Dagur - 17.02.1987, Page 8

Dagur - 17.02.1987, Page 8
8 - DAGUR - 17. febrúar 1987 Byggðastefna á krossgötum: Land og synir Margir kannast við sögu Indriða G. Porsteinssonar Land og syni. Þar dregur höfundur upp greinar- góða mynd af lífi á tímum mikilla þjóðlífsbreytinga og byggðarösk- unar. Hann lýsir af tilfinningu þeim áhrifum sem það getur haft í för með sér að verða á svo til augabragði að gerbreyta öllum lifnaðarháttum sínum. Það vefst trúlega ekki fyrir neinum að þær þjóðlífsbreytingar sem urðu á fyrri hluta og um miðbik þessarar aldar voru óumflýjanlegar og áttu sér stað um allan hinn vest- ræna heim. í heild urðu þær okk- ur til mikilla framfara þótt þær hafi skilið eftir sár í einstökum brjóstum. En hvers vegna er verið að rifja þetta upp nú þegar komnar eru fram á sjónarsviðið kynslóðir sem ekki þekkja þessa atburði á annan hátt en af spjöldum sög- unnar. Fólk sem hefur lifað í til- tölulegu jafnvægi hvað varðar búsetu og atvinnuhætti. Þessi kafli sögu okkar er rifjaður upp hér vegna þess að alveg er Ijóst að búsetubreytingum á Fslandi er ekki lokið. Heldur stöndum við frammi fyrir því sem kalla mætti annað stig fólksflutninga í land- inu. Á síðustu sex árum hefur hálft sjötta þúsund manns flust frá landsbyggðinni til suðvestur- hornsins. Þessi fjöldi jafngildir um fimmtungi allra íbúa Breið- holtshverfis í Reykjavík eða ef litið er á það úr hinni áttinni jafn- gildir það nær öllum íbúum Ákra- ness eða ríflega þriðjungi íbúa Akureyrar. Upp úr 1970 var gert átak til að efla byggð um landið og sporna við því að þjóðin flytti í meira mæli til Reykjavíkursvæðisins en orðið var. Fyrst í stað skilaði byggðastefnan árangri. Atvinnu- uppbygging á hinum ýmsu stöð- um stöðvaði fólksflóttann og aðrir sem áður höfðu búið fyrir sunnan í lengri eða skemmri tíma reyndu nú fyrir sér á landsbyggðinni. Nú hefur dæmið snúist við, lands- byggðinni í óhag svo um munar og því fer ekki hjá því að spurt sé hvað valdi. Seinni flutningur úr sveit- unum Upp úr 1980 fór að bera á veru- legum vandamálum í landbúnaði þótt rætur þess vanda megi rekja nokkuð lengra aftur. Að nokkru leyti er hann afleiðing góðæris sem þessi atvinnuvegur hafði búið við. Framleiðslugetan óx hratt miðað við hvern fram- leiðanda en markaðir fylgdu ekki á eftir. Ýmsar orsakir eru fyrir því hversu landbúnaðarfram- leiðslan óx hratt og ekki í sam- ræmi við markaði. Þær hafa víða verið raktar í umræðum og verða ekki frekar tíundaðar hér, en sennilega eru flestir farnir að sjá þetta nú og skilja að íslenskur landbúnaður stendur frammi fyrir því í dag að einungis tak- markaðan fjölda bænda þarf til að framleiða allar þær afurðir sem við getum í okkur látið í framtíðinni. Það er því alveg ljóst að landbúnaður verður ekki stundaður nema á hluta af þeim jörðum, jafnvel ekki nema í hluta af þeim sveitum sem nú er. Það er einnig jafn augljóst að landbúnaðurinn á sér mesta framtíð í þeim sveitum sem best eru til búskapar fallnar og í mestri nálægð við markaðina. Að ætla að takmarka framleiðslu með því að halda höfðatölu bænda en láta alla draga saman eftir markaðsþörfum er aðeins hægfara dauðastund allrar bændastéttarinnar og getur aldrei