Dagur - 13.02.1987, Side 16
Foreldrar fermingarbama
Pantið fermingarveisluna tímanlega
Hafíð samband við Hallgrím eða Stefán
Reglum um undirmálsfisk breytt í fyrra horf:
„Rökin voru fráleit“
— segir Hólmsteinn Björnsson á Raufarhöfn
Um síðustu áramót gengu i
gildi nýjar reglur varðandi
undirmálsfísk sem kváðu á um
það að hann myndi reiknast
með í aflamarki og þorsk-
aflahámarki fískiskipa. Mikil
óánægja kom þá strax fram
meðai sjómanna og forsvars-
manna í fískiðnaði þar sem tal-
ið var fullvíst að þetta myndi
leiða til þess að miklu magni af
smáfíski yrði hent úr aflanum.
Röksemd ráðuneytisins fyrir
þessari breytingu var sú að yfir-
völd töldu eftirlit með því hversu
mikið magn bærist á land af
undirmálsfiski, ekki nægilega
gott eftir að Ríkismat sjávar-
afurða var lagt niöur.
Þrjú
umferðar-
óhöpp á
Sauðárkróki
- Fimm árekstrar
á Akureyri
A síðustu tveim dögum hafa
orðið þrjú umferðaróhöpp á
Sauðárkróki, öll á sömu
slóðum, við gatnamótin þar
sem hús vegagerðarinnar
stendur niður við Borgarsand.
Ekki hafa orðið slys á fólki í
þessum óhöppum, en talsvert
eignatjón.
Að morgni miðvikudags valt
jeppabifreið sem ók út af Sauðár-
króksbraut vestan fyrrgreindra
gatnamóta. Laust upp úr hádegi
sama dag varð allharður árekstur
á Borgarsandi austan gatnamóta
og síðdegis í gær skullu svo tveir
bílar saman á gatnamótunum.
Að sögn lögreglunnar er ekki vit-
að til þess að áður hafi orðið
árekstur á þessum stað.
I gær urðu fimnr smávegilegir
árekstrar á Akureyri. -þá/ET
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
nú sett fyrri reglur í gildi aftur.
Pær kveða á um að undirmáls-
fiskur reiknist ekki í kvóta sé
honum haldið aðgreindum frá
öðrum afla og löggiltir eftirlits-
menn staðfesti hversu mikið
magn er um að ræða. Eina breyt-
ingin frá þeim reglum sem giltu á
síðasta ári eru því þær að eftirlit-
ið er á vegum frystihúsanna en
ekki ríkisins.
„Ég fagna því að þessu hefur
nú verið breytt. Rökin fyrir
breytingunni um áramótin voru
auðvitað fráleit enda í mörgum
tilfellum sami maður sem sá um
eftirlitið og fyrr, sagði Hólm-
steinn Björnsson á Raufarhöfn.
Forsvarsmenn frystihúsa á
Norðurlandi funduðu nýlega um
þetta mál og var þess farið á leit
við ráðuneyti reglunum yrði
breytt að nýju.
Að sögn Jóns B. Jónassonar
skrifstofustjóra í sjávarútvegs-
ráðuneytinu voru ástæður fyrir
því að reglunum var breytt aftur
til fyrra horfs, þær að upplýsingar
bárust um það að nýir árgangar
væru sterkir og því miklu magni
af undirmálsfiski hent.
„Við viljum með þessu tryggja
að þessi fiskur komi að landi. Af
því hljótast bæði aukin verðmæti
og vitneskja um ástand fiskstofn-
anna,“ sagði Jón í samtali við
Dag. ET
Framsóknarflokkurinn gekkst í gærkvöldi fyrir fundi á Hótel KEA. Hann sátu framkvæmdastjóm flokksins,
þingmenn, formenn kjördæmasambanda, frambjóðendur, formenn landssamtaka framsóknarmanna og kosningar-
stjórar flokksins úr öllum kjördæmum. - Fyrir hádegi í dag heimsækja ráðherrar flokksins, þingmenn og aðrir fram-
bjóðendur vinnustaði á Akureyri og eftir hádegi verður fundað áfram á Hótel KEA. - Myndin er tekin á fundinum
á KEA í gærkvöldi.
Mvnd: RÞR
Fiskmarkaðsnefnd Akureyrarbæjar:
Ekki áhugi á uppboðsmarkaði
- þess í stað verði stofnað hlutafélag um fiskmiðlun
Fimm manna fískmarkaðs-
nefnd sem Hafnarstjórn Akur-
eyrar skipaði þann 12.
nóvember hefur nú lokið
störfum. Skýrsla nefndarinnar
var lögð fyrir bæjarráð í síð-
ustu viku og er meginniður-
staða hennar að vinna beri að
stofnun hlutafélags um físk-
miðlun í stað fískmarkaðar.
„Arctic open“ golfmótið:
Fyrirspurnir
eriendis frá
- þegar farnar að berast
Fyrirspurnir eru þegar farnar
að berast til Ferðaskrifstofu
Akureyrar vegna „Arctic
open“ golfmótsins sem haldið
verður hjá Golfklúbbi Akur-
eyrar síðustu helgina í júní í
sumar.
