Dagur - 13.02.1987, Síða 7

Dagur - 13.02.1987, Síða 7
13. febrúar 1987 - DAGUR - 7 -af eriendum vettvangi \m þannig með arkitekta að þeir eru ekki neitt sérhæfðir þó þeir hafi tekið einhver verkefni j skóla, það eru yfirleitt styttri verkefni og menn eru ekki neinir sér- fræðingar þegar þeir koma úr skólunum. Þar læra þeir fyrst og fremst hvernig þeir geta sett sig inn í þau verkefni sem þeir fá og hvernig þeir geta unnið úr mögu- leikunum. Ég tók mér nokkurn tíma til að yfirvega þessa bygg- ingu og yddaði ekki einu sinni blýant til að byrja að teikna þetta. Mér datt ekki í hug að setja neitt á blað fyrr en ég var búinn að athuga kirkjubyggingar og skoða þetta verkefni frá ýms- um hliðum.“ - Hefur fólk starfað af áhuga við bygginguna? „Já þetta hefur verið einvala- lið allt saman. Það má segja að maður hafi oft lent í tímapressu við þetta verkefni, t.d. voru ákvarðanir um að steypa upp kirkjuskipið og tuminn með ákaf- lega litlum fyrirvara. En ég er ánægður með þetta þegar á heild- ina er lítið.“ Séra Pálmi Matthíasson: - Hvernig líður þér nú þegar þessum áfanga hefur verið náð? það að koma til starfa í presta- kalli, þar sem aðstæður voru eins og hér, væri eins og að ráða sig sem bílstjóra á flutningabíl til Reykjavíkur og hafa ekkert nema hjólin." - Er þessi kirkja eitthvað frá- brugðin öðrum kirkjum norðan- lands? „Já, að því leyti að hérna er safnaðaraðstaða byggð upp samhliða kirkjubyggingunni sjálfri. Aðrar kirkjur hafa fyrst og fremst verið byggðar sem kirkjur en hér er safnaðarheimili og fólk getur komið hingað og fundist það eiga heima hér. Það er hægt að nota þá aðstöðu sem hér býðst til mannfagnaða af ýmsu tagi. Það er fólkið í söfn- uðinum sem á húsið og við viljum svo sannarlega að það verði notað. Hér verður ekki aðeins messað heldur verður húsið líka notað á virkum dögum.“ - Hvernig hefur samstarfið verið við arkitektinn? „Við höfum átt mjög gott sam- starf við Svan Eiríksson, arki- tekt. Það er auðvitað alltaf svo að arkitektar hafa sínar skoðanir og stundum eru menn ekki sammála en samstarfið hefur gengið vel og hann hefur unnið hér mjög gott verk. Kirkjan er ekki bara falleg Glerárkirkja er byggð með tvöfalt hlutverk í huga - sem safnaðarheimili og Guðshús. „Þetta er stórkostleg tilfinning og ég er búinn að bíða eftir þessu síðan ég kom hingað fyrst. Mig óraði aldrei fyrir því að þetta myndi klárast svona fljótt vegna þess að kirkjur á íslandi hafa ver- ið mun lengur í byggingu en þessi. Með samstöðu, sem hefur verið um þetta hús, og frábæru framlagi sóknarbarna, hefur þetta tekist. Ég get nefnt sem dæmi að bara það verk sem hefur verið unnið síðan um jól er hrein- asta þrekvirki. Ég stend stundum agndofa þegar ég horfi á þetta fólk sem kemur og vinnur hér og vinnur og er alltaf fúst til starfa, hvaða viðvik sem maður nefnir. Ég er Guði þakklátur fyrir að eiga slíka höfðingja í sókninni.