Dagur - 25.02.1987, Side 7

Dagur - 25.02.1987, Side 7
6 - DAGUR - 25. febrúar 1987 Það var fríður hópur vaskra körfuboltamanna sem steig um borð í áætlunarvél Flugleiða á Sauðárkróksflugvelli föstu- daginn 30. janúar sl. og lagði loft undir fót suður til Reykja- víkur. Þarna var á ferð 7 manna sérþjálfuð úrvalsdeild úr Iþróttafélaginu Molduxum á Króknum. Tilgangur Molduxa með ferðinni var að sýna bestu „spriklurum“ borgarinnar, úrvalsliði Flugleiða og Esju (ekki kexverksmiðjunnar) fram á hið mikla líkamlega og andlega atgervi þeirra norðan- manna. Báðir áðurnefndir klúbbar höfðu sent íþróttafélag- inu Molduxa formlega og eiðfasta áskorun. Áður en lagt var í förina var ákveðið að iðkendum skemmtanalífsins í höfuð- borginni gæfist kostur á að finna smjörþefinn af andlega atgervinu. egar við komuna til Reykj avíkur var haldið á Hótel Loftleiðir. Hús- ráðendur þar urðu þess heiðurs og ánægju aðnjótandi að hýsa þessa prúðu drengi að norðan meðan á dvöl þeirra í höfuð- borginni stóð. Sólarhringurinn fram að fyrri viðureign sveitar- innar var notaður vel til andlegr- ar uppbyggingar. Til að dreifa huganum var haldið á Breiðvang um kvöldið og varð Fats Dom- inó, erlendur skemmtikraftur sem söng þar, alveg himinlifandi, við komu þessara stráka sem fylltu salarkynnin sólskini með nærveru sinni. Eftir að hafa skoðað borgina í krók og kring fyrri hluta laugar- dags héldu þessir boðberar heil- brigðrar sálar : hraustum líkama til íþróttahúss Kennaraháskólans til að vera mættir tímanlega til orrustunnar við Flugleiðasveitina sem hefjast átti á slaginu sjö sem og varð daginn þann. Prátt fyrir skínandi leik norðanmanna elti óheppnin þá og að auki kom í ljós að lið risans í Atlantshafs- fluginu var þrautþjálfað af lands- liðsmanni í hvorki fleiri né færri en 3 greinum, blaki, fótbolta og körfubolta, Antoni Bjarnasyni. Þegar langt var liðið á leikinn var útlitið ekki gott fyrir drengina okkar, leikmenn Flugleiða komnir 20 stig yfir og í nokkur þúsund feta hæð af ánægju. í>á brá svo við að Anton þjálfari þeirra var kallaður í símann og á næstu mínútum kom vel í ljós gagnsemi þess að hafa góðan þjálfara. Pegar hann kom skömmu seinna úr símanum, í þann mund er flautað var til leiksloka voru harðjaxlarnir í Molduxa búnir að saxa fyrr- greindan mun niður í 9 stig. Lokatölur urðu 63:54 Atlants- hafsflugsrisanum í vil, en hefði Anton verið kallaður í símann örlitlu fyrr hefði ekki verið spurning um hver hefði farið með sigur af hólmi. Molduxar tóku þessum ósigri eins og sönnum íþróttamönnum sæmir enda sýndu mótherjarnir þeim mikla gestrisni og virðingu og til marks um það var leikurinn dæmdur af dómurum úr úrvals- deildinni. Luku þeir miklu lofs- orði á leik Króksara að leik lokn- um og dáðust sérstaklega að því hvað leikkerfin gengu vel upp. Molduxaliðið sem fór til Siglufjarðar ’82 og hafði þá þegar sópað að sér miklum verðlaunum. Efri röð: Helgi Jóns- son,Þorsteinn Birgisson og Ágúst Guðmundsson. Fremri röð: Þórhallur Ásmundsson, Björn Ottósson, ÓttarBjarna- SOn Og Þórarinn Sólmundarson. Mynd: Stefán Pedcrsen. Molduxar á ferð fyrirvara og mjög vel undirbúin, það vel að mönnum hraus hugur við þvílíkt áfall það yrði, ef fresta þyrfti henni vegna ófærðar. Undirbúningurinn hvíldi að langmestu leyti á Þorsteini Birg- issyni sem bar af henni hita og þunga auk þunga sjálfs sín. Svo náið fór hann í undirbúninginn að á fundi í vikunni fyrir ferðina gerði hann grein fyrir þeim útgjöldum sem menn yrðu fyrir vegna ferðarinnar og áætlaði á móti helgareinkaneyslu Mold- uxa. Útkoman