Hér er um að ræða alþjóðlegt
mót og hefur nú í fyrsta skipti
verið gert átak í því skyni að aug-
lýsa mótið erlendis. Golfklúbbur-
inn stóð að útgáfu litprentaðs
bæklings sem dreift hefur verið
víða erlendis, m.a. víða í Eng-
landi og einnig liggur bæklingur-
inn frammi á öllum söluskrifstof-
um Flugleiða erlendis.
Með þessu móti er verið að
höfða til þess ævintýris sem það
hlýtur að vera fyrir útlendinga að
leika gólf að nóttu til, en þetta
mót er einmitt svokallað miðnæt-
urmót. Keppni hefst sem sagt rétt
fyrir miðnætti og er leikið fram
undir morgun. Mótið sem kennt
við heimskautsbauginn
er
var
haldið í fyrsta skipti á sl. ári í sól
og blíðviðri. Ef svo fer sem
horfir, má reikna með einhverj-
hópi útlendinga á mótið í
gk--
um
sumar.
Hér er um að ræða sams konar
fyrirtæki og sagt var frá í blað-
inu í gær að Hilmar Daníelsson
á Dalvík hyggðist stofna. Það
er því Ijóst að áframhaldandi
togstreita verður á milli Akur-
eyringa og Dalvíkinga vegna
físksölu.
í skýrslunni kemur fram að
rætt hafi verið við um 30 aðila í
útgerð og fiskvinnslu á svæðinu
frá Hvammstanga austur að
Pórshöfn. Niðurstaðan úr þess-
um viðræðum var sú að ekki var
áhugi meðal þessara aðila um að
koma á fót uppboðsmarkaði eins
og fyrirhugað er að stofna við
Faxaflóa.
Pess í stað virtist áhugi fyrir
því að stofna hlutafélag um „upp-
boð, miðlun og sölu á fiski og
fiskafurðum“ án þess að safna
þeim saman í eina skemmu og
bjóða þar upp. Hér virðist því
um sams konar „módel“ að ræða
og sagt var frá í blaðinu í gær.
Gert er ráð fyrir því í skýrsl-
unni að Akureyrarbær verði stór
hluthafi í þessu fyrirtæki fyrst um
sinn en auk hans fyrirtæki í
útgerð og fiskvinnslu. Einnig
verður hverjum þeim aðila er-
/lendum og innlendum sem áhuga
hefur á, heimilt að gerast hlut-
hafi. Kostnaður við fiskmiðlun af
þessu tagi er mjög lítill miðað við
það sem þarf til að koma upp
hefðbundnum fiskmarkaði og er
gert ráð fyrir að hlutafé verði 5-
10 milljónir. Tekjur fyrirtækisins
yrðu annars vegar einhvers konar
árgjöld en hins vegar tekjur fyrir
veitta þjónustu.
Meginástæðan fyrir þessari
afstöðu þeirra aðila sem rætt var
við er að á Norðurlandi er al-
gengara en ekki að sami aðilinn
reki bæði útgerð og fiskvinnslu.
Fiskmarkaðsnefndin, sem nú
hefur hætt störfum, hefur stofnað
7 manna nefnd til þess að vinna
áfram að málinu, ganea frá sam-
þykktum og boða til stofnfundar
félagsins. Formaður nefndarinn-
ar er Björn Jósef Arnviðarson
formaður Atvinnumálanefndar
Akureyrar.
Nú liggur fyrir Alþingi frum-
varp til laga um uppboðsmarkað
með sjávarafla og er búist við að
það verði afgreitt innan skamms.
Pá gildir að hafa snör handtök og
koma á fót fiskmiðlun við Eyja-
fjörð.
Sérframboðið:
Kennt við félags-
hyggju og jafnrétti
- vilja listabókastafinn J
Á fundi sem stuðningsmenn
sérframboðs Stefáns Valgeirs-
sonar héldu á Akureyri í fyrra-
kvöld var ákveðið að framboð-
ið skyldi kallast Listi jafnréttis-
og félagshyggjufólks. Rætt var
um að reyna að fá listabókstaf-
inn J, sem yrði táknrænn fyrir
jafnréttishugmyndina.
Meðal þess sem rætt var á
fundinum var úrsögn úr fram-
sóknarfélögum í kjördæminu.
Talið er að jafnvel einhver
hundruð stuðningsmanna Stefáns
muni segja sig úf félögunum.
Rætt var um að gera það með
þeim hætti, að afhenda framá-
mönnum flokksins lista með
nöfnurn þeirra sem segðu sig úr
félögunum, en framkvæmda-
stjórn, þingflokkur ög fleiri úr
forystusveit Framsóknarflokksins
funda í dag á Hótel KEA. Þar
verður rætt um stefnuskrá vegna
alþingiskosninga og fleira sem
viðkemur undirbúningi þeirra.
HS