Dagur - 06.03.1987, Page 4
4- DAGUR-6. mars 1987
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, SÍMI 24222
ÁSKRIFT KR. 480 Á MÁNUÐI ■ LAUSASÖLUVERÐ 50 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI: BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, EGILL BRAGASON,
EGGERT TRYGGVASON, GESTUR E. JÓNASSON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529),
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, RÚNAR ÞÓR BJÖRNSSON,
STEFÁN SÆMUNDSSON, ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON
(Sauöárkróki vs. 95-5960 hs. 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Stuttbuxnaliðið
stígur fram
Ueiðari.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
nú opinberað fyrsta inn-
legg sitt í umræðuna um
byggðamál. Það er með
þeim eindæmum að flesta
rekur í rogastans. Sam-
kvæmt þjóðmálakönnun
SUF sem birt var á haust-
dögum vill mikill meirihluti
þjóðarinnar halda uppi
öflugri byggðastefnu, jafn-
vel þótt það hafi í för með
sér aukin útgjöld fyrir þjóð-
arbúið. Frjálshyggjuliðið
innan Sjálfstæðisflokksins,
svo kölluð stuttbuxnadeild,
með Vilhjálm Egilsson
þingmannsefni sjálfstæðis-
manna á Norðurlandi
vestra í broddi fylkingar,
virðir þessa skoðun að vett-
ugi. Það sýnir tillaga við-
skiptanefndar sjálfstæðis-
manna, sem lögð var fram á
landsfundi þeirra sem hófst
í gær. Tillagan gengur út á
það að innflutningur á
landbúnaðarvörum verði
gefinn frjáls. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem tillaga í
þessum dúr kemur fram
innan Sjálfstæðisflokksins
og ljóst er að hugmyndin á
talsverðu fylgi að fagna
meðal flokksmanna.
Miklar umframbirgðir eru
nú til í landinu af helstu
landbúnaðarafurðum.
Grípa hefur þurft til veru-
legrar skerðingar á fram-
leiðslurétti búvara og ljóst
er að engin stétt í landinu
hefur orðið fyrir jafn mikilli
kjaraskerðingu á undan-
förnum árum og bænda-
stéttin. Samdráttur fram-
leiðslu í sveitum hefur
ótrúlega fljótt áhrif á nær-
liggjandi þéttbýliskjarna,
þar sem fullvinnsla afurð-
anna fer fram. Áðurnefnd
tillaga sjálfstæðismanna er
því bein og ósvífin árás á öll
byggðarlög dreifbýlisins.
Allar þjóðir heims hafa
það á stefnuskrá sinni að
vera sjálfum sér nógar í
matvælaframleiðslunni og
þurfa ekki að vera öðrum
háðar í þeim efnum. Því
miður hefur ekki öllum lán-
ast að ná þessu markmiði.
Ef íslendingar verða ein-
hvern tímann svo ógæfu-
samir að afsala sér þessum
mannréttindum af fúsum
og frjálsum vilja og glata
þar með hluta af sjálfstæði
sínu, hefst nýr og
óskemmtilegur kafli í ís-
landssögunni.
Það er örugglega þjóð-
hagslega óhagkvæmt að
kippa fótunum undan öðr-
um höfuðatvinnuvegi þjóð-
arinnar, leggja sveitir
landsins í eyði og neyða
enn fleiri til að flytja á möl-
ina. Engu að síður felur til-
lagan um frjálsan innflutn-
ing á landbúnaðarvörum
einmitt það í sér.
Innlegg sjálfstæðis-
manna í umræðuna um
byggðamál er svo sannar-
lega umhugsunarvert.
Hverra hagsmunum er ver-
ið að þjóna? BB.
Félagsstarf
aldraðra
Farið verður í leikhúsferð í Freyvang, sunnu-
daginn 15. mars n.k. frá Húsi aldraðra
kl. 19.45.
Þátttökugjald kr. 500,-
Þátttaka tilkynnist í síma 25880.
Félagsmálastofnun Akureyrar.
$fc Lausar stöður
lilf sérfræðinga
við Raunvísindastofnun Háskólans.
Lausar eru til umsóknar eftirtaldar rannsóknastöður við Raunvís-
indastofnun Háskólans sem veittar eru til 1-3 ára.
a) Tvær stöður sérfræðinga við Reiknifræðistofu. Starfssvið
Reiknifræðistofu er einkum í aðgerðagreiningu, tölfræði, tölulegri
greiningu og tölvunarfræði.
b) Ein staða sérfræðings við Stærðfræðistofu, en á Stærð-
fræðistofu fara fram rannsóknir I stærðfræði og stærðfræðilegri
eðlisfræði. Fastráðning kemur til greina I þessa stöðu.
Stöðurnar verða veittar frá 1. september n.k.
Laun samkvæmt launakerfi starismanna ríkisins. Umsækjendur
skulu hafa lokið meistaraprcfi eða tilsvarandi háskólanámi og
starfað minnst eitt ár við rannsóknir.
Starfsmennirnir verða ráðnir til rannsóknastarfa, en kennsla þeirra
við Háskóla íslands er háð samkomulagi milli deildarráðs raunvís-
indadeildar og stjórnar Raunvísindastofnunar Háskólans, og skal
þá m.a. ákveðið, hvort kennsla skuli teljast hluti starfsskyldu við-
komandi starfsmanns.
Umsóknir, ásamt ítarlegri greinargerð og skilríkjum um menntun
og vísindaleg störf og rannsóknaáætlun skulu hafa borist mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 31. mars
n.k.
Æskilegt er, að umsókn fylgi umsagnir frá 1-3 dómbærum mönn-
um á vísindasviði umsækjanda um menntun hans og vísindaleg
störf. Umsagnir þessar skulu vera í lokuðu umslagi sem trúnað-
armál og má senda þær beint til menntamálaráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið, 2. mars 1987.
Skagaströnd:
Síldin kemur, síldin fer
Leikklúbbur Skagastrandar
frumsýnir á morgun laugardag
leikritið Síldin kemur, síldin
fer eftir þær Kristínu og Iðunni
Steinsdætur, undir leikstjórn
Þrastar Guðbjartssonar.
Undirrituðum gafst tækifæri til
að vera viðstaddur eina af síðustu
æfingunum og undraðist alveg
aræði þeirra Skagstrendinga að
ráðast í svo fjölmennt verk. En
það hefur tekist vel að manna öll
hlutverk og ekki verður annað
sagt en að leikarar hafi staðið sig
vel. Svo vel tókst til með flutning
þessa verks hjá Leikfélagi Húsa-
víkur að landsfrægt varð, og ætti
því að vera óþarft að kynna verk-
ið nú. En það eru eflaust fjöl-
margir sem ekki höfðu færi á að
sjá það í þeirra flutningi, en gefst
nú færi til að sjá þetta bráð-
skemmtilega verk. Eins og fyrr
segir verður frumsýningin á
morgun en næsta sýning verður
fimmtudaginn 12. mars. Þaö verð-
ur sýnt á Hvammstanga sunnudag-
inn 15, og fyrirhugað er að sýna
einnig á Blönduósi.
Leikendur eru 26 sem er veru-
lega hátt hlutfall íbúa Skaga-'
strandar þar sem búa um 700
manns. Leiktjöldin eru að mörgu
leyti skemmtilega gerð en segja
mætti mér að þau gætu reynst erf-
ið í flutningi. En sem sagt, gott
stykki og góð skemmtun. G.Kr.