Dagur - 25.02.1987, Side 9

Dagur - 25.02.1987, Side 9
25. febrúar 1987 - DAGUR - 9 Jþróttic Umsjón: Kristján Kristjánsson - þegar ísland lagði heims- og olympíumeistara Júgóslava að velli „Þetta var stórkostlegur leik- ur, það er ekki á hverjum degi sem við vinnum Júgóslava. Það gekk allt vel í seinni hálf- leik og Einar var frábær í markinu í lokin en þetta var ekki eins gott hjá okkur í fyrri hálfleik,“ sagði Alfreð Gísla- son eftir sigurinn á Júgóslöv- um í gær. Aðspurður sagðist Alfreð vel geta hugsað sér að gera það að reglu að skora úr aukaköstum í lok leikja. „Við ættum frekar að reyna að fiska aukaköst en víti í lokin,“ sagði Alfreð. Fyrri hálfleikur var jafn og spennandi. íslenska liðið leiddi fyrstu tíu mínúturnar en þá tóku Júgóslavar forystuna og héldu henni fram í hálfleik. í leikhléi höfðu þeir yfir, 10:9. í síðari hálfleik tók íslenska liðið heldur betur við sér og jafn- aði 10:10 og Óttar kom Islandi yfir 10:11. A þrettándu mínútu, þegar staðan var 15:15, var brot- ið mjög illa á Guðmundi Guð- mundssyni og dæmt vítakast sem Kristján skoraði úr. Petta grófa brot setti íslenska liðið í over- Alfreð Gíslason átti stórleik og skoraði 7 mörk, hvert öðru gíæsi- legra. drive sem gerði út um leikinn á næstu mínútum með frábærum leikkafla. Á næstu tólf mínútum breyttist staðan úr 16:15 í 22:17 og sigur íslands var í höfn. Júgó- slavar minnkuðu muninn í þrjú mörk, 23:20, á lokamínútum leiksins en á Iokasekúndunni skoraði Alfreð beint úr aukakasti 24. mark íslands við gífurleg fagnaðarlæti Hallargesta. Þar með höfðu heims- og olympíu- meistarar Júgóslava verið lagðir að velli, 24:20. Alfreð Gíslason átti stórleik og bar af í liði íslands í fyrri hálfleik. í síðari hálfleik sýndu þeir Páll Ólafsson, Þorgils Óttar Matthie- sen, Guðmundur Guðmundsson og Einar markvörður frábæran leik. í liði Júgóslava voru þeir Gor- an Perkovac, Iztok Puc og Zlatko Portner bestir. Frönsku dómararnir, þeir Jean Delong og Gerard Tancrez, voru mjög slakir. Mörk íslands skoruðu: Alfreð Gíslason 7, Páll Ólafsson 6, Þorgils Óttar Matthiesen 5, Guð- mundur Guðmundsson 3, Krist- ján Arason 2 og Bjarni Guð- mundsson 1. Mörk Júgóslava skoruðu: Gor- an Perkovac 3 þar af eitt úr víti, Iztok Puc 6, Zlatko Portner 4, Bjarni Guðmundsson, sem lék sinn 201 landsleik í gær, stóð sig vel ásamt hinum strákunum Josef Holgert 3, Boris Jarak 2 og Júgóslavía einnig og þá fóru Zlatan Faraevet 1. Júgóslavar með nauman sigur af í fyrrakvöld mættust ísland og hólmi, 20:19. Eiríkur Sigurðsson átti ágætan leik í gær. Mynd: OM í starfskynningu Körfubolti 1. deild: Þór sigraði Tindastól -109:81 í gærkvöld Þór vann Tindastól í 1. deild íslandsmótsins í körfuknattleik í gærkvöld. Úrslit leiksins, sem fram fór í Höllinni á Akureyri, urðu 109:81 Þór í vil. Framan af leiknum gekk Þórsurum fremur illa og var Tindastóll yfir lengi vel. í síðari hálfleik var Þór yflr allan tímann en Tindastólsmenn léku af kappi og stóðu talsvert í Þórsurum. ívar Webster og Eiríkur Sig- urðsson voru bestir Þórsara en Björn Sigtryggsson og Eyjólfur Sveinsson voru stigahæstir Tindastólsmanna. Tindastóll var yfir framan af fyrri hálfleik en mjóu munaði oft að Þór tækist að jafna. Á 10. mín. var staðan 4:10 Tindastól í vil, á 20. mínútu var Tindastóll kominn í 16:23 en síðustu tíu mínútur leiksins voru Tindastóli ekki jafn hagstæðar og voru Þórs- arar komnir yfir 53:42 þegar flautað var til hálfleiks. í síðari hálfleik var Þór yfir all- an tímann en náði aldrei neinu verulegu forskoti fyrr en undir lokin. Þórsurum tókst að koma Tindastólsmönnum úr jafnvægi og gátu þeir illa nýtt sóknartæki- færi sín og margar körfur fóru í súginn vegna fljótfærni einstakra leikmanna. Varla er um það að efast að Tindastóll hefði getað náð betri árangri í leiknum en raun varð á ef þeir hefðu leikið yfirvegaðri körfuknattleik og spilað meira hvor upp á annan. Kári Marísson og Eyjólfur Sverrisson vöktu athygli fyrir snerpu og góð skot úr erfiðum færum. ívar Webster hefur oft verið betri en þarna en hann var burðarás Þórsliðsins ásamt Eiríki Sigurðssyni og Guðmundi Björnssyni. Stigahæstir Þórsara voru: ívar Webster 27, Eiríkur Sigurðsson 21, Guðmundur Björnsson 18, Konráð Óskarsson 10, Ólafur Adólfsson 9. í liði Tindastóls voru þessir stigahæstir: Eyjólfur Sverrisson 21, Björn Sigtryggsson 20, Sverr- ir Sverrisson 15, Kári Marísson 13.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.