Dagur - 13.02.1987, Blaðsíða 5

Dagur - 13.02.1987, Blaðsíða 5
13. febrúar 1987 - DAGUR - 5 Mér líður - Sr. Pálmi Matthíasson á línunni - Pálmi Mattíasson komdu sæll og blessaður. - Komdu sæll. - Pað er stór dagur hjá þér og þínum sóknarbörnum á sunnudag, vígsla Glerárkirkju. - Já, og þessi dagur leggst mjög vel í mig, þetta er svo stór- kostlegur áfangi og mjög lang- þráður. Annars má ég ekki vera vanþakklátur og tala um lang- áfanga, það hafa margir prestar orðið að bíða lengur en ég og það má segja að okkar hafi gengið fyrir sig á hljóðhraða miðað við kirkjubyggingar almennt. - Hvað veldur því? - Fyrst og fremst áhugi fólks- ins sem í kringum þetta stendur. Ég hef aldrei fundið annað en að hver og einn íbúi hér í sókninni hafi viljað leggja þessu máli lið á einhvern hátt. Hver einasti maður sem beðinn hefur verið um eitthvert viðvik hefur sagt já og jafnframt beðið um að ef hann gæti gert eitthvað meira þá væri það sjálfsagt. Þetta er líka í fyrsta skipti sem „Porpararnir“ standa saman að einhverju stóru átaki. - Hvaða breytingar hefur til- koma kirkjubyggingarinnar íför með sér fyrir safnaðarstarfið? - Geysilega miklar. Ég get nefnt að nú losnar maður við að bera 200-300 stóla á hverjum sunnudegi eins og verið hefur en það hefur mátt gera þegar mess- að hefur verið í Glerárskóla. Nemendur í 9. bekk þar hafa aðstoðað dyggilega við þetta. Nú er hægt að taka kirkjulegar athafnir þarna inn og við erum ekki lengur öðrum háðir með húsnæði fyrir þær. Petta breytir miklu varðandi allt félagastarf í sókninni. Krökkunum hefur t.d. fundist leiðinlegt að sækja æsku- lýðsfundi í skólanum þar sem þau eru allan daginn og einnig í íþróttum og á opnum húsum og þess háttar. - Er æskulýðsfélagið öflugt? - Það gengur dálítið skrykkjótt. Félagið heitir Gler- brot og var þannig tilkomið að í því væri brot af þeim sem búa í Glerárprestakalli og ef það væri öflugt myndi stirna af því eins og litlu glerbroti sem ljós fellur á. Krakkarnir fundu sjálfir þetta nafn. - Hvar hafa kirkjulegar athafnir í sókninni farið fram? - Þær hafa mikið verið í Lög- mannshlíð og í Akureyrarkirkju þegar við höfum getað fengið þar inni. Ég reikna með að um 70% af skírnum í prestakallinu hafi farið fram í heimahúsum og giftingar hafa verið algengar í heimahúsum, bæði heima hjá mér og víða um bæinn. Þetta hefur allt verið vegna þess að við höfum ekki haft neitt hús. - Pað eru fleiri félög starf- andi í sókninni en æskulýðsfé- lagið. - Já. Kirkjukórinn er öflugur þrátt fyrir að hann hafi verið á hrakhólum með húsnæði þrátt fyrir að forráðamenn í Glerár- skóla hafi reynst okkur afskap- lega vel. Kvenfélagið er öflugt og konurnar eru betri en engar við að styrkja okkur. - Nú horfir þú bjartsýnn fram á veginn. - Já, svo sannarlega. Mér líð- ur stórkostlega og hlakka mikið til. - Pakka þér fyrir spjallið Pálmi. - Þakka þér sömuleiðis. gk-. Blönduós: Félagsmiðstöð senn í notkun Nú hillir undir að langþráður draumur unglinga, og reyndar margra annarra, um félagsmið- stöð á Blönduósi rætist. Flest bendir nú til að félagsmiðstöð- in verði að fullu tekin í notkun næsta haust, en að hluta nú á næstu dögum. Félagsaðstaðan mun verða á efri hæð félagsheimilisins og hef- ur það húsnæði verið tekið á leigu til sex ára. Þar eru nú til húsa skrifstofur Búnaðarsam- bands Austur-Húnavatnssýslu en leigusamningur þess rennur út í , apríl næstkomandi. Stefnt er að því að einhver starfsemi geti haf- ist þarna sem fyrst og að útboð á framkvæmdum fari fram í kring- um páska, sem þýðir að ekki kæmi til framkvæmda fyrr en verulega væri liðið á vorið og skólum væri um það bil að Ijúka. Uppi eru hugmyndir um að unglingar á Blönduósi vinni ein- hvern hluta þess starfs sem fram- undan er í húsnæðinu, en of fljótt er að segja nánar um það. Löngu er ljóst að enginn möguleiki er að koma fyrir slíkri aðstöðu í skólanum því plássleysi er mikið þar og er horft með vonaraugum til byggingar nýs íþróttahúss til að hægt verði að leysa brýnasta vandann. Keypt hafa verið vönd- uð hljómflutningstæki og verður þeim komið fyrir á staðnum strax og lokið verður við aðstöðu fyrir þau. Gróflega er áætlað að kostnað- ur við félagsaðstöðuna verði um tvær milljónir króna. G.Kr. Félagsfundur Styrktarfélag vangefinna boöar til félagsfundar í Iðjulundi mánudaginn 16. febrúar kl. 20.30. Fundarefni: Trausti Ólafsson, skólastjóri, fjallar um innra starf Þjálfunarskóla ríkísins á Akureyri. Félagar fjölmenniö. Stjórnin. Bjóðum upp á glæsilega aðstöðu fyrir funda- og ráðstefnuhald. Veislur og aðra mannfagnaði svo sem: Árshátíðir, þorrablót, erfidrykkjur, brúðkaup og fermingaveislur. Allar nánari upplýsingar hjá veitingastjóra í síma 22200. ★ ★ Laugardaginn 14. febrúar: Lokað vegna einkasamkvæmis. Útihurðir, gluggar og gluggagrindur Framleiðum útihurðir, glugga oggluggagrinduraf mismunandi gerðum, kaupandi getur valið um ýmsar viðartegundir, svo sem teak, oregon pine, mahogni, furuo.fi Gluggaviðgerðir Allar hurðir og gluggagrindur eru með innfræst- um þéttilista. Sérsmíðum eftir ósk kaupanda. Gerum verðtilboð. Bílskúrshurðir Bilskúrshurðajárn ___ITRÉSMIDJAN BDRKURf Fjölnisgötu 1a Akureyri Sími 96-21909

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.