gengið. Landbúnaðurinn getur aldrei einn og sér haldið uppi byggð um gervallt landið. Þar verður fleira að koma til. Á hinn bóginn er það engan veginn sársaukalaust fyrir þá landsins syni sem hverfa verða frá búskap. Frá lífsstarfi og eignum. Um miðja öldina, þegar mestu búsetubreytingarnar gengu yfir, urðu hlutirnir oft auð- veldari fyrir þá sem í hlut áttu vegna þess að mikill hluti þess fólks sem yfirgaf sveitirnar var ungt fólk. Það átti framtíðina fyrir sér og hvarf sjaldnast frá miklum eignum. Auk þess var víðast hvar mjög auðvelt að fá vinnu á þessum árum. Það fólk sem þarf að hverfa frá búskap í dag býr við aðrar aðstæður. Það er margt komið af léttasta skeiði og á því ekki eins auðvelt með að laga sig eftir kröf- um nútíma vinnumarkaðar. Það þarf að hverfa frá umtalsverðum eignum sem eru orðnar því verð- litlar og jafnvel ekki hægt að losna við. Aðstæður þessa fólks eru vandi alls samfélagsins. Hann er það mikill að hver og einn ein- staklingur getur ekki losað sig út úr honum af sjálfsdáðum. Sjávarútvegur fyrir sjómenn Það er ekki markaðsleysi heldur breyttir markaðir sem valda því að sjávarútvegurinn virðist ætla að sjá færra fólki fyrir vinnu en verið hefur. Markaðir fyrir fersk- an fisk hafa opnast í Evrópu og gengisþróun, einkum lækkun dollarans, hafa gert Evrópu- útflutninginn hagstæðan. Það Þórður Ingimarsson skrifar: þýðir einfaldlega að fiskurinn hættir að hafa viðkomu í landi nema til að vera staflað í gáma. Dýrar vinnslustöðvar, sem byggðar hafa verið og veitt fjölda fólks vinnu nýtast ekki. Það þarf ekki að orðlengja það að þessi þróun bitnar fyrst og fremst á landsbyggðinni þar sem heil byggðarlög hafa að mestu byggt afkomu sína á vinnslu sjávarafla. Þótt hinn nýi útflutningur kunni að skapa okkur auknar tekjur í formi útflutningsverðmæta verð- ur að hyggja að því hvernig þær geti nýst því fólki sem starfað hefur við sjávarútveginn um allt land. Þannig að þótt sjómenn séu vissulega undirstaða hans þá verði hann ekki einungis fyrir þá. Iðnaður eða öskustó „Nú er það ekki landbúnaður eða sjávarútvegur sem framtíðin felst í,“ sagði jafnaldri minn á Akureyri við mig fyrir um það bil einum og hálfum áratug. Mig minnir að hann hafi verið að læra vélsmíði og Slippstöðin var í miklum uppgangi. „Já en hvernig iðnaður," spurði ég víst á móti og svarið sem ég fékk var einfald- lega iðnaður með þungri áherslu á i-ið. Líklega hafa margir hugs- að á svipaðan hátt þá. En hvers konar iðnaður hefur risið upp. Það er fyrst og fremst iðnaður sem tengist úrvinnslu og þjónustu við hinar hefðbundnu atvinnugreinar eins og þær eru stundum nefndar. Ýmsir hafa rennt hýru auga til stóriðju. Það er í sjálfu sér góðra gjalda vert og ekkert á móti því að byggja eitthvað slíkt upp með öðrum greinum til að auka fjölbreytni og traustleika atvinnulífs og þar með byggðarinnar. En þar stönd- um við frammi fyrir öðru vanda- máli. Við verðum að fá erlenda aðila til þátttöku í slíkum fram- kvæmdum og þeir liggja ekki alveg á lausu þótt ýmsir telji að þeir bíði í biðröð eftir því að fjárfesta í fyrirtækjum á íslandi. Það er alveg ljóst að atvinnu- greinarnar verða að haldast í hendur og vinna með og styðja hver aðra. Ef