aldrinum
18 til 26 ára atvinnu á hinum
Norðurlöndunum. Nokkuð vel
virðist hafa til tekist þrátt fyrir að
auðvitað hafi komið í ljós gallar
sem nauðsynlegt er að sniðnir
verði af. 117 ungmenni fóru héð-
an til starfa á hinum Norður-
löndunum og hingað komu 70,
sem dreifðust um landið þannig
að 30 voru á Reykjavíkursvæðinu
en 40 úti á landi.
í ljós kom að erfiðust viður-
eignar í þessu samstarfi voru
„kerfin" sem ólm vildu fá sinn
skerf af tekjum ungmennanna í
formi skatta o.fl. Þennan galla
tókst íslendingum einum að
sníða af áður en til ráðninganna
kom en aftur á móti lentu íslend-
ingar sem störfuðu erlendis í því
að þurfa að greiða gjöld sem erf-
itt getur orðið að fá endurgreidd.
Það kom fram í máli Sighvats að
Svíar og Finnar telja sig vera
búna að laga þennan galla, og
vonandi tekst hinum þjóðunum
það áður en langt um líður.
G.Kr.
golfvöll samkvæmt aðalskipulagi
en við höfum ekki óskað eftir því
að fá það fyrr en núna,“ sagði
Árni.
Hann sagði þetta svæði hugsað
fyrir nýjan völl með 9 holum.
„Fjölgunin í þessu hefur orðið
svo mikil að það er fyrirsjáanlegt
að við verðum komnir í vandræði
eftir tvö ár. Völlurinn er orðinn
of lítill þegar meðlimatalan er
komin í 600. Nú er hún komin á
fimmta hundrað og hefur tvöfald-
ast á síðustu tveimur árum,“
sagði Árni að lokum. SS
Flugleiða
s