Dagur - 06.03.1987, Page 5
6. mars 1987-DAGUR-5
m
,Hef ekki orðiðvarvið
óánægju eða öfund"
- segir Einar Viðarsson bakari á línunni
ji#
Fyrr í vetur birtist viðtal við
Einar Viðarsson bakara í blað-
inu en þá var hann búinn að
kaupa húsnæði undir nýtt bak-
arí. Hann var mjög bjartsýnn þá
en bjóst hann við svona rosaleg-
um móttökum eins og raun ber
vitni:
- Nei, ég bjóst ekki við þess-
um móttökum, þær hafa farið
fram úr öllum vonum. Það er
eins og Akureyringar hafi verið
orðnir langsveltir eftir nýrri
bakaríismenningu. Þeir sem hafa
verið í Reykjavík þekkja að þar
er hún á hærra stigi og ég hef
stefnt að því að vera með hlið-
stæðar vörur á boðstólum og
tíðkast þar. Sem dæmi um
menninguna hérna má taka að
ekki var hægt að fá ný brauð á
sunnudagsmorgnum, það var
lokað. Kristjánsbakarí byrjaði
fyrst á þessu eftir að þeir fréttu
hvað ég ætlaði að gera. Þetta er
þjónusta sem fólki líkar enda fæ
ég ágæt viðskipti á s'unnudags-
morgnum og raunar er alltaf
stanslaus straumur í búðina hjá
mér.
- Þú ert líka með einhverjar
nýjungar í sambandi við brauðin
og baksturinn, ekki satt?
- Jú, jú. Bæði er ég með teg-
undir sem ekki hafa sést hérna
áður og hafa slegið rækilega í
gegn og síðan er ég með ofn
frammi í afgreiðslunni til þess
gefa fólki kost á heitum brauð-
um. Og ég hef alltaf lagt áherslu
á að vera aðeins með ný brauð á
boðstólum. Þá er ég með álegg
og mjólkurvörur þannig að fólk
getur keypt allt meðlæti með
brauðinu.
- Þú hefur væntanlega þurft
að bæta við mannskap eftir þess-
ar óvæntu móttökur?
- Já, ég þurfti að bæta við
fólki. Síminn hringdi stanslaust
eftir að ég auglýsti þannig að
það gekk vel. Síðan var ég með
tvo bræður mína með mér í
þessu til að hjálpa mér tvo fyrstu
dagana, en þeir voru hjá mér
alveg fram yfir bolluhelgi til þess
að hjálpa mér því ég sá ekki
fram á það að geta gert neitt
nema með aðstoð þeirra.
- En hefurðu krækt í ein-
hverja frá stóru. brauðgerðun-
um?
- Já, ég tók bakara úr Krist-
jánsbakaríi.
- Engin óánægja í kjölfar
þess?
- Nei, það held ég ekki. Ég
hef ekki orðið var við óánægju
eða öfund hjá fólki, það virðast
flestir mjög ánægðir með bak-
aríið, sérstaklega viðskiptavin-
irnir.
- Þú ert ekkert hræddur við
samkeppnina?
- Nei, það er góður grund-
völlur fyrir lítið bakarí eins og
þetta. Þetta er á allt öðru plani
en störu bakaríin, fólk kemur
híngað til að fá glæný og heit
brauð og prófa nýjar tegundir.
- En verðsamkeppnin. Reyn-
ir þú að vera með ódýrari brauð
en hinir?
- Það er ekki málið. Ég er
ekkert að reyna að vera lægri en
hinir, en ég hef reynt að fylgja
miðlungsverði í Reykjavík og
þar er verðið yfir höfuð töluvert
lægra en hér.
- Þú ert þá væntanlega jafn
bjartsýnn ogþú varst í upphafi?
- Já, maður verður að vera
bjartsýnn þegar maður fer út í
svona rekstur. Aðalmálið er að
gera viðskiptavinina það
ánægða að þeir sjái aldrei ástæðu
til að kvarta. Ég kappkosta
að vera alltaf með nýtt, aldrei að
selja gamla vöru.
- En í fúlustu alvöru Einar,
er nokkur munur á þínum
brauðum og brauðunum hjá
hinum brauðgerðunum. Eru
brauð ekki alltaf brauð?
- Það er alltaf stór niunur á
svona verksmiðjuframleiðslu og
handverksframleiðslu. Þó þetta
séu kannski sömu uppskriftirnar
þá er alltaf gæðamunur á þessu.
- Dreifír þú þá ekkert í stór-
verslanir?
- Nei, ég hef ekki gert það.
Ég hef jú dreift brauðum í Sjáv-
largull, en það er það eina sem
ég hef getað dreift. Ég hef bara
ekki haft undan að baka nema
rétt fyrir mig, í búðina.
- En hvað með veitingahús,
hafa þau falast eftir brauðunum
þínum?
-Já, þau eru búin að tala við
mig og spyrjast fyrir, en eins og
ég segi þá hef ég ekki getað ann-
að eftirspurn ennþá.
- Jæja, ég ætla þá ekki að
tefja þig lengur Einar. Þakka
þér fyrir spjallið.
- Já, þakka þér sömuleiðis.
- Blessaður.
- Já, bless. SS
Veiðileyfi
í Skjálfandafljóti
Tilboð óskast í stangveiði á A-deildarsvæði Veiði-
félags Skjálfandafljóts. Tilboðum skal skila til Vé-
steins í sínia 96-43198 fyrir 1. apríl. Réttur áskilinn
til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Flugáhugameim
Flugvélaeigendur
Áríðandi fundur um flugskýlisbyggingar á
Akureyrarflugvelli, verður haldinn föstud. 6.
mars kl. 20.30 að Hótel KEA.
Undirbúningsnefnd.
ÚTBOÐ
Póstur og sími Akureyri óskar eftir tilboði í
gröfuvinnu á árinu 1987.
Tilboð skulu berast umdæmisskrifstofu Pósts og
síma, Hafnarstræti 102, Akureyri fyrir 25. mars. Upp-
lýsingar eru veittar á umdæmisskrifstofunni.
Umdæmistæknifræðingur.
Verkalýðsfélögin í Alþýðuhúsinu á Akureyri,
halda sameiginlega árshátíð fyrir félags-
menn sína í Alþýðuhúsinu, laugardaginn 21.
mars n.k., og hefst hún með borðhaldi
kl. 19,30.
Miðapantanir hjá verkalýðsfélögunum til 16. mars.
Miðasala á skrifstofu Verkalýðsfélagsins Einingar
fimmtudaginn 19. mars frá kl. 16.00 til 21.00. Miða-
verð kr. 1.000,-
Stórkostleg skemmtun. - Ótrúlegt verð!
Nefndin.
Foreldrar fermingar-
barna athugið!
Tökum enn á móti pöntunum
fyrir fermingarveislur.
Bjóðum upp á tvær gerðir af köldum borðum.
Útvegum allan borðbúnað
og sjáum jafnvel um uppvaskið...
Hringið og fáið nánari upplýsingar
hjá veitingastjóra í síma 22200
Laugardagurinn 7. mars
Uppselt fyrir matargesti.
Húsið opnað fyrir aðra en matargesti kl. 23.00.
Dansleikur
Hin bráðfjöruga hljómsveit
GEIRMUNDAR VALTÝSS0NAR
heldur uppi fjörinu til kl. 03.00.