úr þessu dæmi var sú að auk skemmtilegrar ferðar fengju menn bókstaflega borgað fyrir að fara hana. þegar sást hvar bakkinn teygði sig upp í fjaílið. Þegar komið var út á Heljartröð var ljóst að ekki yrði lengra haldið og þótti mönn- um súrt í broti eftir allan þennan undirbúning að þurfa frá að hverfa. Réttast þótti samt að koma við í Fyrirbarði í Fljótun- um til að hringja á Siglufjörð og láta vita af þessu. Þegar Steini hafði samband við Guðmund Davíðsson foringja Siglfirðinga, mátti Guðmundur ekki heyra á það minnst að Molduxar yrðu frá að hverfa og sagðist mundi senda 2 trukka á móti rútunni. Síðan var rútunni snúið aftur við og haldið út eftir. Eftir að hafa beðið lengi úti við Heljartröð kom loksins annar - Velheppnuð ferð til höfuðborgarinnar nýlega ftir þessa hetjulegu dáð átti þessi þreytti hópur dreifbýlinga svo sannar- lega skilið að eiga stund milli stríða. Stundin sú var tekin á Hótel Sögu um kvöldið yfir dýr- indis krásum og veigum. Svolítið hafði tapið farið í skapið á mönnum, enda ekki nema von þar sem þeir töldu sig án efa hafa verið mun betri aðilann. Eftir að sú ákvörðun var tekin að sigra Esjuliðið daginn eftir og heit- strengingar þar að lútandi gerðar, brugðu Uxar nú undir sig betri fætinum á andlega sviðinu og var mikill rómur gerður að menningarlegri framkomu þeirra. Þó aldrei eins og að söng þeirra fyrir utan húsið á eftir, sem fólk hreifst mjög af. Sérstak- lega vakti rödd hins Krúttlega bakara og hetjutenórs Óttars Bjarnasonar athygli. En almennt var haldið að þarna væru á ferð félagar úr Karlakór Reykjavíkur þrautþjálfaðir af Páli P. Pálssyni. Að sjálfsögðu voru Molduxar vel uppiagðir á sunnudaginn eftir að hafa gengið hægt um gleðinn- ar dyr og hætt leik þá hæst hann bar daginn áður. Enda eins gott þar sem í liði Esju, er keppt var við þennan dag, voru margir burtfluttir Norðlendingar sem getið höfðu sér gott orð á íþrótta- sviðinu. En til að gera langa sögu stutta áttu Esjarar aldrei mögu- leika í leiknum og var rúllað upp af Uxum sem unnu yfirburðasig- ur 83:81. Þrátt fyrir það þótti leikurinn mjög spennandi, skemmtilegur og drengilega leik- inn á báða bóga. Um kvöldið var borðuð sigur- máltíð mikil (örugglega ekki sú síðasta) í Blómasal Loftleiða. Að morgni mánudags var síðan hald- ið norður á bóginn eftir vel- heppnaða suðurferð. Reykjavíkurfurarnir. Efri röð: Magnús Einarsson, Óttar Bjarnason, Forni Eiðsson og Ágúst Guðmundsson. Neðri röð: Hjörtur Hjartarson, Guðmundur Sveinsson og Pétur Ólafsson. ú eru um fimm ár síðan Molduxar fóru í sína fyrstu keppnisferð. Það var um haustið 1981 sem félagið var stofnað og í lok febrúar ’82 var fyrsta keppnisferðin farin til Siglufjarðar. Þótti vel við hæfi að fara þangað þar sem tveir af stofnfélögunum þeir Þorsteinn Birgisson og Óttar Bjarnason voru bornir og barnfæddir þar. Ferð þessi er þeim sem hana fóru ógleymanleg og þá sérstaklega ævintýralegt ferðalag til Siglu- fjarðar á laugardaginn. Ferðin hafði verið ákveðin með góðum xar fylgdust ákaflega vel með veðurspánni og veðurútliti síðustu viku febrúar ’82. Norðaustanátt var á miðunum fyrir Norðurlapdi alla vikuna en náði ekki inn á landið. Þegar lagt var af stað um hádegi á laugardag var veður mjög gott bæði á Sauðárkróki og Siglufirði. Það voru sex Moldux- ar ásamt eiginkonum sínum sem héldu áhyggjulausir af stað á rútu- bíl með Steini á Mel, undir far- arstjórn Steina Birgis. Ferðin gekk vel út í Fljótin, en þá þyngdi aðeins yfir mönnum bíllinn, duglegur bíll og sagði bíl- stjóri hans færðina vera orðna