“ - Hvernig heldur þú að starfið muniganga hérna? „Starfið mun ganga miklu bet- ur með tilkomu þessarar nýju kirkju en það hefur gengið allvel, þrátt fyrir bágbornar aðstæður. Það hefur stundum verið sagt að heldur hefur öll byggingin gífur- legt notagildi. Það hafa allir stað- ið sig vel, bæði verktakar, sjálf- boðaliðar og aðrir." - Finnst þér að vel hafi tekist að samræma fallegt útlit og nota- gildi? „Já, mér finnst það. Það gerir að vísu alltaf vart við sig í útlitinu þegar safnaðarheimili er byggt við kirkjuna og það sér fólk t.d. á þessu húsi. Það var talað um það að turn þyrfti að vera á kirkjunni og hann var byggður; hann skag- ar um 30 metra upp í loftið. Stað- arvalið hér er líka merkilegt því það var alltaf bent á aðra lóð lengi vel. Sjómenn hafa talað um hversu fallega kirkjan heilsi þeg- ar þeir sigla inn fjörðinn. Mér finnst það hafa verið handleiðsla að þessi staður varð fyrir valinu og það hafa margir nefnt að kirkjan sést frá næstum öllum bænum án þess að hún sé úr al- faraleið. Ég og söfnuðurinn erum ánægðir með kirkjuna í alla staði." EHB Vegna þrengsla bíður gjafalist- inn birtingar fram yfir helgi. Hvölum er venjulega skipt í tvo hópa eftir því hvort þeir hafa tennur eða skíði, þ.e.a.s. þunnar hornplötur, sem hanga niður úr tannstæðinu í efra skolti. Svo mikið vita menn, að skíðishval- irnir fylla ginið af sjó og pressa hanii aftur út á milli skfðanna. Fiskur eða aðrar ætilegar lífver- ur, sem verið hafa í sjónum sitja þá eftir. En það vefst ennþá fyrir vísindamönnum að fá það á hreint, hvernig tannhvalategund- irnar, eitthvað 67 talsins, fara að því að verða sér úti um hádegis- matinn. Búrhvalurinn lifir til dæmis að ntiklu leyti á kolkrabba. Þeir kol- krabbar, sem skoðaðir hafa verið í magainnihaldi þessara risadýra, bera þess samt engin merki að hafa verið tuggðir. Hvernig fer þetta þunga dýr að því að koma svo viðbragðsfljótri bráð sinni að óvörum? Hvalvísindamenn standa líka ráðþrota, þegar um karldýr ná- hvelisins er að ræða. Einhvern veginn tekst því að gleypa ríga- þorska og heilagfiski þrátt fyrir skögultönnina, sem stendur allt að því 2,5 metra út frá efri skoltinum. Það hefur lengi verið hulinn leyndardómur, hvernig tannhvalir færu að því að ná fæðunni. Háhyrningarnir á myndinn eru nógu snöggir til að veiða hvað, sem vera vill, en hvernig fara miklu stærri ættingjar þeirra að? Sumir vísindamenn telja, að þeir lami bráð sína með hljóðbylgjum á hátíðnisviði. Lamar hvalurinn bráö sína með hátíðnihljóðum Hvernig ná stóru, þungu tannhvalirnir hraðfara fórnardýrum í hafinu? Það hef- ur öldum saman verið ráðgáta. Nú álíta nokkrir vísindamenn að þeir hafi ráðið gátuna. Hvalirnir geta lamað bráðina með hátíðnihljóðum. Nota hátíðnihljóð sem vopn Það er ekki nýtt af nálinni að reynt sé að finna skýringu á því, hvernig tannhvalirnir komast yfir bráð sína. Þegar á 14. öld skrifaði munkurinn Bartholomeus Angl- icus í frægu verki, að hvalirnir gefi frá sér lykt, sem líkist lykt af trjákvoðu, og með henni plati þeir fiska inn í munninn á sér. Hvalveiðimenn fyrri alda héldu, að bráðin lokkaðist að ljósa litn- um á gini hvalsins. Á síðasta mannsaldri hefur samt ný kenning tekið að vinna sér fylgi. Margir hvalvísinda- menn telja nú, að hvaiirnir lami bráð sína með hátíðnihljóðbylgj- um. Árið 1946 komust menn að því, að á sama hátt og leðurblök- ur og kafbátar nota hljóð sem bergmálsdýptarmæli til að finna hluti eða staði, gera marsvín það einnig. Síðari athuganir hafa leitt í ljós, að höfrungar og fleiri tann- hvalategundir gera þetta líka, og einstöku hljóð geta verið nógu kraftmikil til að lama bráðina. Vísindamenn við Kaliforníu- háskóla hafa gert athuganir, sem styðja þessa kenningu. Margt