þess er ekki gætt er skammt í að iðnaður okkar verði að öskustó og ekki er það lóð á vogarskál byggðajafnvægisins. Byggðastefna á krossgötum Þótt nokkur bati hafi orðið í þjóðarbúskap okkar á síðustu árum sem rekja má að miklu leyti til brotthvarfs verðbólgunnar er enn að ýmsu að hyggja um hvern- ig árangurinn skilar sér. Svo virðist sem landsbyggðin ætli að verða nokkuð út undan og ef fer fram sem nú horfir verða meira en 60% af íbúum landsins bú- sett á suðvesturhorninu um alda- mót. Byggðastefna á íslandi hefur alltaf haft mikla tilhneigingu til að miðast fyrst og fremst við minni og fámennari búsvæðin. Vissulega hafa mörg þeirra verið í vanda stödd en hann verður ekki leystur ef það gleymist alveg að taka stærri byggðarlögin, sem eru þó megin uppistaða lands- byggðarinnar, með í reikningin. „Settu aldrei neitt á Akureyri sem getur verið á Húsavík. Settu aldrei neitt á Húsavík sem getur verið á Raufarhöfn. Settu aldrei neitt á Raufarhöfn sem getur ver- ið á Þórshöfn.“ Þessi farsi er dæmigerður fyrir þá byggða- stefnu sem tekin var upp í byrjun áttunda áratugsins og var raunar beitt í pólitískum áróðri á þeim tíma. Því skal ekki neitað að þessir staðir hafi þurft á stuðningi að halda. En fólksflutningurinn er nú þegar orðinn það stríður úr fámennari byggðunum að hann verður ekki stöðvaður með því einu að efla atvinnulíf á minnstu stöðunum. Það eina sem dugað getur til eflingar byggðar í landinu eru öflugir byggðakjarnar og þéttbýli sem hafa að bjóða, fjöl- breytt atvinnulíf, aðstöðu til menntunar og möguleika til menningarlífs. Við lítum gjarnan til Norður- landanna og sjáum hvernig ná- grannar okkar taka á vanda- málum sem einnig eru okkar. Norðmenn, sem verða að halda bvggð í Norður-Noregi hafa flutt skólanám í sjávarútvegsfræðum til Tromsö. Það hefur verið veru- legur stuðningur við útvegs- byggðirnar þar nyrðra. Hvernig væri að flytja sjávarútvegsnám okkar til ísafjarðar og efla útveg á Vestfjörðum meðal annars með auknum fiskveiðikvóta en Vest- firðingar aflegðu þess í stað allan landbúnað sem hentar þeim ekki eins vel og mörgum öðrum byggðarlögum? í Finnlandi er lögð mikil áhersla á borgina Tampere, sem er inni í miðju landi í norður frá Helsinki. Hún er í nálægð við mikil skógarsvæði og þar vex nú óðfluga iðnaður og mannlíf. Gömlu borgirnar á vesturströnd- inni, Vasa og Ábá byggja tilveru sína aftur á móti meir á hafnar- aðstöðunni og samskiptum í vestur. Þarna fer greinileg verka- skipting fram og uppbygging Tampere er mjög augljós og styrkir alla byggð á stóru svæði umhverfis borgina í Mið-Finn- landi. Fleiri dæmi mætti tilfæra af þessum toga þótt ekki verði gert hér. Ef íslensk byggðastefna á að geta skilað umtalsverðum árangri verður hún fyrst og fremst að miða að því að viðhalda öflugum þéttbýlum í öllum landshlutum sem síðan styrkja mannabyggðir í kringum sig. Að öðrum kosti tekst ekki að draga úr, helst stöðva fólksflutningana að ég tali ekki um að snúa dæminu við. Tilboð á nautahakki af nýslátruðu hefst í dag þriðjudag í öll- um matvörubúðum á fálagssvæðinu Selt verður í 1 kg pakkningum Verð aðeins kr. 298.- kg Kjörbúðir

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.