það slæma í skriðunum að hinn bíllinn hefði ekki þorað niður þær. Leist nú Uxum ekkert á blikuna og voru að því komnir að snúa við þegar bar að tvo drif- mikla vöruflutningabíla á leið til Siglufjarðar og sagðist bílstjóri annars þeirra mundi fara yfir daginn eftir. Hafði þessi bílstjóri, Hilmar Sigursteinsson, ætíð komist til og frá Siglufirði um veturinn, þó að oft væri ófært fyr- ir aðra bíla. Með þetta í bak- höndinni auk þess sem vitað var að Hljómsveit Finns Eydal átti að Allur Molduxahópurinn. leika á dansleik á Hótel Höfn um kvöldið og klárt mál að allt yrði reynt til að hjálpa hljómsveitinni til og frá staðnum og veðurútlit var ekkert sérstaklega slæmt, var ákveðið að láta kylfu ráða kasti og fara út eftir. Var mannskapn- um og farangrinum síðan deilt niður á bílana og það fólk sem fór í vöruflutningabílana fór síð- an með trukknum sem beið uppi í Mánárskriðum í bæinn. Klukkan var orðin hálf fimm þegar liðið mætti í íþróttahúsið í sundhöllinni, en keppnin átti að hefjast klukkan hálf þrjú. Sigl- firðingar fögnuðu gestunum eins og þeir hefðu heimt þá úr helju og mikið var hlegið meðan ferða- sagan var sögð. Þeir sögðust vera búnir að hita upp þrisvar sinnum, en máttu þó hita upp einu sinni enn þar sem hluti af íþróttadóti Molduxa hafði gleymst í öðrum vöruflutningabílnum og af þeim sökum tafðist nokkuð að keppnin gæti hafist. Keppt var í þrem greinum. í keppninni rættust spádómar sérfræðinga í 2 keppn- isgreinum, gestirnir sigruðu í körfuboltanum og gestgjafarnir í handboltanum, en Króksarar tryggðu sér síðan sigur með mjög óvæntum sigri í fótboltanum, þar sem Þorsteinn Birgisson sýndi snilldarleik og skoraði hvert markið gulli betra. Að keppni lokinni var haldið á hótelið og borðað endað margir orðnir matarþurfi eftir erfitt ferðalag og keppni. Síðan var haldið fram í skíðahótelið á Hóli gististað hópsins. Þegar mann- skapurinn var að gera sig kláran í kvöldverðarboð gestgjafanna í KS húsinu kom í ljós að tvær töskur með samkvæmisfatnaði vantaði. Önnur taskan í eigu Björns Ottóssonar fannst, en taska fararstjórans Steina Birgis fannst ekki, leit að henni reyndist óþörf þar sem það uppgötvaðist að hann hafði gleymt henni heima. Til mikillar lukku fyrir þann hinn sama gat hann fengið lánuð föt af tvíburabróður sínum í bænum, en þeir eru mjög líkir á velli. Siglfirðingar sýndu það og sönnuðu í KS húsinu og á Höfn- inni um kvöldið að þeir eru höfð- ingjar heim að sækja og að gam- an er að skemmta sér með þeim. Hljómsveit Finns Eydal gisti einnig fram á Hóli og þar var sungið Á skíðum skemmti ég mér með tilheyrandi sveiflum, ásamt fleiri lögum fram eftir nóttu. Daginn eftir var komið sólskin og besta veður og þó ófært væri tókst vörubílstrukknum að draga rútubíl Hljómsveitar Finns Eydal með hljómsveitina ásamt Moldux- um innanborðs yfir ófæruna. Steinn á Mel kom síðan á sínum bíl á móti hópnum. En nú brá svo við að fararstjórinn Steini Birgis settist aftast í rútuna. Eitthvað hafði verið fundið að fararstjórn hans daginn áður þegar íþrótta- dótið og samkvæmisklæðnaður- inn fundust ekki. -þá 25. febrúar 1987 - DAGUR - 7 _af erlendum vettvangl Nú eru nærsýnir skomir upp á færibandi Nú hafa sovéskir læknar fundið vinsælli augnaaðgerð ákveðið kerfi, þar sem fimm læknar skera á einum degi 100 sjúklinga, sem renna framhjá á færibandi. Nokkrir smáskurðir eru gerðir í hornhimnu augans og eftir aðgerðina fá nærsýnir eðlilega sjón. Þegar rispurnar gróa saman breytist bogiína augans þannig að sjúklingurinn þarf ekki lengur að ganga með gleraugu. Vissir