Dagur - 13.02.1987, Síða 11

Dagur - 13.02.1987, Síða 11
13. febrúar 1987 - DAGUR - 11 íþróttamaður Norðurlands 1986 Frá verðlaunaafhendingunni í gærkvðld. F.v. eru Jónas Róbertsson, Freyr Gauti Sigmundsson, Daníel Hilmarsson, Tryggvi Gunnarsson og Hjörtur Kristjánsson sem tók við viðurkenningu Eyjólfs Sverrissonar. Daníel íþrótta- maður Norourlands Daníel Hilmarsson skíðamað- ur frá Dalvík var í gær útnefndur „íþróttamaður Norðurlands 1986“. Það er Dagur í samvinnu við lesendur sína sem að kjörinu stendur og fór útnefningin fram í hófi á Hótel KEA. Alls voru fimm íþróttamenn heiðraðir af blað- inu. Þetta er annað sinn sem þetta kjör fer fram. I fyrra hlaut Kári Elíson kraftlyftinga- maður þessa útnefningu. í öðru sæti varð Tryggvi Gunn- arsson knattspyrnumaður úr KA, í þriðja sæti Freyr Gauti Sigmundsson júdómaður í KA, í fjórða sæti Eyjólfur Sverrisson körfubolta- og knattspyrnumaður Tindastóls á Sauðárkróki og í fimmta sæti varð Jónas Róbertsson knatt- spyrnumaður úr Þór. Blaðið útnefndi alls 10 íþrótta- menn sem þóttu hafa staðið sig vel á árinu og þeir fimm efstu fengu glæsilegar styttur til eignar og auk þess fékk Daníel glæsileg- an farandbikar til geymslu í eitt ár. í sjötta sæti í kjörinu varð Kári Elíson kraftlyftingamaður, í sjö- unda sæti Kristján Olgeirsson knattspyrnumaður Völsungs, í áttunda sæti Jón Kristjánsson handknattleiksmaður úr KA, í níunda sæti Björn Axelsson kylf- ingur úr Golfklúbbi Akureyrar og í tíunda sæti varð Þorvaldur Jónsson skíða- og knattspyrnu- maður frá Ólafsfirði. Að mati blaðsins er Daníel Hilmarsson vel að titlinum „íþróttamaður Norðurlands 1986“ kominn. Hann hefur verið í fremstu röð íslenskra skíða- manna í alpagreinum um árabil og er eini skíðamaðurinn í karla- landsliði íslands. Daníel vann til þriggja gull- verðlauna á landsmótinu í Blá- fjöllum, hann sigraði í svigi, stór- svigi og alpatvíkeppni og þá varð hann bikarmeistari SKÍ. Skömmu fyrir jól útnefndi Skíða- samband íslands hann síðan skíðamann ársins. Daníel æfði og keppti erlendis í fyrra og var árangur hans þar nokkuð góður. Tryggvi Gunnarsson knatt- spyrnaður úr KA varð í öðru sæti. Tryggvi varð markakóngur 2. deildar annað árið í röð og skoraði að þessu sinni hvorki fleiri né færri en 28 mörk. Tryggvi lék mjög vel með KA í sumar og var öðrum fremur mað- urinn á bak við árangur liðsins. En eins og allir vita endurheimti KA sæti sitt í 1. deild. Það verður fróðlegt að fylgjast með því í sumar hversu vel Tryggva tekst að hrella markverðina í 1. deild. Þá má geta þess að á síðasta ári var Tryggvi valinn í Ólympíuhóp íslands í knaftspyrnu. Freyr Gauti Sigmundsson júdómaður í KA hafnaði í þriðja sæti í kjörinu. Hann er eitt mesta efni sem komið hefur fram í júdó í langan tíma. Hann varð íslands- meistari í drengjaflokki í júdó á síðasta ári og hann var í sigur- sveit KA sem varð íslandsmeist- ari í sveitakeppni. Þá sigraði Freyr Gauti í drengjaflokki á haustmóti Júdósambandsins ann- að árið í röð og hafði hann gífur- lega yfirburði. Hann fékk undan- þágu til þess að keppa á íslands- móti júníora og íslandsmóti full- orðina og hafnaði hann í öðru sæti í sínum flokki í báðum þeim mótum. í júníoraflokki keppa 21 árs og yngri en Freyr Gauti var þá aðeins 14 ára. Þá má geta þess að hann var einn af þeim sex drengjum úr KA sem valdir voru í unglingalandsliðið í haust. í fjórða sæti varð Eyjólfur Sverrisson körfubolta- og knatt- spyrnumaður Tindastóls á Sauð- árkróki. Eyjólfur lék mjög vel með liði Tindastóls í 2. deildinni í körfubolta í fyrra en liðið vann sig sem kunnugt er upp í 1. deild og leikur þar í dag. Eyjólfur hef- ur einnig staðið sig frábærlega í 1. deildinni og er um þessar mundir langstigahæstur leik- manna 1. deildar, hefur skorað 365 stig. Hann var á síðasta ári valinn til æfinga með unglinga- landsliðinu í körfubolta. En Eyjólfi er fleira til lista langt en að spila körfubolta. Hann hefur einnig leikið knattspyrnu með 3. deildarliði Tindastóls og síðast- liðið sumar lék hann mjög vel og varð m.a. markahæsti leikmaður deildarinnar, skoraði 15 mörk. Jónas Róbertsson knattspyrnu- maður úr Þór varð í fimmta sæti í kjörinu. Jónas var valinn knatt- spyrnumaður Akureyrar 1986 og hann var einnig valinn besti leikmaður Þórs. Jónas átti mjög gott sumar og hann var sá eini í Þórsliðinu sem lék vel í leikjum liðsins á tímabilinu. Jónas lék alla leiki Þórs í deildinni og skor- aði 4 mörk. -KK Daníel Hilmarsson, íþróttamaður Norðurlands 1986. Myndir: RPB

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.