bendir til dæmis til þess, að höfrungar, sem þróunarsögulega séð eru nútímahvalir hafi þróað með sér hæfileika til að nota öflugt hátíðnihljóð sem vopn. Þannig öflug hljóðbylgja er forsenda þess að hitta í mark - öfugt við breiðari og dreifðari hljóðbylgju, sem hinar uppruna- legu hvalategundir gefa frá sér, þær sem lítið hefur farió fram í gegnum þróunarsöguna. Vísindamennirnir hafa einnig veitt því eftirtekt, að yngri teg- undir tannhvalanna hafa færri og minna sérhæfðar tennur saman- borið við raðir beittra tanna, sem finnast hjá gömlu hvalategund- unum og kunna að hafa verið notaðar til að grípa bráðina með. Ein kenningin er sú, að hljóð hafi komið í stað tanna sem veiðivopn - líkast því þegar menn veiða með því að nota sprengiefni í staðinn fyrir öngul eða spjót. En spuningin er: Hvaðan koma hljóðin? En þýðingarmikinn hlekk vantar í þetta samhengi. Hvalurinn hef- ur engin raddbönd, hvernig fer hann þá að því að framkalla hljóð? Það tifandi hljóð, sem skepnan notar sem bergmálsdýptarmæli, kemur greinilega frá fremsta hluta höfuðsins. En að svo komnu hefur engum tekist að skýra, hvernig hljóðið í rauninni verður til. Þar fyrir utan gefur tannhvalurinn frá sér ýmis önnur hljóð, sem skilgreind eru sem blístur, söngur, væl, gelt, óp og öskur. Þær mælingar á hljóðum hvals- ins, sem gerðar hafa verið, hafa Gráttu svo að þér batni Ert þú í hópi þeirra, sent gráta? Þér er alveg óhætt að halda því áfram, því að tárin hafa lækningamátt. Fyrir nokkrum árum komust amerískir vísinda- menn að því, að tár hreinsa streituvaldandi efni úr líkam- anum. Nú hafa sovéskir vísinda- menn sýnt fram á það, að tár hafa læknandi áhrif á sár. Ef skorin er rifa í skinnið á til- raunarottu og síðan fylgst með því, hve lengi hún er að gróa, þá hefur komið í ljós, að með því að bera í augu rottunnar vökva, sem veldur því að hún grætur, grær rifan mun fyrr. Það reyndist allt að því 12 daga munur á því, hvað sárið gréri fyrr, ef rottan grét. Ennþá meiri undrun vakti það, að sárið hafðist mun verr við, ef tárakirtlar rottunnar höfðu verið skornir úr henni. Niðurstaða vísindamannanna varð sú, að tárakirtlarnir gefi frá sér efni, sem berist með blóðinu um líkamann og eigi sinn þátt í lækningu hvar á líkamanum sem er. Ennþá hefur vísinda- til þessa ekki getað sannað veiði- aðferðina svo óyggjandi sé. Vegna erfiðleika við upptöku og greiningu neðansjávarhljóða, hefur engum heppnast ennþá að ná hljóðum, sem eru nógu kraft- mikil til að lama bráðina í hafinu. Eða eins og einn vísindamaður- inn orðar það: - Að svo komnu er það aðeins vinnuplagg en ekki staðreynd, að tannhvalir geti lamað fórnardýr með hljómburði. í rauninni er viðfangsefnið miklu flóknara en menn áður héldu, meðal annars vegna þess að flestir tannhvalir neyta fæðu sinnar fjær en svo að upptöku- og mælingatæki nái til þeirra, þ.e.a.s. á býsna miklu dýpi. Og þar verður leyndarmál- ið sennilega að geymast um hríð. (Videnskab for alle 12/86. - Þýd. ÞJ.) Það er heilsusamlegt aö gráta, tárin draga úr drunganum og þau eiga sinn þátt í að lækna sár á húðinni. mönnunum ekki tekist að ein- angra þetta efni, en þeir fullyrða, að það hafi lækningamátt þegar um sé að ræða sár á húðinni. (Vidcnskab for alle 12/86. - Þýd. b.J.)

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.