agnúar eru þó á aðgerð- inni. Ef skorið er of djúpt, verða sjúklingarnir fjarsýnir, agnarlítil örin geta dreift ljósi þannig, að t.d. bílljós virðast heilt eldhaf, sem blindar menn, og á meðan örin eru að gróa verður sjón sjúklingsins ótraust. Augnmiðstöðin í Moskvu er fyrsta lækningastofnunin, þar sem skurðlæknar vinna við færi- band, og heilbrigðisráðuneyti Sovétríkjanna er svo ánægt með árangurinn, að það hefur fyrir- skipað aö taka þessa tækni í notkun á 23 stöðum öðrum í Sovét. Fimm læknar og aðstoðarmenn þeirra taka við hver af öðrum með sinn hluta aðgerðarinnar, sem tekur þrjár til fimm mínútur. Skurðlæknarnir skoða sjúkling- ana í gegnum smásjá, sem stækk- ar tuttugufalt, og skurðirnir eru gerðir með demanrsskera, sem er 1/10.000 úr millimetra að þykkt. Fyrsti skurðlæknirinn spennir upp augnlokin og merkir miðju sjónsviðsins eftir tölvureikningi, sem sýnir hvar skurðirnir eiga að koma, en síðan heldur bekkur- inn, sem sjúklingurinn liggur á, áfram eftir tveimur renni- brautum. Næsti læknir gerir fyrsta skurðinn í ytra borð horn- himnunnar, en þriðji læknirinn framkvæmir vandasamasta og hættulegasta hluta skurðað- gerðarinnar. Hann lengir og dýpkar skurðina til þess að fullur sjónstyrkur fáist að nýju. Fjórði skurðlæknirinn yfirfer skurðina og sker enn dýpra, ef þörf er á. Á fimmta og síðasta aðgerðar- staðnum er augað hreinsað og varið með bakteríudrepandi efnum. Sovésku læknarnir segj- ast geta skorið upp þriðjungi fleiri sjúklinga með því að nota færibandaaðferðina. Auk þess geta sérfræðingar þá einbeitt sér að vandasömustu verkunum. ■ Nú eru skipulagðar sérstakar og eftirsóttar ferðir frá Svíþjóð til Sovétríkjanna fyrir nærsýna, sem borga 25 þúsund krónur (sænskar) og losna við gleraugun. (111. Videnskab 1/87. - Þýð. Þ.J.) Sovéskir læknar hafa tekið í notkun færiband við uppskurði gegn nærsýni og með því aukið afköstin um þriðjung. Sjúklingarnir renna framhjá fimm læknum, sem hver um sig framkvæmir hluta aðgerðarinnar. Fimmti hver karlmaður verður veikur á meðgöngutímanum! Fimmti hver tilvonandi faðir á við erfiðleika að stríða meðan eiginkonan gengur með barn þeirra hjóna. Þetta kemur fram í sænskri könnun sem gerð var meðal 81 tilvonandi föður í Linköping, sem valinn var af handahófi. Algengustu einkennin voru magakveisur, tannpína, ýmiss konar verkir og þyngdaraukning. Einn þyngdist um 12 kg á með- göngutímanum en hann léttist aft- ur þegar barnið var fætt. Þrír leituðu til tannlæknis vegna tannpínu og einn fékk veikindafrí frá vinnu vegna með- gönguvandamála. Venjulega koma veikindaeinkenni feðranna tilvonandi í ljós á 3,- 4. mánuði og þegar nær dregur fæðingunni. Lennart Bogren yfirlæknir í Karlskrona, sem hefur unnið að þessari könnun, komst að því að óróleiki konunnar skiptir sköp- um fyrir líðan eiginmannsins. Skýringin getur verið sú að hann lifi sig inn í hlutverk hennar. Þetta virðist mest áberandi hjá fullorðnum hjónum, sem eiga von á sínu fyrsta barni. í þeim til- vikum getur skýringin verið sú að konan er þá sérlega kvíðin vegna meðgöngunnar og fæðingarinnar. Lennart Bogren dregur þær ályktanir af niðurstöðum þessar- ar könnunar að það sé einnig mikilvægt að fylgjast með líðan föðurins á meðgöngutímanum, a.m.k. hjá eldri hjónum þar sem líkurnar á meðgönguvandamál- um eru sérstaklega miklir. Þetta fyrirbæri er vel þekkt um allan heim og gengur undir nafninu couvade-áráttan eftir franska orðinu „couver“ sem þýðir að liggja á. (lllustrercl Videnskab, þýð. GH.)

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.